Morgunblaðið - 29.05.1984, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
39
Búrfellsvirkjun. Á myndinni sést meginhluti hins mikla listaverks Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara.
— eftir dr. Gunnlaug
Þórðarson
Frá því á menntaskólaárum mín-
um hefur myndlist átt huga minn
öóru fremur. Fátt er hægt að hugsa
sér ömurlegra en vistarverur, sem
engin listaverk skreyta. Mér hefur
ekki verið nóg aö njóta einn þeirrar
örvunar, sem góð myndlist getur
veitt og því ekki getað stillt mig um
að láta aðra á stundum taka þátt í
gleði minni t.d. með gjöfum til heil-
brigðis- eða menningarstofnana.
Með slíkum gjöfum hefur mér og
verið í huga að vinna listinni í land-
inu.
Þá hefur mér þótt gott til þess
að vita, að á seinni árum hefur það
færst í vöxt að listaverk séu notuð
til gjafa við sérstök eða hátíðleg
tækifæri. — Það er einnig tví-
mælalaust til ávinnings fyrir list-
ina.
Nú hefur það hins vegar gerst,
að það á að teljast til vanvirðu að
fá málverk að gjöf og reynt að
gera þá, sem stuðlað hafa að gjöf
nokkurri, og þiggjandann einnig
torgryggilega gagnvart þjóðinni.
Hér er bæði kotungsháttur og öf-
und, ef ekki meinfýsi að baki. Fara
þar þingmenn í hópi þeirra lítil-
sigldari meðal alþingismanna í
fararbroddi. Meðal þeirra einn
fyrrverandi fjölmiðlamaður, sem
vann sér helst til ágætis að vera
það, sem NT stærir sig af, þ.e.
„ágengur" í orðsins verstu
merkingu. Skrif í þessu endur-
fædda blaði framsóknarmanna
um mál þetta eru meðal þess
skuggalegasta, sem sést hefur í
seinni tíð.
Það segir sig sjálft, að þeir
menn, sem stóðu að því að ætla að
heiðra þennan ágæta samlanda
okkar, gerðu það vegna þess að
þeir vissu hve frábært verk hann
hafði unnið á þeim sviðum. — Mér
er og kunnugt um, að löngum þeg-
ar venjulegir opinberir starfs-
menn nutu hvíldar og næðis í
skauti fjölskyldu um helgar, var
hann óþreytandi að störfum.
Slíkt geta misvitrir þingmenn
ekki skilið né vitað, frekar en svo
margt annað. Enginn, sem þekkir
til virkjunarmála okkar, mun
neita því, að umræddur maður
hefur verið öðrum fremur drif-
kraftur í virkjunarmálum þjóðar-
innar og reynst þar framsýnn og
ráðhollur. Má í því sambandi
minna á Búrfellsvirkjun og það,
sem henni hefur fylgt. Þeir samn-
ingar voru án efa hagstæðir á sín-
um tíma, enda þótt verð á raf-
magni til okkar hafi ekki reynst
eins hagstætt síðar af ástæðum,
sem ekki verða raktar hér. Þá má
ekki gleyma því að þótt við höfum
orðið að sökkva okkur í skuldir
„En þá er þess að minn-
ast, að það var einmitt á
þessum slóðum, sem
fólk, og þar með kenn-
arar, þóttist þess um-
komið að geta kennt
nóbelsverðlaunaskáld-
inu okkar að skrifa á ís-
lensku.“
vegna mannvirkja þessara, þá
munum við eignast þau öll skuld-
laus á næsta áratug vegna tilkomu
álverksmiðjunnar í Straumsvík.
— 35 ár í sögu einnar þjóðar er
stuttur tími, en það er sá tími,
sem um er að ræða. Þá hefur ál-
verksmiðjan í Straumsvík verið
Hafnarfjarðarbæ dæmalaus lyfti-
stöng. Þessu getur hvert barn átt-
að sig á. — Þá má ekki gleyma
þeim árangri, sem samt hefur
náðst í baráttunni við verðbólg-
una. Hefði hún ekki verið stöðvuð
væri allt komið á kaldan klaka hjá
okkur, en slíkt er því miður ósk
sumra.
Samt er það eitt verk, sem þess-
um manni verður ekki fullþakkað,
en það var þegar hann átti frum-
kvæðið að því, að Sigurjón ólafs-
son myndhöggvari var fenginn til
að skreyta Búrfellsvirkjun með
list sinni. Listaverk, sem verður
þeim báðum til ævarandi sóma og
listunnendum til stöðugrar gleði.
Mér eru minnisstæð orð Sigurjóns
Ólafssonar, er hann sagði mér frá
því, að honum hefði verið falið
verk þetta, en hann eignaði hug-
myndina sérstaklega umræddum
manni. Hann sagði þá: „Það þarf
stórhug, dirfsku og listrænl innsæi
til þess að láta sér koma slíkt til
hugar. Slfkir menn eru alltof fátíðir
með þjóðinni, hjá okkur rís varla
nokkur upp úr meðalmennskunni.“
Af þeim slóðum þar sem meðal-
mennskan hefur blómastrað sem
mest berast nú þær fréttir að ver-
ið sé að safna undirskriftum til
þess að skora á þiggjandann að
skila gjöfinni. Hvílíkt hugarfar.
En þá er þess að minnast, að það
var einmitt á þessum slóðum, sem
fólk, og þar með kennarar, þóttist
þess umkomið að geta kennt nób-
elsverðlaunaskáldinu okkar að
skrifa á íslensku.
Undirskrift að skjali er ábyrgð-
arverk og því fleiri sem skrifa
undir þeim mun minnkar ábyrgð
hvers og eins, þannig má telja
skjal með fleiri en fimm undir
nánast marklaust því þar kemur
múgsefjun til skjala. Svo mun ein-
mitt vera í umræddu tilviki, þar
sem sá vitgrennsti í hópnum ræð-
ur ferðinni.
Menn þeir, sem voru að verki við
um að heiðra þann mann, sem hér
um ræðir, voru að þakka óvenju-
legum manni, sem skagar upp úr
meðalmennskunni og er því illa
þokkaður meðal þeirra. Hann hef-
Gunnlaugur Þórðarson
ur átt mikilvægan þátt í verðmæt-
asköpun í þágu allrar þjóðarinnar.
Sú viðurkenning sem fólst i lista-
verkagjöfinni var hreint smáræði
miðað við þau verðmæti, sem um
er að tefla, og það er rétt viðmið-
un. Hér er og um sérstakan vel-
unnara lista og menningar að
ræða.
Hins vegar er fjöldi venjulegra
embættismanna og þingmanna,
meira að segja í toppstöðum, sem
aðeins þramma í gangrimlahjóli
vinnunnar í meðalmennsku og
hugmyndaleysi, jafnvel áratugum
saman, ef þeir ekki blátt áfram
þvælast fyrir og eiga engar viður-
kenningar skilið. Það er líka við-
miðun.
Það væri illt, ef fólki, sem
hvorki kanna að meta myndlist né
vel unnin verk, á að takast að
vinna listinni í landinu ógagn í
smásálarskap sínum og koma í veg
fyrir skynsamlega og viðeigandi
ráðstöfun á almannafé.
Dr. (iunnlaugur Þórðarson er
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.
Aquaseal
þéttlefni
ásökkla f
Starfsmenn Sovéska sendiráðsins:
Vilja efla tengsl
við Stúdentaráð
„Það er rétt að einn starfsmanna
sendiráós Sovétíkjanna kom aö máli
við mig og við áttum vinsamlegar
samræóur," sagði Stefán Kalmans-
son, formaður Stúdentaráðs, er hann
var inntur eftir því hvernig sam-
skiptum stúdenta og Sovéska sendi-
ráðsins væri háttað, en Morgunblað-
inu cr kunnugt um viðleitni sendi-
ráðsins að koma þar á fastri skipan.
„Astæða þess að hann hafði
samband við mig var að kanna
hvort áhugi væri fyrir hendi af
hálfu Stúdentaráðs að sækja
æskulýðsmót 1985 í Moskvu. Einn-
ig bauðst hann til að útvega okkur
allar upplýsingar um Sovétríkin,
utanríkismál o.fl.“ Aðspurður
sagðist Stefán hafa gert sendi-
manninum ljóst að meirihluti
Stúdentaráðs væri mótfallin um-
ræðum og ályktunum um þjóðmál
og utanríkismál á fundum ráðsins
og yrði öllu slíku vísað frá. „Hann
var bæði undrandi og greinilega
vonsvikinn og bað mig um skýr-
ingar á þessari afstöðu, sem ég og
gerði. Annars var ég mest hissa á
því hversu gott vald hann hefur á
íslenskri tungu og hve vel hann
þekkti mína einkahagi," sagði
Stefán að iokum.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Aquaprufe olíublendi mjög gott
á sökkla þar sem mikill raki eða
vatnsagi er í jarðvegi. Efnið er með
10% gúmmíblöndu og er því mjög
teygjanlegt og sterkt. Ver steypuna
gegn raka.
Aquaseal 5 er vatnsblendi hentugt
á sökkla þar sem raki er ekki mikill
í jarðvegi. Efnið má bera á þótt
steypan sé rök.
Ver steypuna gegn raka.
Rétt láð gegn raka
OLÍUVERSLUN ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5-REYKJAVÍK
SÍMI SÖLUDEILD 24220 (RÁÐGJÖF)
SÍMI BIRGÐASTÖÐ 33533 (PANTANIR)