Morgunblaðið - 14.07.1984, Side 19

Morgunblaðið - 14.07.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1984 Ferraro yaraforsetaefni: Jákvæð viðbrögð í Bandaríkjunum Marcunise, (ulfu, 13. júlí. AP. „ÞETTA ER hreint út sagt frábært,“ sagdi Rosa Ferraro Andrisani, 93 ára gömul frænka Geraldine Ferraro, sem er nýútnefnd sem varaforseta- efni Walter Mondales. Ættingjar Ferraros á Ítalíu föngnuðu ákaft og skáluðu í kampavíni þegar fréttir af útnefningunni bárust, en faðir Ferraros ólst upp í þessum litla bæ rétt norður af Napólí. Viðbrögð við vali Mondales voru Kennedy, öldungadeildarþingmað- yfirleitt jákvæð í Bandaríkjunum, en blaðafulltrúi Ronald Reagans, forseta, sagði að George Bush teldist nú samt hæfari varafoseti en Geraldine Ferraro vegna mik- illar reynslu í utanríkismálum. Konur fögnuðu þó þessu takmarki, sem markar timamót í stjórn- málasögu Bandríkjanna, þar sem konur hafa aldrei komist jafn langt og nú. Jafnvel Elisabeth Dole, sem á sæti í stjórn Reagans, kallaði val Ferraros „merkilegt skref". Demókratar voru að vonum ánægðir með val Mondales og Gary Hart, sem um tíma var tal- inn koma til greina sem varafor- setaefni, sagði að það væri mikil framför fyrir konur í bandarísk- um stjórnmálum. Edward M. ur, studdi Ferraro frá byrjun og sagði að tími væri til kominn fyrir demókrataflokkinn að hugsa al- varlega um framboð kvenna til forseta og varaforseta. Stjórnmálafræðingar telja ekki að kvenvaraforsetaefni breyti mikilu fyrir möguleika Mondales í nóvember, en búast þó við að kjör- sókn aukist um a.m.k. 2—4%. Þeir telja að ítalskur uppruni hennar og að hún er heitttrúaður kaþól- ikki, komi miklu frekar til með að auka fylgi Mondales. Ferraro og Mondale hófu kosn- ingabaráttu sína í Elmore, Minn- esota, heimabæ Mondales, í dag og fara svo til Kaliforniu til að undir- búa sig fyrir landsfund demó- krata, sem hefst á mánudag. Kyndill til viðgerðar Verkamenn að vinnu við kyndil Frelsisstyttunnar í New York, eftir að hann var tekinn niður til viðgerðar. Miklar viðgerðir og endurbætur hafa farið fram á Frelsisstyttunni að undanförnu og er þeim hvergi nærri lokið enn. Fara þær fram í tilefni 100 ára afmælis Frelsisstyttunar. IRA-með- limur skot- inn til bana Londonderry, N-írUndi, 13. júlí. AP. Óeinkennisklæddur lögreglu- maóur skaut til bana mann og hand- tók þrjá aóra, sem grunaðir eru um aóild að hryðjuverkasamtökum írska lýðveldishersins og taldir eru hafa komið fyrir sprengjum í verk- smiðju í litlum bæ á N-lrlandi. Við leit í verksmiðjunni fundust fjórar sprengjur sem mennirnir höfðu komið fyrir og sagði lögregl- an að verksmiðjan hefði fuðrað upp ef sprengjurnar hefðu sprung- ið. í Londonderry fleygðu IRA- meðlimir um 300 bensínsprengj- um að lögreglu i 13 klukkustunda óeirðum, sem dvínuðu snemma á föstudag. Alls hafa 38 manns látið lífið í óeirðum á N-írlandi á þessu ári. Alkirkjuráðið: Emilo Castro kjörinn fram- kvæmdastjóri Genr, 12. júlí. AP. SÉRA Emilio Castro frá Uruguay var í dag kjörinn framkvæmdastjóri Al- kirkjuráðsins á arlegum fundi 150 manna miðstjórnar ráðsins, sem haldinn var í Genf. Talið er að Castro, sem er 57 ára að aldri, hafi fengið atkvæði fleiri en tveggja þriðju hluta full- trúanna. Fyrirrennari Castros var séra Philip Potter, sem var kunnur formælandi sjónarmiða þjóða þriðja heimsins. Castro flúði frá Uruguay fyrir tólf árum vegna andstöðu við stjórnvöld, en álitið er að hann muni ekki fylgja jafn pólitískri stefnu og fyrirrennari hans og leggja meiri áherslu á trú- arleg efni. Maxwell kaup- ir Daily Mirror Lomlon, 13. júlf. AP. Blaðakóngurinn Robert Maxwell hefur keypt breska dagblaðið The Daily Mirror, fyrir um fjóra og hálf- an milljarð íslenskra króna. Maxwell, sem eitt sinn var þing- maður Verkamannaflokksins, hafði lengi haft hug á að festa kaup á The Daily Mirror, eina blaðinu sem stutt hefur dyggilega við bakið á Verkamannaflokknum. Maxwell er talinn harsvíraður í viðskiptum og hættir ekki fyrr en takmarki hans er náð, sem kom heldur betur í ljós er hann keypti The Mirror, sem er gefið út í um 3,3 milljónum eintaka á dag. Rússar veita írökum lán ParÍH, 13. nálfi. AP. SOVÉTRÍKIN hafa ákveðið að veita írökum langtímalán upp á um 2 mílljarða bandarikjadala, á mjög viðráðanlegum kjörum. Varaforsætisráðherra íraks, Tariq Aziz, sagði að her-, stjórn- og fjármálasamskipti Iraka við Sovétríkin væru nú komin í eðli- legt horf og írak myndi héðan í frá kaupa vopn sín frá Rússum. FLUOHDEÁIit sérfræóinganna liggurfyrk FLUORjDE lecay pi'evel impri /Sterkar/ í/nur' hjá rnérpýða .Sferkar/ fennur \hjá pén , Fluoride Plus Signal 2 er framleitt í samræmi við eina blönduna sem sérfræðinga- hópurinn, sem minnst er á hér við hliðina, rannsakaði. í henni er þó 40% meira af flúorupplausn. Sérfræóingar í tannvernd og tannsjúkdómum hafa fengið verk- efni fyrir Alþjóólegu heilbrigóismála- stofnunina (WHO). Þeir hafa staó- fest aÓ vissar tannkremsblöndur draga úr tannskemmdum. (Sjá: Bulletin of World Health Organis- ation, 60 (4): 633-6381982). o. l'vcV*'* XPSIG 55

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.