Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAl 1984
Stúdentar úr dagskóla og öldungadeild Fjölbrautaskólans í Breiöholti fyrir utan Bústaðakirkju þar sem skólaslitin fóru fram.
Mynd: Ljósmyndastofa Reykjavíkur.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti útskrifar 107 stúdenta
Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti brautskráði 107
stúdenta í Bústaðakirkju
laugardaginn 19. maí síðast-
liðinn. A sama tíma voru
brautskráðir 11 sveinar í
iðngreinum, 11 sjúkraliðar
og tveir matartæknar. Enn-
fremur voru 17 nemendur
brautskráðir með sérhæft
verslunarpróf og 27 með al-
mennt verslunarpróf.
Af bóknámssviði vóru
brautskráðir 36 stúdentar, fimm
af heilsugæslusviði, sex af lista-
sviði, einn af hússtjórnarsviði,
sex af tæknisviði, 16 af uppeldis-
sviði og 22 af viðskiptasviði.
Úr dagskóla voru brautskráðir
97 stúdentar og frá kvöldskóla
(öldungadeild) voru 15 stúdentar
brautskráðir. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi í dagskólanum
hlaut Eggert Þorgrímsson sem
brautskráðist frá eðlisfræði og
náttúrufræðisviði. Hæsti nem-
andi í öldungadeild var Sólbjörg
Karlsdóttir sem var á viðskipta-
sviði.
Eins og áður segir voru braut-
skráðir 11 sveinar i iðngreinum.
Einn vélvirki var útskrifaður,
fimm rafvirkjar og fimm húsa-
smiðir.
Við athöfnina í Bústaðakirkju
flutti Guðmundur Sveinsson,
skólameistari, yfirlitsræðu um
dagskólann, afhenti stúdentum
dagskólans prófskírteini og einn-
ig viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur. Kristín Arnalds
aðstoðarskólameistari flutti yfir-
litsræðu um öldungadeildina og
útskrifaði stúdenta þaðan. Þá tók
Jóhann Hlíðar fráfarandi for-
maður nemendafélagsins til máls
og afhenti Loga Sigurfinnssyni
embætti formanns nemendafé-
lagsins formlega. Þorvaldur
Friðriksson deildarstjóri í ensku
flutti ávarp fyrir hönd kennara
og það gerði einnig Gunnar Dal
kennari í heimspeki og íslensku.
Fyrir hönd nýstúdenta talaði
Helga Hilmarsdóttir stúdent úr
öldungadeild skólans.
Tveir kórar sungu nokkur lög við
athöfnina, en það voru Lögreglu-
kórinn og kór skólans sem söng
undir stjórn Jónasar Þóris.
Glaðar stúdínur á góðri stund.
Ljósm. ÓI.K.M.
Hvítu kollarnir settir upp í Háskólabíói.
„Hamingjuóskir og málin rædd“ gæti þessi skemmtilega mynd heitið sem
Kristján Orn Elíasson tók að lokinni skólaslitaathöfninni í Háskólabíói.
Menntaskólinn við Sund brautskráir 178 stúdenta
Mcnntaskólanum við
Sund var slitið við hátíðlega
athöfn í Háskólabíói föstu-
daginn 25. maí síðastliðinn
og lauk þar með 15. starfsári
skólans.
I upphafi skólaársins voru 816
nemendur skráðir til náms í
skólanum, 416 stúlkur og 389
piltar. í Menntaskólanum við
Sund er bekkjakerfi, en boðið er
upp á fimm mísmunandi kjör-
svið og að auki tónlistarkjörsvið
í samvinnu við einstaka tónlist-
arskóla.
Alls voru að þessu sinni braut-
skráðir 178 stúdentar af sex
kjörsviðum. Flestir stúdentar
brautskráðust af náttúrufræði-
kjörsviði eða 63 talsins. Af mála-
kjörsviði útskrifuðust 18 stúd-
entar, af félagsfræðikjörsviði 35,
af hagfræðikjörsviði 22, af eðlis-
fræðikjörsviði 38 og tveir stúd-
entar voru brautskráðir af tón-
listarkjörsviði.
Stúdentahópurinn stóð saman
af 90 stúlkum og 88 piltum og að
þessum hópi meðtöldum hefur
skólinn brautskráð 2.019 stúd-
enta á tólf árum.
Hæstu einkunnir á stúdents-
prófi hlutu Harpa Rúnarsdóttir
með 9,3 og Bjarni Birgisson með
9,2. Þau útskrifuðust bæði af eðl-
isfræðikjörsviði. Einn nemandi,
Kjartan Stefánsson, lauk stúd-
entsprófi af tveimur kjörsviðum
í senn, eðlisfræði- og hagfræði-
sviði.
Rektor skólans, Björn Bjarna-
son, flutti ávarp og afhenti ein-
kunnir og viðurkenningar fyrir
góðan námsárangur. Kjartan
Stefánsson ávarpaði samkom-
una fyrir hönd nýstúdenta og
söngflokkur úr skólanum söng
stúdentalög undir stjórn Þóru
Fríðu Sæmundsdóttur sem
brautskráðist frá skólanum árið
1976.