Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAl 1984 47 Morgunblaðid/ ól.K. Mag. Bænaguðsþjónusta í Breiðholtssókn BREIÐHOLTSSÓKN sem nær vfír Bakka og Stekki, reisir nú kirkju í Mjóddinni. Síðastliðinn sunnudag var haldin bænadags- guösþjónusta í kirkjubygging- unni. Var hún til að minna á verk- efni sem framundan eru og til að safna fjárframlögum. Að sögn séra Lárusar Halldórsson- ar sóknarprests ganga fram- kvæmdir seint sökum fjár- skorts, en rétt eins og aðrar kirkjur landsins er hún reist fyrir frjáls framlög einstakl- inga. Álíka samkomur hafa verið haldnar að vori og hausti frá því fyrsta .skóflustungan var tekin. Þær hafa verið ágæt- lega sóttar og nokkurt fé safn- ast. Áætlað er að vígja kirkj- una næsta haust, en ekki er vit- að hvenær hún verður fullgerð. IttttgtmÞlftfeib Nokkur spjöld voru á lofti, öll með vinalegum kveðjum frá nemendum. Morgunblaðia/Ól.K. Mag Skólastjórinn, Jón Freyr Þórarinsson, gengur brosandi frá. Vori fagnað í Laugarnesskóia SUNNUDAGINN 27. maí stóð for- eldra- og kennarafélag Laugar- nesskóla fyrir vorfagnaði. Hófst hann með gróðursetningu á skóla- lóðinni. Þá tóku foreldrar og nem- endur saman höndum og prýddu skólalóðina trjám. Eftir hádegið tók skólahljómsveitin nokkur lög og haldið var í skrúðgöngu um nágrennið. í kringum skólann var farið í ýmsa leiki. Loks var grillað úti og sungið við gítarundirleik. Nú stendur til að breyta skóla- lóðinni þannig að innkeyrsla verði aðeins norðan megin við skólabygginguna. Þannig dregur úr slysahættunni sem skapast þegar stórir bílar aka inn á leikvöllinn sunnan megin við húsið. Teikningar af breyting- unni eru eftir Auði Sveinsdóttur. Þátttaka var mjög góð í fagn- aðinum og allir skemmtu sér konunglega, jafnt ungir sem aldnir, að sögn aðstandenda vor- fagnaðarins. Búningarnir voru margvíslegir á vorfagnaðinum og allir voru í sólskinsskapi. ILJI Armuli 8, simi 86080 Bláskógar NÝKOMIÐ Skrifborö Skatthol Hornskápar Lampaborð Símaborð Hljómtækjaskápar Bókaskápar Tevagnar Hagstætt verð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.