Morgunblaðið - 14.07.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1984
7
Hópferð á hestum
4ra daga ferö á hestum um valdar reiöleiöir veröur
farin á vegum félagsins um verslunarmannahelg-
ina.
Fararstjóri Gunnar Steinsson.
Lagt veröur af staö frá Hrafnhólum föstudaginn
3. ágúst kl. 16.00.
Næturáningarstaöir veröa í Brynjudal á Stóru
Drageyri og á Skógarhólum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins.
Þátttökugjald og staöfestingargjald þarf aö hafa
borist skrifst. félagsins í síöasta lagi föstudaginn
ZT.júUn.k. Feröanefndin.
Stóðhesturinn Hlynur 910
sem hlaut fyrstu verölaun fyrir afkvæmi á fjórö-
ungsmótinu á Kaldármelum, er til sölu. Upplýsingar í
síma 93-7021 eöa heima á Báreksstööum.
Nyir og notaöir
bílar
í nýjum og glæsilegum sýningarsal.
Árg.
MMC Colt 1200 3 dyra. Hvítur. 1983
MMC Galtant Turbo. Hvítur. 1983
MMC Galtant 1600 station. Silfur. 1980
MMC Galtant 1600 station. Brúnn. 1981
MMC Lancer 1400 sjálfsk. Drapplitur. 1981
VW Passat. Silfur. 1982
VW Passat. Blár. 1980
VW Jetta. Blár. 1982
VW Golf 5 dyra. Silfur. 1981
BMW 520 I. Grænsans. 1982
Opið frá kl. 13—17 í dag
EKLAHF
Laugavegi 170 -172 Sími 212 40
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Kjartansgata Vesturgata 46—68
Ingólfsstræti Nesvegur 40—42
Lindargata frá 1—38 Tjarnarstígur
Bergstaöarstr. 1—57
Snorrabraut 61—87
Mér líður eins og
sovéskum andéfsmanni
Hver og hver og vill og veröur
i Staksteinum í gær var fjallað fáum orðum um hið eftirsótta
embætti formanns Alþýöuflokksins og virðist sem flestir þeir er
tilheyra honum sæki fast eftir kjöri. Sighvatur Björgvinsson, fyrrum
formaöur þingflokksins, hefur með allsérstökum hætti lýst áhuga
sínum á því aö setjast í formannsstólinn. Um þetta er fjallaö í
Staksteinum í dag. Þá er einnig birt í heild ritstjórnargrein Vest-
firska fréttablaösins er fjallaöi um afstööu íslendinga til varnar- og
öryggismála í tilefni af niöurstööu könnunar sem nýlega var birt um
þessi mál.
Útlaga langar
að verða for-
maður
Síghvatur Björgvinsson,
fyrrverandi formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, er
einn þeirra sem nefndur
verður verið sem líklegt
formannsefni íslenskra
krata. Svo virðist, eins og
bent var á hér í Stakstein-
um í gær, sem verulegur
hhiti Alþýðuflokksins
stefni leynt og Ijóst að því
að ná formannsssti. Þeir
sem standa utan Alþýðu-
flokksins og fylgjast
álengdar með þeim hálf-
kulnaða neista sem þar
sést enn, furða sig mjög á
því hve eftirsóknarvert það
er að taka við embætti for-
manns og eiga það á hættu
að verða minnst í stjórn-
málasögu þess manns sem
kæfði krataglóðina.
í samtali sem DV átti við
Sighvat Björgvinsson í gær,
gæti enginn sem ekki vissi
betur látið sér til hugar
koma að þar færi fyrrver-
andi forustumaður Alþýðu-
flokksins og áður fjármála-
ráðherra í minnihhitastjórn
flokksins 1979. Þar sagði
Sighvatur Björgvinsson
meðal annars: „Þeir sem
eru í hálfgerðri pólitískri
útlegð eins og ég láta sig
ekki dreyma um að verða
formenn Alþýðuflokksins.
Mér líður eins og sovésk-
um andófsmanni í stofu-
fangelsi, en af því að verið
er að ræða um þetta þá
verð ég að segja eins og er,
að formennska í Alþýðu-
flokknum er ekki eftirsótt-
asta staðan á hinum póli-
tíska himni.“
Þetta væl Sighvats
Björgvinssonar er furðu-
legt og ekki til þess fallin
að auka hróður hans og
allra síst möguleika hans
til að ná kjöri í formanns-
stólinn. Það er Ijóst af
löngun fymim fjármála-
ráðherra (að vísu ekki
nema f nokkra mánuði) f
áhrifastöðu í flokksleifum
og svo sterk er löngunin að
hann lætur hafa sig út í
það að svara spurningum
fjölmiðia með dæmalausu
væli, rétt eins og Iftill
strákur er ekki fær það
sem hann vill.
Viljihíns
þögla meiri-
hluta
Þann 9. júlí síðastliðinn
fjallaði Vestfirska frétta-
blaðið í ritstjórnargrein um
afstöðu íslendinga til vam-
ar- og öryggismála í tilefni
af skoðanakönnun Ólafs Þ.
Harðarsonar. Kitstjórnar-
greinin fer hér á eftir í
heild:
„Rétt einu sinni hefur
það verið undirstrikað, sem
fyrst var gert lýðnum Ijóst
við undirskriftasöfnun Var-
ins lands fyrir réttum tíu
árum, að yfirgnæfandi
meirihluti fslendinga vill
taka þátt í varnarsamstarfi
vestrænna þjóða.
Meginniðurstaða nýlegr-
ar könnunar á viðhorfum
manna til öryggis- og utan-
ríkismála er sú, að höfuð-
atriði þeirrar stefnu, sem
fylgt hefur verið undanfar-
in ár, þ.c. að vera í Atl-
antshafsbandalaginu og
leggja því til land og að-
stöðu lyrir varnarlið við
Kefiavíkurflugvöll, styðst
við vilja meginþorra þjóð-
arinnar.
Þetta þarf engum að
koma á óvart íslendingar
hafa rótgróna andstyggð á
hverskonar ófrelsi og
mannfyrirlitningu. Réttur
einstaklingsins til þess að
lifa frjáls í því umhverfi,
sem hann kýs og að halda
fram skoðunum og berjast
fyrir þeim á heiðarlegan
hátt eru gæði, sem við höf-
um nýlega unnið úr greip-
um útlendinga með langri
og harðri baráttu.
Jafnvel fjórðungur
þeirra kjósenda Alþýðu-
bandalagsins, sem spurðir
voru lýstu sig fylgjandi að-
ild íslands að NATO. Augu
þeirra eru þá líklega að
opnast fyrir því að ófreLsi
og kúgun fylgir hvarvetna
kommúnisma og sovéskum
áhrifúm, sem ættu greiða
leið að okkur ef við nytum
ekki varnarsamstarfs við
bandamenn okkar á Vest-
urlöndum.
Hitt skyldu menn og
gera sér Ijóst, að aðstaða
fyrir varnarliðið er það
eina, sem við leggjum af
mörkum í þessu varnar-
samstarfi. Því er það fyrir
neðan virðingu okkar sem
fullvalda þjóð að bolla-
leggja um gjaldtöku fyrir
þá aðstöðu af þeim, sem
leggja til mannafia og
tækjabúnað til varnar lýð-
ræði og frelsi á IslandL"
íslandsmótið I. deild
Stórleikur á Hlíðarenda
í dag kl. 14.
Valur — Víkingur
HVERJIR VINNA LEIKINN??
Allir á Hlíðarenda í dag.
Valur
Hópferö til Akureyrar á leik Vals
og KA 27. júlí nk. Uppl. gefa
Jóhann i s. 54499 á daginn og
Ellert í s. 79193 á kvöldin.