Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
6-~ 7
bor ö ’ :C 1 7c
lllllllllllllllll
Jm 0L-r/-,.-aiTOi
!8S8
S8J
QUATTRO
AUDI
Jafnvel þó bensíngjöfin sé stigin
hressilcga og kúplingunni sleppt
snögglega, finnast engir kippir eða
rykkir, bíllinn skýst af stað án
átaka og líður áfram líkt og mal í
hassaróma ketti og útlitið fær
hvern mann til að gefa honum nán-
ari gætur. Bíllinn er Audi Quattro;
sportlegur fjórhjóladrifinn fjöl-
skyldubíll, en einn slíkan hafði
Hekla hf. á sínum vegum hérlend-
is fyrir nokkru.
Hugmyndin að Audi Quattro-
bílnum kom fram á síðari hluta
áttunda áratugarins og var
tæknihönnuðinum Fernand
Piéch falið að hanna bíl, sem
sameinaði kosti fjórhjóladrifsins
og vandaðs fjölskyldubíls. Fjór-
hjóladrifsbúnaðurinn fékkst
m.a. úr VW Iltis-herjeppa, sem
hafði verið framleiddur í mörg
ár, en byggingarlagi bílsins svip-
aði til eldri Audi-fjölskyldubíla,
en var þó mun sportlegra. Að
sama skapi voru notaðir ýmsir
hlutir úr eldri Audi og VW-bíln-
um. Piéch valdi hluti er reynst
höfðu vel, en kastaði öðrum. Bíll-
inn fékk endurhannaða fimm
cylindra vél með afgasforþjöppu
og var vélin staðsett langsum
svipað og í Audi 5000 Turbo. Aft-
urfjöðrunin var raunverulega
framfjöðrun úr Audi 4000, en
staðsett á nýjan hátt að aftan.
Úr Audi 100 S komu síðan ýmsir
smáhlutir. Að loknum fjölmörg-
um tilraunum leit fyrsti til-
rauna-Quattro-bíllinn dagsins
ljós árið 1979. Þótti hann það vel
heppnaður að strax árið eftir
hófst framleiðsla á bílnum af
fullum krafti. Hann var þó ekki
á færi nema fjáðra viðskipta-
vina, enda framleiddur með
sportbílamarkaðinn í huga.
Samfara góðum árangri bílanna
í heimsmeistarakeppninni í rall-
akstri jókst salan ár frá ári, en
Piéch lét þó ekki staðar numið
og þróaði ýmsa nýtískulega hluti
í bílana.
„Festu öryggisbeltin — athug-
aðu ljósin" krafðist kvenleg
tölvurödd á þýskri tungu, eftir
að blaðamaður hafði stungið
lyklinum í svissinn á Quattro-
bílnum, er honum var ekið til
myndatöku. Auk þess gaf hún
ýmiskonar skipanir í svipuðum
dúr áður en haldið var af stað.
Þessa tölvurödd má taka úr sam-
bandi, enda verða menn líklega
þreyttir á að heyra sömu skipan-
irnar í hvert skipti, sem bíllinn
er ræstur ...
Mælaborðið í Quattro-bílnum
er búið LED „digital“-rafeinda-
mælum, sem eru að verða tísku-
fyrirbrigði í bílaframleiðslunni.
Fimm mælar eru til staðar —
fyrir hraða, snúningshraða vél-
ar, vatnshita, eldsneyti og
vinnslu forþjöppu. Auk þess er
talva til að reikna út meðal-
hraða, eldsneytiseyðslu og end-
ingu þess. Mælarnir eru allir
með grænu ljósi, en skilja mætti
þá betur að með því að hafa þá í
mismunandi litum. Með einu
handtaki má slökkva á öllum
mælum utan hraðamælisins,
sem er í miðju mælaborðinu. Þar
sem hraðamælirinn er með
LED-ljósum, samskonar og á
vasatölvum, flöktir hann dálítið
við hraðaaukningu og þarf lík-
lega nokkurn tíma til að venjast
honum, miðað við hefðbundinn
hraðamæli.
í mælaborðinu eru viðvörun-
arljós fyrir bilun í bremsukerfi,
hleðslu og smurþrýsting. Einnig
er vegalengdarmælir ásamt
„trip-teljara“ fyrir styttri vega-
fjöðrunin það til að linast upp
við grimman akstur, en hún hef-
ur verið gerð 40% stífari. í
akstri er billinn því nokkuð hast-
ur, en lág dekkin gera hann enn
hastari. Leiða þau einnig hávaða
upp í farþegarýmið ef ekið er á
ósléttum vegum, enda gerð fyrir
malbiksakstur.
Til að knýja allan þennan bún-
að áfram, sem upp hefur verið
talinn, er 200 DIN-hestafla vél
undir vélarhlífinni að framan.
Slagrúmtak hennar er rúmir 2,1
lítrar, en afgasforþjappan hress-
ir upp á vinnsluna. Millikælir
kælir loftið niður í 50—60 gráður
á celcius, áður en það nær
j sprengirýminu. Með því fæst
kraftmeiri sprenging, fleiri hest-
öfl og betri eldsneytisnýting.
Vinnslusvið vélarinnar er mjög
breitt, en skilar sér best á milli 3
og 5.500 snúning/mín. Fyrir ofan
það verður vinnslan grófari þar
til hámarkinu í kring um 6.700
snúninga/mín. er náð en þá slær
öryggisventill út og vélin drepur
á sér, áður en skaðlegir hlutir
gerast. Forþjappan virkar ekki
undir 3.000 snúningum, en bíll-
inn vinnur engu að síður sæmi-
lega á þeim snúningi en for-
þjappan gerir hins vegar gæfu-
Flókin
tækni en
fullkomin
í fjórhjóla-
drifnum
sportbíl
Audi Quattro í sínu rétta umhverfi.
Mælaborðið er búið „digital“-mælum.
Vinstra megin er snúningshraðamælir, mælir er sýnir eyðslu á 100 km
meðalneyslu, meðalhraða og tímann eftir því hvaða stilling er valin. í
miðjunni er hraðamælir, hægra megin bensínmælir, vatnshitamælir og
mælir er sýnir vinnslu forþjöppu.
Vélarrúmið er þröngt skipað, vélin skilar 200 DIN hestöflum.
Fjórhjóladrifið hefur meiri rásfestu á möl á hálum vegum framyfir hefðb-
undið fram- eða afturdrif.
iengdir. Innréttingin er hönnuð
með fimm einstaklinga í huga,
framsætin eru sniðin eins og
körfustólar í hraðakstursbílum
og veita því meiri hliðarstuðning
er ella. Sætin í sýningarbíl
Heklu voru með leðuráklæöi og
dökku „tweed-áklæði“ og allar
rúður voru reyklitaðar.
En það eru ekki innanstokks-
munir Quattro-bílsins, sem gera
hann eftirsóknarverðan, heldur
aksturseiginleikarnir og fjór-
hjóladrifið. Hönnuður bílsins
Piéch telur hann 100% betri á
hálum og erfiðum vegum en
fram- eða afturdrifsbíl, hann sé
mun rásfastari við slíkar að-
stæður. Hann segir einnig að það
taki meðalgóðan ökumenn mán-
uði að læra fullkomlega á þá
kosti er fjórhjóladrifið býður
upp á. f beygjum kastar bíllinn
ekki afturendanum eða rennur
til að framan, eins og fram og
afturdrifsbílar, þó bensíngjöf sé
sleppt eða gefið á fullri ferð,
hann leitar beint útúr beygjunni
ef honúm er stýrt til þess.
Rásfesta er meiri þar sem vél-
araflið deilist á fjögur hjól, sem
rífa bílinn áfram, en hann er sí-
drifinn og er ekki hægt að taka
hann úr fjórhjóladrifinu. Af
þeim sökum er drifás, sem jafn-
ar átakið milli hjólanna í akstri
á malbiki, þar sem viðnám er
meira en á lausum malarvegi.
Hægt er að læsa afturdrifinu
með takka í stokki fyrir framan
lipra gírströngina, framdrifið er
ekki læsanlegt, þar sem það
myndi gera aflstýrið erfitt við-
fangs og bílinn illviðráðanlegan í
akstri. Það er á malarvegum og
hálum vegum, sem fjórhjóladrif-
ið í Quattro-bílnum skilar
árangri, svo ekki sé talað um
snjó- eða ísiiagða vegi. Telur
Piéch hinn margnefndi að bíll-
Loftinntök fyrir kælingu á diskabremsum eru framan á bílnum, neðan
við grillið.
inn sé 100% betri en fram eða
afturdrifsbílar við slíkar að-
stæður.
Bremsukerfið er búið ABS-
útbúnaði, sem varnar því að
bremsurnar læsist við nauð-
hemlun. Aflátak er á bremsu-
kerfinu, en kældir diskar eru að
framan með óvenjustórum fleti
fyrir bremsuklossana. Aukakæl-
ingu fá diskarnir vegna loft-
streymis er kemur gegnum loft-
inntök á neðanverðum fram-
hluta bílsins, eru þar til gerð göt
á „spoiler" bílsins. Að aftan eru
diskabremsur, ekki þó kældar.
Vegna fjórhjóladrifsins tekst að
jafna betur átak milli fram- og
afturbremsanna og styttist
hemlunarvegalengdin því nokk-
uð. Fjöðrunarkerfið er sjálfstætt
að framan og aftan, með jafn-
vægisstöngum að framan og aft-
an og stífum til að minnka titr-
ing. Á eldri Quattro-bílum átti
muninn. Hún hjálpar til við að
skila bílnum á rúmum tveim
sekúndum í 50 km hraða og í 100
km hraða á 6,7 sekúndum, en há-
markshraðinn er nokkuð yfir 200
km/klst.
Af þessum tölum verður ljóst
að bíllinn er í félagsskap með
þekktum sportbílum, eini mun-
urinn er sá að hann er fjórhjóla-
drifinn. Bíllinn ætti að henta ís-
lenskum aðstæðum, sérstaklega
í vetrarófærðinni þó hann teljist
ekkert torfærutröll, og ekki
hannaður sem slíkur. Verðið er
þó nokkuð hátt, eða um tvær
milljónir króna, og verður bíll-
inn því líklega sjaldséður hér-
lendis. Þó mun „litli" bróðir bíls-
ins, Audi 80 Quattro, vera í eigu
íslendings, en það er smækkuð
útgáfa af Quattro-bílnum, sem
þeysir um íslenska vegi.
Texti og myndir:
Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Audi
Quattro
Tæknilýsing
Vél: 5 cylindra, meö afgasforþjöppu
og millikæli, beinni innspýtingu,
slagrúmtak 2.144 cc, þjappa 7.0:1.
Kveikjukerfi tölvustýrt.
Gírkassi: 5 gíra beinskiptur, drifúr-
tak, millikassi meö læsingu, læsing
á afturöxli.
Fjöðrun: Sjálfstæö á hverju hjóli,
jafnvægisstengur að framan og aft-
an, sjálfstæöar stífur á afturhás-
ingu.
Bremsukerfi: Tvöfalt, ABS, kældir
diskar aö framan, diskar aö aftan,
aflátak.
Hrööun: 0—50 km hraöa 2,3 sek-
úndur, 0—100 km hraða 6,7 sek.
Eyösla: Innanbæjar 16 1/100 km viö
90 km jafnan hraða 7,9/100 km, við
120 km jafnan hraöa 10,4/100 km.
Mál: Þyngd 1290 kg, hámarksþyngd
1.790 kg, lengd 4,4 metrar, breidd
1,73 m, hæð 1,34 m, snúningsradí-
us 11,3 m, farangursrými 390 lítrar,
bensíntankur 90 I.
Bílar