Morgunblaðið - 14.07.1984, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚLl 1984
26
t
Móöir okkar,
GUÐLÍN KATRÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Háeyri, Eyrarbakka,
lést í Sjúkrahúsi Suöurlands, Selfossi, 12. júlí.
Jóna Ásmundsdóttir,
Helga Ásmundsdóttir.
■ Móöir mín. Y
GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
lést í Landakotsspítala 12. júlí sl. Fyrir hönd aöstandenda, Garöar Sigurösson.
t
Eiginkona mín,
RAGNHEIDUR FRIDRIKSDÓTTIR,
Björk, Vestmannaeyjum,
lést aöfaranótt 12. júlí í Sjúkrahúsl Vestmannaeyja.
Haraldur Þorkelsson.
t
VILBORG ÞJÓOBJARNARDÓTTIR
trá Akranesi,
andaöist í Landspítalanum þann 12. júlí.
Kristján Þorsteinsson,
Sigríður Kristjánsdóttir, Jón Otti Sigurösson,
Óskar Indriöason, Selma Júliusdóttir,
Valdimar Indriöason, Ingibjörg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
LAUFEY BJARNADÓTTIR,
Bólstaöarhlíó 50,
lést 3. júli sl.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Þökkum samúö og hlýhug.
Edda Gísladóttir, Þröstur Laxdal,
Gígja Gísladóttir Girard, Charles Girard,
Gríma Gísladóttír, Einar Gústavsaon
og barnabörn.
t
Hjartkær eiginkona, móöir, tengdamóölr og amma,
INGIBJÖRG JÚLÍUSDÓTTIR,
Tjarnarbóli 12,
andaöist 2. þ.m. i Landspítalanum.
Útförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Viö þökkum ættingjum, vinum og hjúkrunarfólki samúö og hlýju.
Haukur Óskarsson,
Gunnar Felzmann, Hrafnhildur Björk Siguröard.,
Sigrid Anna Felzmann, Yngvi Guómundsson
og barnabörn.
t
Móöir mín og tengdamóöir,
RAGNHILDUR LOFTSDÓTTIR,
Hátúni 10B,
veröur jarösungin frá Eyrarbakkakirkju i dag, laugardaginn 14. júlí,
kl. 14.00.
Ragna Jóhannsdóttir,
Gísli Ólafsson.
Maöurinn minn, faöir okkar og sonur,
ÁGÚST INGI DIEGO,
Bárugötu 34,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaglnn 16. júlí kl.
10.30.
Lára Cumminga Diego,
Rakel Diego, Hrafn Ingi Diego,
Selma Ágústsdóttir, Uni G. Hjálmarsson.
Kveðjuorð:
Friðþjófur Ingi
Sverrisson
Fæddur 26. mars 1975
Dáinn 9. júlí 1984
Stundum skortir manninn
skilning á tilgangi lífsins, hvers-
vegna lífið gangi svona fyrir sig.
Einmitt núna þegar lítill, fallegur
drengur deyr þá er maður sleginn
slikum hugsunum. Þá er gott að
geta beðið til Guðs um hjálp hans
og styrk og Guð veitir hjálp.
Ég man þegar ég fékk bræðurna
Friðþjóf og Sverri fyrst á fund í
KFUM og ég vissi strax að þar
voru grallarar á ferð. En það eru
til skemmtilegir grallarar og þeir
voru af þeirri tegundinni. Þeir
þurftu stundum áminningar við
en Friðþjófur passaði alltaf upp á
bróður sinn þegar talað var út frá
Guðs orði. Hann fylgdist alltaf
mjög vel með því sem sagt var.
Hjá okkur í KFUM mun minn-
ingin um einlægan og hreinskilinn
dreng ávallt lifa. Friðþjófur lifir
hjá Guði og er það okkur eftirlif-
andi huggun harmi gegn. Ég votta
foreldrum og bræðrum Friðþjófs
mína dýpstu samúð.
F.h. KFUM Breiðholti,
Árni Þór Arnþórsson
Á einum besta góðviðrisdegi
sumarsins, þegar allir sem geta
reyna að komast út í blíðuna og
vinnustöðum er jafnvel lokað til
að starfsfólkið fái notið sólar eru
litlir drengir á ferð við náttúru-
skoðun og leik við Elliðaárnar. í
einni svipan hverfur fegurð nátt-
úrunnar viðstöddum. Sviplegt slys
hafði orðið. Elliðaárdalurinn, sem
á liðnum árum hefur verið unaðs-
reitur ótalinna ungmenna I leikj-
um sínum, hefur þennan dag orðið
vettvangur dýpstu sorgar.
Friðþjófur Ingi var nemandi
Breiðholtsskóla. Hann var með
duglegustu nemendum í sínum
árgangi, drengur sem miklar vonir
voru bundnar við.
Tveir nemendur Breiðholtsskóla
hafa nú i sumar farist í slysum og
er það mikil blóðtaka.
Fyrir hönd kennara og starfs-
fólks skólans votta ég foreldrum,
bræðrum og öðrum aðstandendum
Friðþjófs Inga dýpstu samúð í
sorg þeirra. Minning hans lifi.
Þorvaldur Óskarsson
skólastjóri.
Þegar blöðin bera okkur fréttir
um lát lítils drengs, sem ferst af
slysförum, setur okkur hljóð. Þeg-
ar viðkomandi er náinn frændi
hverfum við inn í stórt tóm. Hugs-
un verður ekki að orðum. Við
spyrjum okkur spurninga, sem
enginn fær svarað.
Um síðir læðast minningarnar
fram. Glaðlyndur, blíður, spurull
Unnur Jónsdótt-
ir - Minningarorð
Fædd 10. ágúst 1912
Dáin 19. júní 1984
Mig setti hljóða þegar ég heyrði
að Unnur vinkona mín væri látin
þrátt fyrir að ég vissi að hún væri
búin að vera sjúklingur i mörg ár.
Ég vissi að stundum kom fyrir,
þegar hún var í búðarferð eða fór
að heimsækja börn sín, að hún var
flutt fyrirvaralaust í sjúkrahús.
Þar breiddu systurnar góðu faðm
sinn á móti henni og reyndu að
létta henni öndunina ásamt lækn-
unum.
Mig langaði að minnast sam-
fylgdar okkar Unnar með nokkr-
um orðum. Ég veit að það er bæði
lærdómsríkt og þroskandi að vera
í návist slíkra kvenna sem Unnur
var. Hún var alltaf að starfa og
hlúa að einhverju en ekki að hugsa
um sig eða sjúkdóm sinn. Hún var
ein af brautryðjendum Orlofs
snæfellskra húsmæðra. Þær konur
sem ruddu þessu góða málefni
braut þurftu að leggja mikla
vinnu á sig. Ég var ekki komin í
orlofsnefndina þá en mamma min
var í henni. Þess vegna átti ég gott
með að fylgjast með því hvernig
þær störfuðu á einn og annan hátt
til að afla fjár. Því meiri peningar
sem voru til því fleiri konum var
hægt að bjóða í orlofsdvöl; þannig
var hugsað.
Sem betur fór lukust fljótlega
upp augun á almenningi fyrir
þessu góða málefni og margur var
í þorpunum á Snæfellsnesi sem
veitti okkur lið á einn eða annan
hátt, keyrði okkur á milli staða án
endurgjalds og ég tala ekki um
ferðirnar hennar Unnar, en sjálf
ók hún sínum eigin bíl. Margar
samverustundirnar eru ógleym-
anlegar sem við áttum hver hjá
annarri, svo ekki sé minnst á
stundirnar á hinu fagra Helga-
felli. Á þessum fundum var rabb-
að saman og drukkinn kaffisopi.
t
Innilegar þakklr sendum vlö þelm sem sýndu okkur samúö og
hlýhug viö andlát og útför
FANNEYJAR JÓNASDÓTTUR,
Helgamagrastræti 51.
Siguröur Eiríksson,
Styrkár og Laila, Hékon og Emma,
Jónas og Hulda, Sigurjón og Béra,
Ásta Svandís og Valur, Rósa Margrét og Ed.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vlnarhug vegna andláts og
útfarar mannsins míns, fööur okkar. stjúpfööur, tengdafööur og
afa,
PÁLS ELÍASSONAR,
bónda og hrappstjóra,
Saurbss, Holtahrsppl.
Margrét Erlsndsdóttir,
Viöar Pélsson,
Elías Pélsson,
Jón Pélsson, Quórún KJartansdóttir,
Ólafur Pélsson, Guörún Hélfdénardóttir,
Rsynir Guimundsson,
Péll G. Viöarsson.
og tápmikill strákur. Eðlislæg for-
vitni skín úr andlitinu. Ekki mikill
tími að bíða svars. Spennandi
verkefni allt um kring.
Við minnumst hans aðallega úr
fjölskylduferðum, jólatrés-
skemmtunum og spilakvöldum
fjölskyldunnar. Álltaf sami góði,
glaðlyndi strákurinn.
Að sjá ekki Fiffó framar þegar
fjölskyldan kemur saman, er til-
hugsun sem við seint fáum skilið.
Að eitthvað þessu líkt henti fjöl-
skylduna okkar vorum við ekki
viðbúin frekar en aðrir.
Sár er harmur Sverris, Elísa-
betar og bræðranna. Skarð er rof-
ið í fjölskyldu sem aldrei verður
fyllt. Þau, afi og amma í Heiðar-
gerði sem og allir aðrir ættingjar
eiga um sárt að binda. Þeim öllum
vottum við okkar dýpstu samúð. í
hugum okkar lifir minning um
góðan dreng í samhentri fjöl-
skyldu.
Heimir, Ingibjörg Sif, og Jónas Már
En við urðum líka að telja aurana
og athuga hvað hver okkar mætti
bjóða mörgum konum í orlofsdvöl
í sinni heimabyggð. Vorum við
bæði glaðar og hreyknar er
oddvitar okkar létu okkur hafa
ríflegt framlag sem var okkur
mikil hvatning.
Við áttum því láni að fagna að
geta boðið upp á orlofsdvöl í mörg
ár á Hótel Búðum, en þá var Lóa
Kristjánsdóttir hótelstýra þar og
var hún bæði góður gestgjafi og
fullorðnu konunum sem besta
móðir. Verður henni aldrei full-
þakkað þetta.
Unnur mín var oft lasin i þess-
um ferðum en um það vildi hún
aldrei tala. Lasleikinn var látinn
víkja fyrir léttri lundu. Henni leið
vel í þessu starfi sínu. Það var eitt
af svo mörgu sem hún fékkst við.
Hún var ánægð enda gaf Guð
henni 6 yndisleg börn sem er
hverri móður svo mikill sigur.
Einnig átti hún góð tengdabörn og
elskuleg lítil ömmubörn. Hún átti
góðan mann, Eirík Helgason raf-
virkjameistara. Þau voru mikið
hvort fyrir annað og fékk ég að sjá
það og finna er hún lá sína erfiðu
sjúkdómslegu fyrir nokkrum ár-
um á Landspítalanum. Hún brosti
alltaf og sagðist vera að hressast
og þegar ég sá blika tár í augum
Eiríks vissi ég hvað hún var hon-
um mikils virði, ekki sfst þegar
umstangið minnkaði og þau voru
orðin tvö heima. Ég veit að þau
eru nú sæl því stutt var á milli
þeirra.
Börnum þeirra og öðrum ástvin-
um votta ég innilega samúð mína
og Unni þakka ég fyrir góða sam-
fylgd og bið henni blessunar Guðs.
Ásta Friðbjarnardóttir