Morgunblaðið - 14.07.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1984
17
aðarsömum listumsvifum ættu að
hugleiða hvernig það þjóðfélag liti
út er rúið væri allri list, jafnvel þó
menn sættist á það að slíkt sam-
félag manna sé ekki til á jarð-
kringlunni okkar. Listsköpun er
annað og meira en föndur. Hún er
samofin öllum umsvifum manna
og reyndar ein af meginundirstöð-
um þess er greinir menn frá dýr-
um. í listsköpun mannsins er fólg-
in keðjuröð hugmyndanna, með |
beinum tengslum við þróunarsögu
tækni, visinda, siðvæðingar og
trúarbragða og þannig hefur hann
varðveitt og þroskað fegurðarskyn
sitt í leit að betra mannlífi. Listin
er kennari margra hluta og mann-
inum lífsnauðsyn og þvi er lista-
hátíð ekki bruðl, heldur hátið, þar
sem dregið skal saman allt það
besta og mesta i sköpun andlegra
verðmæta. Ef listahátíð er sköpuð
skilyrði til að sinna þessu hlut-
verki, mun hún verða aflvaki
nýrra hugmynda. Fjárhagsleg af-
koma listahátíðar byggist á fram-
boði hennar og hvernig til tekst
um kynningu á þessu framboði.
Með því að bjóða upp á litilsverða
hluti og gera sem minnst til að
kynna framboðið, er verið að búa
til reikningsdæmi með óhagstæðri
útkomu. Þetta er lögmál, sem allir
geta verið sammála um, og gildir
ekki aðeins í listsölu, heldur og í
öllum viðskiptum manna.
Niðurstöður
Að endingu mætti draga megin-
atriði þessara hugmynda í eftir-
farandi niðurstöður.
1. Setja þarf lög um listahátíð og
tilgreina tekjustofna. Tekjur gætu
verið smá skattar er leggja mætti
á öll listumsvif i landinu, hluti af
endurgreiðslum ríkisins á sölu-
skatti og einnig hluti af greiðslu
ríkisins vegna fjölföldunar og auk
þess framlag, er bundið væri í
fjárlögum hverju sinni.
2. Tryggja þarf sjálfstæði fyrir-
tækisins gagnvart þrýstihópum
hagsmunaaðila, en gefa heildar-
samtökum listamanna tækifæri
til þátttöku í stjórn fyrirtækisins.
Listahátíð á ekki að vera stjórn-
unarvettvangur fyrir listamenn,
heldur fyrirtæki er kaupir af lista-
mönnum það sem þeir hafa upp á
að bjóða af eftirtektarverðu list-
efni.
3- Tryggja þarf fyrirtækinu sam-
starf við allar þær stofnanir er
fást við listmiðlun og náið sam-
starf við fjölmiðla.
4. Þá er nauðsynlegt að gerður
verði samningur við þau fyrirtæki
er hefðu áhuga og getu til að
leggja fram fé í formi starfslauna
og eða til kaupa á listefni.
Hvað svo sem kann að ske varð-
andi listahátíðina, er ljóst að
framtíð hennar er ekki trygg,
bæði vegna öryggisleysis í fjár-
málum og þunglamaleika í stjórn-
un. Þessu má kippa í lag og þess
vegna vildi undirritaður taka sér
stöðu með þeim er vilja halda
glæsilega listahátíð, sem allir ís-
lendingar gætu verið stoltir af.
VLADIMIR
ASHKENAZY
HELGA
INGÓLFSDÓTTIR
Fflharmóníuhljómsveit Lundúna borgar.
LUCIA
VALENTINI TERRANI
Ábati
Margumrætt tap á listahátíð ’84
er sjálfsagt hægt að útskýra á
ýmsa vegu. Ekki hefur undirritað-
ur áhuga á slíkri umræðu, enda
ekki nógu kunnugur öllum mála-
vöxtum varðandi rekstur fyrir-
tækisins, til þess að geta fjallað af
nokkru viti um svo margslungið
mál. f umræðum um listahátíð
gleymist oft, að af slíkri starfsemi
er margvíslegur fjárhagslegur
ábati, sem ekki kemur í kassa
fyrirtækisins, en ábati, sem kemur
samfélaginu til góða og tengist
margbrotinni hreyfingu fjár-
magns í beinum tengslum við
starfsemi hátiðarinnar. Sá ábati
af góðri listahátíð, sem mestu
máli skiptir, verður ekki reiknað-
ur til fjár né metinn á ákveðinni
stundu. Þar gilda lögmál þess
ófyrirséða, er tíminn einn leiðir í
ljós.
Þeir sem setja sig á móti kostn-
Ekki yrði aðeins um stórfelldan
sparnað að ræða heldur stórlækk-
ar afgreiðslutími einnig og í mörg-
um tilfellum gæti verið um hreina
lagerframleiðslu að ræða.
Einnig yrði um betri hráefnis-
nýtingu að ræða hjá framleiðend-
um þar sem innkaup yrðu mark-
vissari en áður.
Af veðurfarslegum ástæðum er
byggingartími ár hvert stuttur
hér á landi og því mikilvægt fyrir
húsbyggjendur að nota hann sem
best.
Af þessum sökum eru framleið-
endur, t.d. glugga, yfirhlaðnir af
verkefnum á þessum tíma og
verða húsbyggjendur oft á tíðum
að bíða þar sem nánast allir
gluggar eru sérsmíði í dag.
Það er því erfitt að reikna til
fjár hversu mikill fjárhagslegur
skaði er af þessu „staðalleysi" en
beinn kostnaður fyrir meðalstórt
einbýlishús lítur út samkvæmt
meðfylgjandi útreikningsdæmi og
er um að ræða sömu uppbyggingu
í útihurðum og gluggum og að efn-
isliðurinn væri sá sami.
Vönidokkar f oérmáli í staAlmóri HtærA Sparnftður
Gluggar úr u.s. furu 59.700 44.800 14.900
Gluggagrindur úr O.P. 24.100 18.100 6.000
Tvöfalt gler 64.900 48.700 16.200
Svalahurðir 3 stk. 23.400 17.500 5.900
Aðalinngangshurð 36.800 25.700 11.100
Bflskúrshurðir 2 stk. 31.900 23.700 8.200
Gönguhurð í bflskúr 12.700 9.800 2.900
253.500 188.300 65.200
Sparnaður per hús yrði því
65.2ÍOO eða um það bil 25,7% af því
sem húsbyggjendur greiða í dag
fyrir þessa vöruflokka. Árið 1982
voru byggð alls 1436 einbýlishús
og raðhús á öllu landinu. Sparnað-
ur á þessum húsum yrði því tæpar
94 millj. kr. Samkvæmt vísitölu
byggingarhluta frá Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins kost-
ar fullklárað einbýlishús í april
1984 kr. 3,13 millj. því hefði verið
hægt að byggja 30 húsum fleira
með sama tilkostnaði. Þá eru
ótaldar aðrar byggingar svo sem
fjölbýlishús, opinberar byggingar
og svo framvegis.
Það er því mikilvægt að Iðn-
tæknistofnun Islands, hönnuðir og
framleiðendur komi sér saman um
útgáfu þessa staðals og að honum
verði síðan framfylgt með bygg-
ingarreglugerðarákvæði.
Jón Þór Hjaltason er bygginga-
tæknifræðingnr og rerksmiöju-
stjóri Yölundar hf.