Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
Fiskflutningaskip selja í Grímsbæ;
Börkur NK með 161
lest og flutninga-
skipið Mar með 200
TALSVERT hefur verið um ísfisk-
söhi íslenzkra skipa í Bretlandi að
undanfornu. Er hér bæði um að
r*ða fiskiskip og sérstök skip til
þessara flutninga. Börkur NK hefur
undanfarna mánuði gert nokkuð af
því að sigla með fisk, sem ekki hefur
verið svigrúm til að vinna í Neskaup-
stað. Þá landar leiguskipið Mar um
200 lestum af ísuðum fiski í
Grímsbæ um þessar mundir á veg-
um Fiskafurða. Er sá fiskur frá ýms-
um aðilum á Suðvesturlandi.
Á mánudag og þriðjudag seldi
Haffari KE 56,8 lestir í Cuxhaven.
Heildarverð var 855.400 krónur,
meðalverð 15,07. Á miðvikudag
seldi Oddgeir ÞH 56,7 lestir,
mestmegnis þorsk, í Hull. Heild-
arverð var 1.522.000 krónur, með-
alverð 26,85. Sama dag seldi Börk-
ur NK 161,5 lestir, mest þorsk og
ýsu, en einnig nokkuð af karfa, í
Grímsbæ í Englandi. Heildarverð
var 4.265.500 krónur, meðalverð
26,42. Á fimmtudag seldi Ýmir HF
106 lestir í Hull. Heildarverð var
2.659.300 krónur, meðalverð 25,08.
Þá landaði flutningaskipið Mar
um 200 lestum af fiski i Grimsbæ í
Englandi á fimmtudag og í dag.
Verð liggur því ekki fyrir enn, en
fiskurinn er af suðvestur-horni
landsins og er seldur á vegum
fyrirtækisins Fiskafurða.
„Aurvandilstá", rit eftir
Peter Foote komin út
- safn ritgerða og greina um rannsóknir
á íslendingasögum, lifnaðarháttum fyrri tíðar o.fl
ÚT ER komin á forlagi Odense Uni-
versity Press bókin „Aurvandilstá"
með undirtitlinum Norse studies,
'sem hefur að geyma ritgerðir hins
þekkta fræðimanns Peter Foote um
rannsóknir hans á fslendingasögum
og íslenzkri sagnaritun til forna.
Einnig eru greinar um Færeyinga-
sögu og tveir kaflar eru um störf
tveggja metinna fræðimanna á síð-
ustu öld, Gabriel Turville Petre og
Ludvig Larsson, en þeir fengust báð-
ir við fræðistörf á sviði íslenzkrar
sagnaritunar til forna.
Titillinn Aurvandilstá er tekinn
úr Eddu Snorra: „En er Þórr fann
þat ok þótti þá ván at braut myndi
ná heininni, þá vildi hann launa
Gró lækningina ok gera hana
fegna, sagði henni þau tíðindi at
hann hafði vaðit norðan yfir Éli-
vága ok hafði borit í meis á baki
sér Aurvandil norðan ór Iötun-
heimum ok þat til iartegna at ein
tá hans hafði staðið ór meisinum
ok var sú frerir, svá at Þórr braut
af ok kastaði upp á himin ok gerði
af stjörnu þá er heitir Aurvand-
ilstá.“
Bókin er gefin út til að heiðra
Peter Foote sextugan, ýmsar
greinanna hafa áður birzt í vís-
inda- og fræðimannaritum, en
hefur hér verið safnað saman á
einn stað. Meðal kafla í bókinni
má nefna Sturlusaga and its back-
ground, Secular attitudes in Early
Iceland, on the Conversion of the
Icelanders, Sagnaskemmtun:
Reykhólar 1119, Nafn guðs hit
hæsta, Icelandic sólstarsteinn and
the medieval background, On the
Saga of the Faroe Iceland. Alls
eru í bókinni tuttugu ritgerðir,
auk formála, eftirmála og tabula
gratulatoria. Bókin er 311 bls. að
lengd.
Víndheimamelar:
„Stórkostlegt að
fljúga hér á landi“
- segir Heidi Fawcett, skosk svifdrekakona
HEIDI Fawcett heitir konan, sem
hér býr sig undir að svífa fram af
Úlfarsfellinu. Hún er skosk og
kom til landsins til að æfa svif-
drekaflug og taka þátt í keppni,
sem haldin verður um helgina í
Húsafelli, ef veðurguðirnir leyfa.
Heidi hefur stundað svifdrekaflug
í 4 ár og hefur lengst flogið 20 km.
„Það er stórkostlegt að fljúga
hér á landi, því hér er svo fal-
legt,“ sagði Heidi. „Það er líka
auðveldara að stunda flugið hér
en í Skotlandi, því hérna eru
flestir svifdrekamenn á torfæru-
bifreiðum og komast því upp á
fjallstinda án örðugleika. Heima
verð ég að bera svifdrekann 200
metra til að fljúga." Að þessum
orðum mæltum sveif Heidi fram
af fjallsbrúninni.
Mótettukór Hallgríms-
kirkju fer til
Mótettukór Hallgrímskirkju held-
ur til Þýskalands síðari hluta ágúst-
mánaðar. í tilefni af þessu verður
kórinn með opnar æfingar mánudag-
inn 6. ágúst, þriðjudaginn 7. ágúst
kl. 22.00 og miðvikudaginn 8. ágúst
Id. 21.30 í Hallgrímskirkju.
Kórinn er að æfa dagskrá fyrir
Þýskalandsferðina og er almenn-
ingi boðið að koma og hlýða á
Þýskalands
hluta þeirra.
Kórinn er að æfa mótettur frá
16. til 20. öld, íslensk þjóðlög og
sálmalög, og gefst fólki tækifæri
til þess að fyigjast með hvernig
kórverk verður til og mótast í
meðförum kórs. Stjórnandi kórs-
ins er Hörður Áskelsson. Að-
gangseyrir er 50.- kr.
(FrélUriUri)
Búast má við góðum
árangri í kappreiðum
Vindlwinuineluni, 2. ágúst Frá Valdimar
GREINILEGT er að margir sterkir
keppendur verða með á íslandsmót-
inu hér á Vindheimamelum um helg-
ina. Fjöldi manns er kominn að
sunnan til þátttöku og eru þar á ferð
bæði góðir reiðmenn og hestar. Að-
staðan hér á „melunum" er sem fyrr
fyrsta fiokks og hefur verið byggður
dómpallur við 200 metra völlinn, þar
sem gangtegundakeppnin mun fara
fram. Einnig hefur verið byggt gerði,
20 sinnum 40 metrar, þar sem
hlýðnikeppni mun fara fram.
Þrátt fyrir að ekki sé rafmagn á
staðnum verður tölva notuð við út-
reikninga, eins og tíðkast á flest-
um meiriháttar hestamótum nú-
orðið. Verður notuð bensínrafstöð,
sem sér tölvunni fyrir rafmagni og
telur sá, sem sér um tölvuna, ekk-
ert því til fyrirstöðu að þetta sé
mögulegt. Notkun tölvunnar flýtir
mjög fyrir öllum útreikningum og
útgáfu á dómum í keppninni.
Góð þátttaka er einnig úr Eyja-
KristiiusynL
fírði og í gær komu um fimmtán
manns ríðandi þaðan með sjötíu
hross. Veður er eins og best verður
á kosið og ef það helst óbreytt má
búast við góðum árangri í kapp-
reiðum, en eins og kom fram í
frétt Morgunblaðsins í gær verða
hestamannafélögin hér í Skaga-
firði með sitt árlega hestamót með
gæðinga- og unglingakeppni, jafn-
hliða Islandsmótinu. Ekki er úti-
lokað að ný íslandsmet líti dags-
ins ljós að þessu sinni og er þess
skemmst að minnast þegar sett
var íslandsmet í 300 metra stökki
síðastliðinn sunnudag á Melgerð-
ismelum.
í gærkvöldi var komið á kapp-
reiðum á Melgerðismelum með
það fyrir augum að setja ís-
landsmet, en að sögn reyndra
keppnismanna er kappreiðabraut-
in þar ein sú albesta á landinu.
Ekki tókst að setja met, en tvö
hross, Spóla og Tvistur, sem settu
nýja metið um helgina jöfnuðu
núverandi íslandsmet í bæði 300
og 350 metra stökki. Verða bæði
þessi hross á kappreiðunum hér á
Vindheimamelum auk annarra
fljótustu hlaupahrossa landsins.
Dansleikir verða haldnir í Ár-
garði og Miðgarði, sem eru í næsta
nágrenni við mótsstaðinn. Verður
dansað þar föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Mótið
hefst á morgun, föstudag, klukkan
níu og stendur keppnin yfir til
klukkan 19.00 alla dagana þannig
að nóg verður um að vera fyrir
hestaunnendur hér á Vindheima-
melum um helgina.
Húsavík:
Margt fer úr skorðum
vegna rafmagnsbilana
Húsavík, 1. ágú.st.
HÉR ER bjart og besta veður í dag,
sól skín í heiði en rafijós loga ekki
því bilun varð í jarðstreng við að-
veitustöð fyrir hádegi. Var bærinn
rafmagnslaus í 4 til 5 klukkustundir.
Við slíka rafmagnstruflun fer
margt úr skorðum hjá þeim sem
ekki hafa rafmagnsstöðvar; búð-
arkassar fara úr sambandi, tölvur
verða ekki starfhæfar og þar fram
eftir götunum. Fjölsímarnir trufl-
uðust einnig svo erfitt var að ná
símasambandi. Vinna hjá Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur verður
engin um vikutíma frá deginum á
morgun að telja vegna sumarleyfa
og vegna þess að veiðibann verður
hjá smábátunum.
— Fréttaritari.
Ótrúlegustu óhöpp gera ekki boö á undan sér. Barn-
iö er öruggt í barnaöryggisstól. KL-Jeenay eru viö-
urkenndir stólar og hafa hlotiö verölaun fyrir hönnun
og öryggi.