Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
HVAÐ ER AÐ GERAST UM
VERSLUNARMANNAHELGINA ...
Mikill fjöldi íslendinga sækir útihátíðir um verslunarmannahelgi ár hvert.
Laugar:
Megas og
SumargJeðin
Laugahátíðin stendur frá
föstudegi til mánudags og er
frítt inn á tjaldsvæðið á henni
alla dagana. Bubbi Morthens og
Megas koma fram, auk fjölda
annarra skemmtikrafta. Dansað
verður föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld, keppt verður
í skrykkdansi laugardag og
sunnudag og á sunnudaginn
mætir Sumargleðin og haldið
verður stórbingó fyrir alla fjöl-
skylduna. Þá verða kvikmynda-
sýningar alla dagana, þannig að
það ætti ekki að væsa um fólk
fyrir norðan.
V estmannaeyjar:
Dans, bjargsig
og brennur
á Þjóðhátíð
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyj-
um er að verða með hefðbundn-
ari hátíðum, sem landsmönnum
stendur til boða um verslunar-
mannahelgina og ætti enginn að
verða svikinn af henni nú frekar
en endranær.
Meðal skemmtikrafta má
nefna Halla og Ladda, Hálft i
hvoru, Björgvin Halldórsson,
eftirhermuna Jóhannes frá Ingj-
aldssandi og Gretti Björnsson,
hinn góðkunna harmonfkuleik-
ara, auk söngvaranna Bjartmars
Guðlaugssonar og Bobby Harri-
son. Kynnir og stjórnandi á há-
tíðinni verður Árni Johnsen en
hátíðahöidin eru í höndum
íþróttafélagsins Þórs í Vest-
mannaeyjum að þessu sinni og
allur undirbúningur unninn í
sjálfboðavinnu. Messa og hátíð-
arræða verður flutt af Helga
Sæmundssyni og að sjálfsögðu
gleyma Eyjamenn ekki „þjóðleg-
um“ íþróttum á borð við bjarg-
sigið.
Verð á aðgöngumiðum verður
kr. 1.000 og auk þess, sem talið
hefur verið þegar, verður boðið
upp á brennu og flugeldasýn-
ingar að ógleymdum dunandi
dansi.
BSÍ með ferðir
á helstu hátíðir
FERÐIR verða frá Umferð-
armiðstöðinni í Reykjavík á
allar helstu útihátíðirnar.
Þaðan er hægt að komast í
Þjórsárdal, í Galtalæk, Þjóð-
hátíðina í Eyjum, Húsafell,
Logaland, Þórsmörk, Laug-
arvatn og til Þingvalla. Ferð-
ir eru alla daga frá föstudegi
til mánudags. Allar nánari
upplýsingar eru veittar á
BSÍ.
Atlavík:
Ringo Starr
og Stuðmenn
Þó að ýmsu sé til tjaldað um
þessa helgi verður Atlavík víst
eini hátíðarstaðurinn, sem býður
upp á ósvikinn Bítil um verslun-
armannahelgina. En eins og
kunnugt er, mun Ringo Starr
verða þar viðstaddur, áSamt
konu sinni, og er ekki að efa, að
marga fýsir að berja einn þess-
ara frægu fjórmenninga augum.
Innlendur heiðursgestur hátíð-
arinnar verður Jón Hjartarson
leikari og meðal annarra, sem
fram koma, má nefna hljóm-
sveitirnar Stuðmenn og Dúkku-
lísurnar, leikflokkinn Svart og
sykurlaust og ýmsa aðra fjöl-
listamenn.
Laugardag og sunnudag fer
fram hljómsveitakeppni og mun
Ringo Starr afhenda sigurvegur-
unum í þeirri keppni verðlaunin.
Margt fleira verður til
skemmtunar á hátíðinni, sem
hefst á föstudag og stendur til
sunnudags, m.a. varðeldar og
flugeldasýning.
Það er UÍA sem stendur að
hátíðinni og eins og flestum mun
kunnugt þá er Atlavík að finna i
Hallormsstaðaskógi.
Borgarfjörður:
Upplyfting
á Logalandi
Þrír dansleikir verða haldnir á
Logalandi um verslunarmanna-
helgina á vegum UMSB og leikur
hljómsveitin Upplyfting á þeim
öllum.
Ýmislegt fleira verður til
skemtunar, s.s. útihljómleikar,
óvæntar uppákomur og fleira.
Tjaldstæði verða við Logaland
og á kvöldin verða varðeldar
kyntir. Sæmundur sér um sæta-
ferðir frá BSÍ, Akranesi, Borg-
arnesi og Húsafelli.
Aðgangur inn á tjaldsvæðið
verður 250 til 300 krónur.
Galtalækjarskógur:
Tívolí og
dansleikir
fyrir börn
og fullorðna
í Galtalækjarskógi fer að
venju fram bindindismót og þvi
ætti ekki að væsa um alla fjöl-
skylduna þar. Aðgöngumiðinn
kostar kr. 600 fyrir fullorðna en
hugsað er fyrir þörfum fleiri
kynslóða, því m.a. verður starf-
rækt tívolí á staðnum. Hljóm-
sveit Ólafs Gauks og Svanhildur
leika fyrir dansi og diskótekið
Devó fyllir upp í eyðurnar, ef
einhverjar verða. Stefán Baxter,
skrykkdansari leikur listir sínar,
haldinn verður barnadansleikur
með skemmtikröftunum Jörundi
Guðmundssyni, Sigurði Sigur-
jónssyni leikara og Erni Árna-
syni, en þeir munu jafnframt
koma fram á kvöldvökum.
Hljómsveit
Geirmundar
í Miðgarði
Dansinn verður stiginn með
hjálp Hljómsveitar Geirmundar
Valtýssonar í Miðgarði í Skaga-
firði föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld um þessa versl-
unarmannahelgi og verður það
væntanlega vel þegið af hesta-
mönnum, sem leið eiga um á leið
sinni á eitthvað af hesta-
mannamótunum þremur, sem nú
standa yfir fyrir norðan.
Húnaver:
Gautar á
Húnagleði
Húnagleðin í Húnaveri býður
upp á dansleiki frá föstudegi til
sunnudags um helgina og verður
hljómsveitin Gautar frá Siglu-
firði þar fremst í flokki en auk
hennar koma fram „Bigband" og
Sverrir Stormsker. Tjaldstæði
eru skammt frá Húnaveri og að-
staða góð. Aðgangur að tjald-
stæðinu er ókeypis, en miðar á
dansleikina kosta kr. 350. Sæta-
ferðir verða að Húnaveri um
helgina.
Þjórsárdalur:
Gaukurinn ’84
I Þjórsárdalnum standa Hér-
aðssambandið Skarphéðinn og
Ungmennasamband Kjalarnes-
þings að útisamkomunni Gauk-
urinn ’84. Þetta er annað árið í
röð, sem þessi tvö stærstu hér-
aðssambönd innan UMFl halda
útisamkomu í Þjórsárdal og tóku
um 3.00 manns þátt i gleð-
skapnum í fyrra.
Eins og síðast verður um fjöl-
breytta skemmtidagskrá að
ræða. HLH-flokkurinn mun
koma fram, sýndur verður
skrykkdans, Kizaflokkurinn sýn-
ir bardagalist og keppt verður í
forníþróttum. Þá verða hljóm-
leikar, flutt verður hátíðarræða
og margt annað verður til
skemmtunar.
Hljómsveitirnar BARAflokk-
urinn og Lótus leika fyrir dansi
öll kvöldin á tveimur pöllum frá
kl.21.00 — 3.00. Auk þess dunar
diskótekið Stúdíó alla helgina.
Verðið er kr. 900 og sætaferðir
verða alla helgina til og frá
mótsstað, en þær kosta kr. 200
aðra leiðina.
Náttúrufegurð er mikil í
Þjórsárdal, fallegir trjálundir og
hrikalegt landslag skapa sér-
stætt og heillandi umhverfi. Oft
er mesta blíðviðri í dalnum þótt
rigni á höfuðborgarsvæðinu og
jarðvegurinn er þannig að hann
þornar fljótt þegar styttir upp ef
rignt hefur.
Videy:
Seglbretti og svart-
hvítir draumar
Viðeyjarhátíðin hefst í dag,
föstudag, upp úr hádeginu og
gefst fólki kostur á tíðum ferð-
um frá Sundahöfn með Haf-
steini Sveinssyni hátíðardagana
þrjá. Stórdansleikur verður
haldinn fyrsta kvöldið og leika
þar hljómsveitirnar Kikk,
Toppmenn, Pardus og Hljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar.
Það kvöld verður líka mikil flug-
eldasýning, sem Hjálparsveit
skáta stendur fyrir.
Dagskráin á laugardaginn
hefst eftir hádegi og þar koma
m.a. fram Vonbrigði, Slagverk-
ur, Oxsmá, Svarthvítur draum-
ur, Tikk Takk, Kukl o.fl. Dansað
verður á tveimur pöllum um
kvöldið og aftur verður flugelda-
sýning. Messað verður í eynni kl.
13.00 á sunnudaginn og síðan
verður keppt i skrykkdansi, auk
þess sem á boðstólum verða
bátasýning, seglbretta- og sjó-
skíðasýning. HLH-flokkurinn,
Bara-flokkurinn, Rocky Horror-
leikflokkurinn o.fl. koma fram
og um kvöldið verður dansað til
kl. þrjú. Þess má geta að Flug-
leiðir og Arnarflug eru með sér-
stök ferðatilboð til Reykjavíkur
þar sem miði á Viðeyjarhátíðina
er innifalinn.
Þjónusta farstöðvaeigenda
FR. deild nr. 4, þ.e. Reykja-
víkurdeild Félags farstöðva-
eigenda, mun veita Reykvík-
ingum og öðrum þeim, sem
verða á ferðinni um verslun-
armannahelgina með tal-
stöðvar, þjónustu með eftir-
farandi hætti: FR. radió 5000
verður opið föstudaginn 3.8.
frá kl. 13. til kl. 24; laugar-
daginn 4.8. frá kl. 8. til kl.24;
sunnudaginn 5.8. frá kl. 8. tií
kl. 24 og mánudaginn 6.8. frá
kl. 8 til kl. 24.
Símanúmerið á skrifstofu
Félags farstöðvaeigenda er
27600. Sá simi er opinn á
sama tíma og radióið og jafn-
vel lengur.
Kristinn hættur
í Mezzoforte
KRISTINN Svavarsson, saxófónleik-
ari hljómsveitarinnar Mezzoforte, sem
starfað hefur í Bretlandi undanfarin
misseri, er kominn heim til Íslands og
hefur sagt skilið við hljómsveitina.
„Ástæðumar eru nokkrar en þær eru
allar persónulegar,** sagði Kristinn í
samtali við blaðamann Mbl. í gær-
kvöld. „Þetta var mín ákvörðun og
það er með vissri eftirsjá, sem ég skil
við félaga mína. En það er allt í mjög
góðu.“
Kristinn sagðist nú væntanlega
fara að leita sér að vinnu. Hann var
handavinnukennari í grunnskóla áð-
ur en Mezzoforte hleypti heimdrag-
anum og sagðist vel geta hugsað sér
að taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið. „Og ég reikna fastlega með
að halda áfram að spila,“ sagði
hann. „Þetta hefur verið mjög gam-
an, en jafnframt afar erfitt. Við höf-
um farið víða og spilað mjög mikið
og yfirleitt hefur allt gengiö mjög
vel. En þetta fyrsta ár held ég að sé
aðeins undirbúningsvinna fyrir það,
sem koma skal, og ég efast ekki um
að Mezzoforte eigi eftir að ganga vel
áfram.“
Steinar Berg ísleifsson, fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar,
sagði f samtali við blm. að fjór-
menningarnir, sem nú skipa Mezzo-
forte, myndu ekki bæta við nýjum
saxófónleikara heldur fá lausamenn
til að leika með á hljómleikum og
inn á plötur. Hljómsveitin vinnur nú
að hljóðritun nýrrar bi eiðskífu, sem
gefin verður út í mörgum löndum í
haust. „Þótt við hörmum þessa
ákvörðun Kristins verður engin
breyting á starfi hljómsveitarinn-
ar,“ sagði Steinar Berg.
Það teygist úr
krónunni á
SUMAr-