Morgunblaðið - 03.08.1984, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGOST 1984
Steindór
fær frest
fram í
október
Samgönguráðuneytið hefur ákveð-
ið að veita bílstjórum á Bifreiðastöð
Steindórs frest til að stunda leigu-
akstur fram til 11. október nk., en
fresturinn var veittur í þrjá mánuði
frá uppkvaðningu Hæstaréttardóms
hinn 11. júlí sl. Matthías Bjarnason,
samgönguráðherra, sagði í samtali
við blm. Morgunblaðsins, að frestur-
inn hefði verið veittur á þeim for-
sendum að hér væri um sanngirn-
ismál að ræða gagnvart þeim bfl-
stjórum, sem hafa haft atvinnu af
leiguakstri hjá stöðinni og ekki þótt
eðlilegt að svipta þá atvinnunni
fyrirvaralaust.
Nýjum atvinnuleyfum leigubíl-
stjóra verður úthlutað 1. október
nk. og sagði Matthias Bjarnason,
að þeir bílstjórar hjá Steindóri,
sem uppfylltu þau skilyrði sem
þar giltu, kæmu að sjálfsögðu til
greina við úthlutun leyfanna, eins
og hverjir aðrir. Ætti það einkum
við um bílstjóra, sem ekið hefðu
sjálfir, en hins vegar yrði til-
gangslaust fyrir þá að sækja um,
sem ekki hefðu ekið sjálfir og látið
aðra aka fyrir sig.
Samkvæmt þessu er ljóst, að
rekstur Bifreiðastöðvar Steindórs
í núverandi mynd, þ.e. akstur með
leyfum, sem á sínum tíma voru
gefin út á stöðina sjálfa, leggst
niður 11. október nk. Það þarf þó
ekki að þýða að stöðin hætti, því
hugsanlega gætu bílstjórar, sem
hafa atvinnuleyfi fyrir leigubíla-
akstri, tekið við rekstri stöðvar-
innar þegar þar að kemur.
Seyðisfjörður:
Iðandi
mannlíf og
suðræn sól
Sejðisfiréi, 2. kgiusL
MIKIL umferð hefur verið hér á
Seyðisfirði í dag og veðurblfða
hin mesta. Hitinn var um 22 stig
í forsælu og bærinn iðandi af
mannlífi, léttklæddu fólki svo
helst minnti á suðrænar sólar-
strendur.
Ferjan kom klukkan níu í
morgun og með henni voru 700
farþegar. Aðrir 700 farþegar
voru hér til að fara með henni
til baka. Tæplega tvö hundruð
bílar komu með skipinu hingað
og álíka margir fóru út. Þeir
gestir, sem ferðast með skipinu
hafa þann háttinn á, að þeir
koma sér fyrir á tjaldstæðun-
um og í dag voru hér á annað
hundrað tjöld og húsvagnar.
Tjaldstæðin virðast nú vera
orðin allt of lítil og menn koma
sér fyrir út með firðinum,
tjalda þar eða leggja tjald-
vögnum sinum og húsbílum og
er með ólíkindum hversu fjöl-
breytt farartækin eru. Má með
sanni segja, að fjörðurinn taki
á sig skemmtilega mynd með
tilkomu alls þessa fólks.
Það sem framundan er hjá
ungdómnum hér er, að fólk er
nú að undirbúa sig til Atlavík-
urhátíðar og má búast við
geysilegu fjölmenni þar enda
veðurspáin um helgina eins og
best verður á kosið.
Fréttaritari.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á sfdnm MnprPransJ /
Utilegu
Hamborgarar
m/brauði -g ^ t
AÐEINS I
' pylsunum
• frá okkur fylgja
pylsubrauðin með
„Ókeypis“
Kryddlegið kjöt,
safaríkar steikur.
og glæsilegir j!
grillpinnar m
tilbúið á Grillið. £
í pakningu kr.
uiænv og iersK aq
Jarðarber yo
AÐEINS
Ljúf Bláber SQ
J AÐEINS klt/
BAKKINN
Carlsberg öl
Glæsilegur Glænýr Lax
útimarkaður
með fersku -
grænmeti og j
nýjum ávöxtum
áSTÓR
LÆKKUÐU
VERÐI^ö
Daglega úr ánni (Ekki úr
Elliðaánum . . .)
1 líter
Tap Sprite
Coka Cola
AÐEINS
Kirsuber
Ribsber
^ 4 tegundir
af nýjum
' kartöflum.
Grillkol 2 kg
AÐEINS
Bökunan
kartöflur
Ný uppskera
AÐEINS
Opið til kl. 8 í kvöld
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2