Morgunblaðið - 03.08.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
13
Ekkjan Corinne Parpallaix sést hér á leið í réttarsal, þar sem kveAinn var
upp sá úrskurður, að sæðisbanka væri skylt að afhenda henni sæði úr
manni hennar, sem lézt 25. desember sl. Hafði hún krafizt þess að fá það
afhent, svo að hún geti alið barn, sem hinn látni maður hennar verði faðir
að. Með frú Parpallaix, sem er fyrir miðju á myndinni, eru tveir lögmenn
hennar. Mál þetta var fyrir rétti í Creteil, einni af útborgum Parísar. Af
hálfu sæðisbankans var strax tilkynnt, að úrskurðinum yrði áfrýjað.
Nicaraguæ
Háttsettir embættismenn
flæktir í fíkniefnasmygl
Hugsað sem „pólitískt vopn, sem eyðileggi æsku óvinanna“
Washington, 2. ágúst AP.
FYRRVERANDI sendistarfs-
maður frá Nicaragua skýrði
fulltrúadeild Bandaríkjaþings
svo frá í dag, að varnarmála-
ráðherra Nicaragua og aörir
háttsettir embættismenn þar í
landi væru flæktir í umfangs-
mikla fíkniefnasölu og smygl-
uðu fíkniefnum til Bandaríkj-
anna. Væri þessi fíkniefnasala
hugsuð sem „pólitískt vopn“
og henni ætlað að „eyðileggja
æskufólk óvina okkar“.
Það var Antonio Farrach, 33
ára gamall fyrrverandi starfs-
maður hjá sendiráðum Nicar-
agua í Venezúela og Honduras,
sem skýrði frá þessu í dag. Sagði
hann, að fíkniefni væru send frá
heimalandi hans í því skyni
jafnframt „að afla fjár til þess
að kaupa matvæli handa fólki í
Nicaragua, enda þótt það þýddi
þjáningu og dauða fyrir æsku-
fólk í Bandaríkjunum".
Farach sagði ennfremur, að
hann hefði sjálfur átt þátt í því
að afhenda vegabréf frá Nicar-
agua til manna frá Suður-
Ameríku og löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins, sem
hann áleit, að hefðu staðið að
fíkniefnasmygli.
Stokkhólmi, 2. ágúst Frá Olle Kkström, frótUriUr* Mbl.
NÚ Aö undanfórnu hefur verið að
koma á markaðinn víða um lönd nýtt
svefnmeðal, triazolam, sem veldur þvf
að fólk sofnar fljótt og vel án þess að
nokkurra aukaverkana gæti daginn
eftir, t.d. drunga og þyngsla. Stafar
það af því, að efnið brotnar alveg
niður í líkamanum og eyðist. Þykir
þetta nýja meðal einkum kærkomið
fyrir vaktavinnufólk, flugliöa og þá,
sem þurfa starfs sins vegna að ferðast
yfir tímabeltin.
Allar tilraunir benda til, að nýja
svefnmeðalið standi öðrum langt-
um framar. Það hefur engar eitur-
verkanir og lítil sem engin hætta er
talin á, að það sé vanabindandi. I
bandaríska visindaritinu „Science"
segir frá tilraun, sem gerð var við
háskólann i Stanford f Kaliforniu
Fangi skæruliöa í 4 vikur
iHlamabad, 2. ágúsL AP.
VONIR stóðu til þess í dag, að skæru-
liðar f Afganistan létu lausan japan.sk-
an sendistarfsmann, sem verið hafði
fangi þeirra í margar vikur. Áður hafði
verið haft eftir manninum, sem heitir
Koichi Umezawa, að hann væri hepp-
inn að vera enn á Iffí. Hann var hand-
tekinn er hann var á leið út úr höfuö-
borginni Kabúl f bfl sínum. Hann bar
samt skæruliðum ekki illa söguna og
sagði þá hafa farið vel með sig.
Farach sagðist ekki geta full-
yrt, að stjórn Nicaragua sem
slík væri flækt í fíkniefnasmygl.
Hins vegar væri víst, að hátt-
settir embættismenn tækju þátt
í því sem einstaklingar. Þannig
hefði Humberto Ortega varn-
armálaráðherra og bróðir Dani-
el Ortega, leiðtoga sandinista-
stjórnarinnar, staðið milliliða-
laust að slíku fíkniefnasmygli.
Vonir víða bundnar
við nftt svefnmeðal
Elkem kaupir 2
málmbræðslur
0*16, 2. ágÚKL Frá Jan Erik Uure, rrétlariUra Mbl.
NORSKA stórfyrirtækið Elkem mun
nú á næstunni taka við rekstri og
eignarhaldi tveggja kísilmálmverk-
smiðja í Kanada, sem bandaríska
fyrirtækið Union Carbide átti áður.
Er kaupverðið fyrir báðar verksmiðj-
urnar 33 milljónir kanadískra doll-
ara.
Elkem hefur áður keypt málm-
bræðslu af Union Carbide og með
samningunum nú er það að
tryggja sig í sessi sem fremsta
fyrirtæki í heimi í þessari grein.
Gunnar Viken, einn af forsvars-
mönnum Elkem, segir í viðtali við
Aftenposten, að samningurinn við
Union Carbide sé mjög hagstæður
en auk málmbræðslnanna fylgdi
orkuver með í kaupunum.
Elkem þurfti ekkert að borga út
við samninginn en á að standa skil
á kaupverðinu á 6—10 árum. Vext-
irnir þykja mjög hóflegir eftir því
sem gerist. Elkem var ekki eitt í
ráðum þvi að hinn svokallaði
Jebsen-hópur átti einnig aðild að
kaupunum. Þar er um að ræða tvö
fyrirtæki, sem kennd eru við
Kristian Jebsen, útgerðarfyrir-
tæki og tryggingafyrirtæki, og
Bj örgvi nj arbanka.
Málmbræðslurnar tvær, sem
Elkem keypti, framleiða rúmlega
helminginn af þeim kísilmálmi,
sem notaður er í Kanada.
og Chicago. Fór hún þannig fram,
að 24 ungum og hraustum mönnum
var meinaður svefn f nokkurn tíma
en þá var átta þeirra gefin sykur-
tafla, átta fengu svefnmeðalið vali-
um og átta nýja lyfið, triazolam,
sem er afbrigði af benxodiazepin.
Þeir, sem fengu sykurinn áttu erfitt
með að sofna en þeir, sem fengu
valíum, sofnuðu mjög djúpum og
þungum svefni. Þeir, sem fengu
nýja lyfið, sofnuðu eðlilegum svefni
og sváfu I sex til átta tíma.
Þegar allir voru vaknaðir voru
gerðar á þeim frekari tilraunir og
kom þá í ljós, að þeir sem fengu
valíum, voru illa fyrir kallaðir, sljó-
ir og óklárir i kollinum, en þeir, sem
fengu nýja lyfið, voru eins og ný-
slegnir túskildingar, hressir og
endurnærðir. Þeir, sem fengu syk-
urinn, geispuðu bara af syfju.
Ný róteind
uppgötvuö
Stantord, 2. ágúnL AP.
Vísindamenn hafa uppgötvað
áður óþekkta róteind, sem er
ólfk öllum öðrum róteindum og
orkutegundum, er eðlisfræð-
ingar telja, að myndi grundvall-
arþætti efnisins. Var skýrt frá
þessu í gær á þingi 78 vísinda-
manna, sem fram fer við Stan-
ford-háskóla í Kaliforníu.
Áður en þessi uppgötvun
var gerð, var talið, að búið
væri að uppgötva allar þær
róteindir, sem unnt er að
finna í kjarna efnisins. Upp-
götvun þessi var gerð í Vest-
ur-Þýzkalandi.
Sovéskt
skip rek-
ið úr höfn
Hug, 2. ágúst AP.
HOLLENSKA utanríkisráðu-
neytið hefur staðfest fréttir um,
að sovésku skipi hafi verið vísað
á brott úr höfninni í Rotterdam,
en í stærsta dagblaðinu, sem
gefíð er út í Hollandi, var fullyrt,
að skipið væri „njósnaskip".
Sovéska sendiráðið hélt því hins
vegar fram, að skipið væri tog-
ari.
Höfnin í Rotterdam er sú
stærsta í heimi og um hana
fara miklir flutningar fyrir
Atlantshafsbandalagið. Sov-
étmenn hafa margsinnis beðið
um að fá að setja upp ræð-
ismannsskrifstofu í borginni
en þeirri bón hefur jafnan ver-
ið neitað. Rússneska skipið,
sem heitir Prostor, kom til
Rotterdam 16. júlí sl. en dag-
inn eftir var því vísað burt.
Sagði talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins að vantað hefði
nauðsynleg leyfi fyrir kom-
unni. Hann vildi hins vegar
ekki staðfesta fréttir blaðsins
De Telegraaf, að Prostor hefði
verið vel útbúið njósnaskip.
BJARTMAR
EFEGMÆTTIRAÐA
, DREIFING
FALKINN
(JIGEFANDI
GEIMSTEINN
Omissandi í partíið
hvar og hvenær sem
er — líka hjá þér!