Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 Stórfeng- leg göngu- leið t>að eru ekki mörg ár liðin síðan íslendingar uppgötvuðu hálendis- ferðir með þeim hætti sem nefndur er „trekking" á erlendum tungum. í því felst að menn ganga allt að tugi km á dag milli áfangastaða með all- an sinn útbúnað á bakinu. Auðvitað hefur fólk gengið um landið þvert og endilangt, meira að segja yfir jökla, hér fyrrum, en það voru venjulegar samgöngur. Nú hefur skemmtun og fræðsla orðið tilefnið. Þekktasta og vinsælasta göngu- leiðin er vafalítið svonefndur Lauga- vegur, þ.e.a.s. leiðin milli Þórsmerk- ur og Landmannaiauga. Hún er stik- uð og þar eru fjallaskálar til gistinga með hæfilegu millibili. Svipuð leið er tii orðin á Kili: Hringurinn Kerl- ingarfjöll — Hvítárnes. Þá mætti líka nefna llornstrandir og Lónsör- æfi. í grein þessari mun ég gera grein fyrir ótrúlega magnaðri gönguleið, sem fáir hafa farið, en ætti skilið vinsældir. Hún nær frá Nýjadal á Sprengisandsleið, um Vonarskarð, Dyngjuháls, Öskju og í Herðubreið- arlindir. Áætlaður göngutími er 5—7 dagar. Stígvél og vatnsílát fyrir óvana eða lítt vana göngu- menn er 10—15 kg. Af þessu má sjá að það þarf að vanda vaiið á útbúnaði, nota nýrri ferðavörur sem eru nær undantekningarlaust léttari en hinar gömlu og skipta byrðum eftir getu fólks en ekki með einfaldri deilingu. Gagnleg- asta aðferðin við að minnka byrð- arnar eru sú að koma matarkassa með einhverju móti í veg fyrir gönguhóp, t.d. í Drekagil (sæluhús FÍ) í Dyngjufjöllum og komast þar með hjá að bera tveggja daga mat- væli. Gleymið ekki að til er frost- þurrkaður og afar léttur matur! Af stað Gangan hefst við skála FÍ við Sprengisandsleið, við Nýjadal. Framundan eru meladrög og við göngum ekki inn í Nýjadal, heldur dal Vonarskarð og Bárðarbunga. (Ljósm. Ari T. Guftmundsson) Til ferðarinnar þarf allan venjulegan gönguklæðnað og venjulegan viðleguútbúnað miðað við árstíma og teljast júlí/ágúst bestu mánuðirnir til göngunnar. Menn verða að hafa tjald meðferð- is vegna þess að skálar eru aðeins þrír á leiðinni og stundum yfir- í Herðubreiðarlindir - eftir Ara Trausta Guðmundsson , | / -•/ %,, ;v ..., . 4k : 1» 1 : »£L Gígurinn í l'rðarhálsi. (Ljésm. Ari T. Guðmundsson) Tjaldstaöur í Rjúpnabrekkugili. (Ljósm. Ari T. Gudmundsson) fullir. Miklu varðar að ákveðnir hlutir séu teknir með vegna sér- kenna leiðarinnar. Heil dagleið er um sandbleytur, vaðla, lækjardrög og jafnvel krapaflár. Noti menn aðeins gönguskóna sína verður bleytu- volkið allt of mikið og skórnir gegnsósa. Stígvél eru þarfaþing, — eins þótt þau þyngi burðinn, a.m.k. fyrri hluta sumars. Þá þurfa menn að taka með sér vatnsílát til að hafa í bakpokan- um. Á nokkrum dagleiðanna er sannkallaður eyðimerkurbragur og vatn af skornum skammti. Og svo eru það stormgleraugun. Sá sem lendir í sandstormi í Ódáða- hrauni prísar sig sælan fyrir þau. Annað er óþarfi að nefna sérstak- lega. Menn velta stundum fyrir sér æskilegri þyngd bakpoka í göngu- ferðum. 20—25 kg pokar eru að- eins á færi vanra manna. Þeir geta líka þolað þyngri poka um hríð og hálfgildings hestburðir eru ávallt leiðinlegir. Ileppileg þyngd inn með múlanum sem er sunnan dalsins. í suðvestri sjást Hágöng- ur eins og kýli á landinu; tveir líp- arítgúlar, en nær og framundan er fjallabálkur sem heitir ógöngur. Ekki ætlum við þangað upp. Við sveigjum með dalverpinu, sem við erum komin inn í, og stefnum ská- halt upp í skarð milli Tungna- fellsjökuls og hæðanna við dal- verpið. Þarna eru fannir og frekar bratt og rétt að þræða eina vel troðna slóð. Tungnafellsjökull er gömul megineldstöð með öskju og er jök- ulskallinn inni í öskjunni og norð- an í umgjörð hennar. Við megum ekki vera að því að fara þar upp, enda gleymist jökullinn þegar Barðarbungan tekur að blasa við úr skarðinu með mörgum jökul- fossum í norðvesturhlóðunum. Hún er líka megineldstöð með öskju þótt ekkert sjáist til hennar fyrir ísbrynjunni. Þarna niðri er Vonarskarð. Úr skarðinu förum við niður fannir og brekkur, dálítið í stefnu norðaustur á Trölladyngju sem virðist óralangt í burtu, dröfnótt af snjó. Þarna bunuðu 10—15 rúmkílómetrar af hrauni í einu gosi upp á yfirborð jarðar. Hvílík firn! Útsýnið er frábært. í suðvestri eru fallegar líparítmyndanir í fjallinu Skrauta, svo kemur Köldukvíslarjökull, og reisuleg Bárðarbungan með dökkum mó- bergsfjöllum neðantil og i norð- austri opnast gáttir yfir Norður- land og þar sést framhald leiðar- innar milli Tindafells nyrst í Von- arskarði og Vatnajökuls. Beint fyrir neðan okkur rís lítill mó- bergstindur úr miðju Vonarskarði. Hann heitir Deilir. Þar ofanhallt, neðst í brekkunum, sem við göng- um niður, eru grænar grundir og laugar. Við erum í Snapadal. Þar er fyrirtaks náttstaður. Vatn og aftur vatn Á 2. degi hefjum við gönguna með því að halda í norðaustur fram með hlíðum. Við förum ekki austur fyrir Deili, heldur norður fyrir hann niður á nokkuð slétta sanda og stefnum nú í austanvert Tindafellið, sem er svo greinilegt framundan. Þar ætlum við að smeygja okkur milli fjalls og jök- uls. Þar er skriðjökultunga, sem ber heitið Rjúpnabrekkujökull og hefur ýtt upp myndarlegum jökul- görðum. Það fer eftir árferði hvernig okkar hluti Vonarskarðs reynist yfirferðar. Oft skiptast á sandar og melhryggir, ársprænur og ör- grunn, en allstór vötn (vaðlar). Menn ráða ferðinni sjálfir og velja sér leið „eftir nefinu". Stundum eru klaka- og krapalög á stórum svæðum. Holt er undir og djúpar lænur geta leynst þar. Leiðin er ekki löng, en best að fara varlega og halda hópinn ef þörf er á. Auð- vitað skánar færð eftir því sem líður á sumarið. Þegar nær dregur Tindafelli þornar á og nú taka við melholt og jökulurð sem skorin eru af lækj- um, þvert á leiðina. Við göngum upp og niður, upp og niður, alltaf með stefnu milli fjallsins og hæstu jökulöldunnar. Brátt sést yfir upptök Skálfandafljóts. Oft höfum við komist yfir ársprænur á fönn og það ætti að takast í gilj- unum, sem geyma Rjúpnabrekku- kvísl og hraunkvísl. Velja má um áfangastað. í Rjúpnabrekkugili eru mosateygingar og lindir, sem eru ágæt umgjörð í náttstað lú- inna göngumanna. Vilji menn fara lengra og fá um margt þægilegri náttstað, er að stefna áfram í NA og ganga til Gæsavatna. Það eru smátjarnir við bílaslóðina austur úr; Volgrur og kofi. Kolbrunnin eyðimörk 3. dagleiðin mun liggja um Dyngjuháls. Óvíða má finna jafn kyrfilega eldbrunnið svæði og þar. Margar gígaraðir með missand- orpnum hraunum liggja milli jök- ulsins og Trölladyngju, sum eru mjög nýleg. Til eru heimiidir um

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.