Morgunblaðið - 30.05.1984, Side 15

Morgunblaðið - 30.05.1984, Side 15
US1AHÁIÍÐ í REYKJAVÍK I7IZ JÚNÍ 1984 Sinfóníuhljómsveit fslands. Formleg setnmg Listahátíðar 1984 í Laugardalshöll á fostudag: Listamenn frá 14 löndum á 17 daga langri hátíð „ALÞJÓÐLEGAR listahátíðir eru á meóal þess, sem gerir þá staöi, þar sem þær eru haldnar, eftirsóknar- veröa heim aö sækja. Listahátíð í Keykjavík er eitt af því, sem laðar fólk aö landi okkar,“ segir í upphafi ávarps Ragnhildar Helgadóttur, menntamálaráöherra, í sýningarskrá Listahátíöar. í ávarpi menntamálaráðherra segir ennfremur: „Hátíðin er orðin að föstum lið í menningarlífi á ís- landi. Ber þar fyrst og fremst að þakka Vladimir Ashkenazy, sem var driffjöður þessarar starfsemi og studdi hana fyrstu sporin. Miklu skiptir fyrir land okkar og höfuðborg að vel takist einnig til um framhaldið, bæði að því er varðar fjölbreytni, frumleika og gæði.“ Stórviðburðir Listahátíð 1984, sú áttunda í röðinni frá upphafi, verður form- lega sett á föstudagskvöld og verð- ur þá mikið um dýrðir í Laugar- dalshöllinni. Listahátíð hefur allt frá því hún hóf göngu sína fyrir 14 árum verið stærsti viðburður á sviði menningarmála hér á landi þau ár, sem hún hefur verið hald- in. Ef að líkum lætur mun svo einnig verða nú. Þá daga sem Listahátíð stendur yfir í ár rekur hver viðburðurinn annan á sviði leik-, mynd- og tónlistar. Af erlendu gestunum þykir koma Lundúnafílharmóníunnar vafalítið merkasti atburðurinn, enda hljómsveitin talin í allra fremstu röð í heiminum. Hún heldur tvenna tónleika undir stjórn Vladimirs Ashkenazy. Þá má nefna komu söngkvennanna Luciu Valentini-Terrani, sem syngur einsöng með Sinfóníu- hljómsveit Islands, og Christu Ludwig. Báðar þykja í fremstu röð á sínu sviði. Á myndlistarsviðinu ber hæst samsýningu „Útlendingaherdeild- arinnar", 10 Islendinga búsettra erlendis, en auk þess má nefna sýningar á verkum Karel Appel og Juhani Linnovaara. Þá munu ýms- ar sýningar íslenskra listamanna verða á meðan Listahátið stendur. Tvö íslensk leikverk verða frum- flutt á hátiðinni auk þess sem gestaleikir koma utan að landi jafnt sem erlendis frá. Comedie Francaise, eitt þekktasta leikhús Evrópu, sýnir Kvennaskólann eft- Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráöherra. ir Moliére, og Borgarleikhúsið i Stokkhólmi flytur verk eftir finnsku skáldkonuna Mariu Jot- uni. Þá munu látbragðsleikarar láta að sér kveða svo um munar. Hér hefur aðeins verið drepið á nokkra erlendu gestanna. Þeir eru 'mun fleiri, en íslendingar láta heldur ekki sitt eftir liggja til þess Garðar Cortes, „veislustjóri". að gera Listahátíð í ár eftirminni- lega. Fjöldi tónlistar- og myndlist- armanna leggur rikulegan skerf af mörkum, en leiklistarfólk situr svo sannarlega ekki auðum hönd- um. Hér gefst ekki rúm til þess að tíunda alla viðburði hátiðarinnar, en vísað er í dagskrána, sem fylgir þessari kynningu á Listahátið 1984. Fjölbreytt dagskrá Svo aftur sé vikið að setningar- athöfninni í Laugardalshöllinni á föstudag hefst hún kl. 21, en húsið verður opnað kl. 20. Garðar Cortes verður veislustjóri, eins og það er nefnt i dagskrá Listahátíðar, en fyrsta atriðið verður Hátíðarmars Páls ísólfssonar i flutningi Sin- fóníuhljómsveitar íslands. Að honum loknum tekur mennta- málaráðherra, Ragnhildur Helga- dóttir, til máls og flytur setning- arræðu. Að ræðu menntamálaráðherra lokinni tekur Sinfóniuhljónm- sveitin við að nýju og leikur syrpu dægurlaga frá árnum 1964—1974 i útsetningu nemenda úr tónfræði- deild Tónlistarskólans í Reykja- vík. Hafði Karólina Eiríksdóttir umsjón með því verki. Páll P. Pálsson stjórnar hljómsveitinni. Eftir fyrri syrpuna tekur við sýn- ing íslenska dansflokksins áður en Sinfóníuhljómsveitin mætir til leiks með síðari dægurlagasyrpu sína. Eru þau lög frá árunum 1974-1984. Þvínæst verður gert hlé á dagskránni en á meðan á því stendur mun Whoopee-hljómsveit Bob Kerr skemmta gestum með hljóðfæraleik, söng og sprelli. Að afloknu hléi á dagskránni tekur fslenski dansflokkurinn við að nýju og flytur atriði er nefnist Boðið upp í dans Um miðnætti hefst dansleikur við undirleik Sin- fóníuhljómsveitarinnar. Stórsveit (Big-band) FÍH tekur þvínæst við, en hljómsveit Gunnars Þórðarson- ar mun svo bera hitann og þung- ann af tónlistarflutningnum þar til dansleiknum lýkur. Nokkrir félagar úr Morse Mime-látbragshópnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.