Morgunblaðið - 03.08.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
5
Svíar viðurkenna
íslenskar nafnvenjur
Matthías Sigfússon
Matthías
Sigfússon
listmálari
látinn
MATTHÍAS Sigfússon listmálari
lézt í Reykjavík aðfaranótt 2. ágúst
sl. 80 ára að aldri.
Matthías fæddist í Egilsstaða-
koti í Villingaholtshreppi 2. maí
1904, sonur Gróu Gestsdóttur og
Sigfúsar Vigfússonar bónda þar.
Matthías lærði málaralist hjá
ýmsum, m.a. Jóhanni Briem.
Hann málaði einkum landslags-
myndir og eru þær á heimilum
víðs vegar um landið. Þá málaði
Matthías altaristöflur í nokkrar
kirkjur, þar á meðal Laugarnes-
kirkju.
Matthías kvæntist Sigurborgu
Sveinsdóttur og lifir hún mann
sinn ásamt tveimur sonum.
Guðfinna Jóhannesdóttir
Röng
myndbirting
ÞAU LEIÐU mistök urðu í blað-
inu í gær, að mynd, sem birtist
með minningargrein um Guðrúnu
Helgu Rögnvaldsdóttur á bls. 51,
birtist einnig með frétt á bls. 44
um fyrirlestur Guðfinnu Jóhann-
esdóttur hjá Hjálpræðishernum.
Morgunblaðið harmar þessi
mistök og biður Guðfinnu Jóhann-
esdóttur og aðstandendur Guðrún-
ar Helgu Rögnvaldsdóttur afsök-
unar. Hér birtist myndin af Guð-
finnu, sem fylgja átti fréttinni.
SÆNSK stjórnvöld hafa
ákveðið að taka til endurskoð-
unar lög um nafngiftir frá
1982, sem kveða á um, aö
Norðurlandabúar nýfæddir og
búsettir í Svíþjóð, skuli fá
sama eftirnafn og annaö for-
eldrið. Að sögn Baldurs Möll-
er, ráðuneytisstjóra í dóms-
málaráðuneytinu, var haft
samband við sænsk yfirvöld
fyrr í sumar og hafi þau þá
áttað sig á að ekki væri stætt á
að framfylgja þessum lögum
gagnvart íslendingum.
Tvær íslenskar fjölskyldur í
Lundi hafa staðið í stappi við
sænsk yfirvöld út af skrásetn-
ingu nýfæddra barna sinna,
eins og frá var greint í frétt
Morgunblaðsins í gær. Sam-
kvæmt íslenskri venju vildu
foreldrarnir að börnin fengju
nafn föðurins sem eftirnafn.
Skrásetningaryfirvöld í Svíþjóð
settu þeim hins vegar stólinn
fyrir dyrnar og vísuðu til áður-
nefndra laga.
Baldur Möller sagði í samtali
við Morgunblaðið að dóms-
málaráðuneytið hefði gert at-
hugasemd við sænsk yfirvöld
vegna þessara laga fyrr í sumar
og hefðu þau þá sýnt fullan
skilning á hinum íslensku
nafnvenjum og talið rétt að
gera þarna lagfæringu á. Hvað
varðar þau tilfelli, sem getið er
í frétt Morgunblaðsins í gær,
mætti ef til vill kenna um sein-
agangi í kerfinu. Sagði Baldur
að öruggast væri að tilkynna
um nafngiftina hingað heim til
að forðast málavafstur við
sænsk skrásetningaryfirvöld.
Væri það eina lausnin að svo
stöddu.
Gísli Magnússon píanóleikari.
Nýr tónlistar-
skólastjóri
Gísli Magnússon, píanóleikari, hefur
verið ráðinn skólastjóri Tónlistarskól-
ans í Garðabæ frá og með 1. ágúst.
Gísli hefur kennt við skólann síðastlið-
in tíu ár og undanfarin ár hefur hann
gegnt stöðu yfirkennara við skólann.
Um stöðuna sóttu auk Gísla eftir-
taldir: Daði Þór Einarsson, Jón
Kristinn Cortes, Jón Karl Einarsson,
Kjartan Einarsson, Violeta Turidova
og Þórir Þórisson.
Norðurá slök
HÓPURINN sem lauk veiðum í
Norðurá í gærmorgun veiddi að-
eins 14 laxa samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk í veiði-
húsinu á Rjúpnahæð. Þá voru
alls komnir 657 laxar á land.
Einhver reytingsveiði hefur ver-
ið í Munaðarnesi og sá afli er
ekki með í tölunni. Er vonast
mjög ákaft eftir nýjum göngum í
Norðurá nú, það sígur á veiði-
tímann, veiði lýkur 31. ágúst og
oft hefur verið treg veiði í Norð-
urá einmitt í ágústmánuði. Með-
alþungi laxa er nærri 8 pundum
og sá stærsti enn hinn eini og
sanni 19 pundari sem örn Bjart-
mars veiddi á flugu á Hvarar-
hylsbroti.
Mikið af „rusli“ í Flóku
„ÞETTA ER ekki alveg nógu
gott, það er svo mikið af þessu
„rusli" sem við köllum svo, 2 til 3
punda laxar. Smálaxinn nú er
eiginlega 2 pundum smærri að
meðaltali en venja er til, en 4—6
punda laxar hafa oft verið uppi-
staðan í afla okkar,“ sagði Ing-
var Ingvarsson á Múlastöðum í
samtali í gær.
Ingvar sagði að komnir væru
milli 140 og 150 laxar á land sem
væri svipað og á sama tíma í
fyrra, kannski ívið betra. Mest
hafa veiðst 15 laxar á 3 stengur
yfir 2 daga, Ingvar var þá sjálfur
í ánni og veiddi 10 laxa, flesta í
Múlastaðafossi og Brún. Stærsta
laxinn veiddi Jón Árnason úr
Hafnarfirði, 18 punda lax á
maðk í Rang. Er það stærsti lax
úr Flóku í ein 16 ár, en þá veiddi
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra jafn stóran lax í
Stekkjartúni. Fundist hafa
merki á þremur löxum í Flóku í
sumar. Voru það laxar sem
kreistir voru í klakhúsinu í Stór-
ási í fyrra haust. Höfðu þeir lítið
stækkað síðan. Einn þeirra
veiddi Björn ólafsson á „Eyrun-
um“ á Black Gnat-þurrflugu, 5
punda lax.
Róast í Grímsá
„ÞETTA hefur verið heldur ró-
legt þessa vikuna," sagði ólöf í
veiðihúsinu við Grímsá í gær-
dag, en þá höfðu útlendingarnir
sem hófu veiðar á sunnudaginn
veitt aðeins 28 laxa. Veitt er á 8
stengur og er Tunguá undanskil-
in uns íslendingar taka við veið-
um í Grímsá á sunnudaginn. Síð-
asta útlendinga„holl“ fékk 61
lax, en hóparnir allir fram að því
frá 80 og upp í rúmlega 90 laxa
hver, þannig að lengst af hefur
veiðin í Grímsá verið lífleg.
ólöf sagði að erfitt væri að
gera sér meðalþyngdina í hug-
arlund, það vantaði mikið milli-
stóra laxa, þeir væru annað
hvort mjög smáir eða rokvænir,
stærstir 23 og 28 punda, en
nokkrir allt upp í 18 pund. Rúm-
lega 500 eru komnir á land og
aðeins hefur sést nýrunninn lax
síðustu daga. Eingöngu hefur
verið veitt á flugu síðustu vik-
urnar, langvinsælasta flugan er
nýlundan Black Sheep sem virð-
ist gefa hörkuafla víðast þar sem
hún er reynd. Stærsti laxinn tók
þá flugu, en 23 pundarinn gein
við flugu að nafni Lady Ellen.
Aðrir punktar
MJÖG köflótt veiði hefur verið
við Svarthöfða, veiðisvæði þar
sem Flóka og Reykjadalsá sam-
einast Hvítá. Mbl. hefur fregnað
að fyrir skömmu hafi aðeins
veiðst þar milli 50 og 60 laxar og
all margir hópar hefðu veitt lítið
eða ekkert.
í Reykjadalsá hefur veiði verið
treg, en besti tíminn þar er þó
enn eftir, hún hefur alltaf verið
sein til, sú volga. Þar voru fyrir
skömmu eitthvað á annan tug
laxa komið á land. Mikið ferliki
hefur sést í ánni, lax sem glöggir
menn telja gæti verið í 30 punda
klassanum. Hefur hann lengst af
legið í tilbúnum veiðistað fyrir
neðan bæinn Sturlu-Reyki. Hafa
menn reynt að freista ráðherr-
ans en ekki tekist.
í Hvolsá og Staðarhólsá hefur
veiði verið betri en menn þorðu
að vona í upphafi veiðitímabils.
Þar hafa veiðst eftir því sem
Mbl. kemst næst nærri 60 laxar,
margir mjög vænir, 10 til 14
punda. Nær allur aflinn er úr
Staðarhólsánni, bleikjan sem
talsvert er af, veiðist fremur í
Hvolsánni.
Veitt á Bryggjunum f Norðurá.