Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 24

Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984 Stál og * * eftir Arna Arnason Vorið 1981 samþykkti Alþingi íslendinga lög, sem heimiluðu rík- isstjórninni að festa fé í stál- braeðslu, veita slíku fyrirtæki ríkisábyrgð á lánum og fella niður aðflutnings- og sölugjöld af vélum og tækjum til verksmiðjurekstrar- ins. Lögunum fylgdu ákvæði til bráðabirgða, sem settu þátttöku ríkisins í fyrirtækinu svo ströng skilyrði, að ýmsir þingmenn full- yrtu þá, að verksmiðjan yrði ekki að veruleika með þátttöku ríkis- ins. Annað er nú að koma á dag- inn. Ný fyrirtæki eru yfirleitt fagn- aðarefni. Þau auka á fjölbreytni í atvinnulifinu, skjóta undir það nýjum stoðum og skapa atvinnu. En það er skammgóður vermir að stofna fyrirtæki, ef þau skila ekki hagnaði. Þótt einstaklingum eigi vissulega að vera frjálst að tapa fé fyrir eigin reikning, snýst málið þó um annað og meira. í þessu tilviki er almenningur hvattur til þátttöku í fyrirtæki án þess að lagðar séu fram arðsemis- og rekstraráætlanir. í öðru lagi beita opinberir aðilar sér fyrir stofnun fyrirtækis án þess að nokkur trygging sé fyrir, að peningum skattborgaranna sé vel varið, og í þriðja og síðasta lagi felst í þess- ari fjárfestingu alvarlegt frávik frá þeirri stefnu, að það sé ekki hlutverk ríkisins að vasast í at- vinnurekstri. Verksmiðjukaup í fréttum hefur verið sagt frá stefna kaupum Stálfélagsins á stálvöls- unarverksmiðju í Qvarnshammar i Svíþjóð. Fylgir stundum með, hversu mikið happ það hafi verið, að þessi verskmiðja hafi fengist keypt í heilu lagi, sem flýti fyrir starfrækslu hér. Samkvæmt frétt í sænska blaðinu Dagens industri frá 7. júní sl. virðast kaupin happ fyrir fíeiri. Þar segir, að frá upphafi hafi verksmiðjan verið slæm fjárfest- ing fyrir Halmstads Jarnverk, eig- anda hennar og eiganda 20% hlutafjár í Stálfélaginu hf. Mark- aðurinn fyrir steypustyrktarstál hafi hrunið og verksmiðjan varð verðlaus. Útflutningur reyndist ekki lengur arðbær, enda jókst innflutningur mjög á ódýru stáli. Þetta segir Dagens industri stöð- una nú, þótt öðru visi hafi horft 1981, þegar verksmiðjan var keypt. Því vaknar sú spurning, hverjir séu yfirburðir íslendinga í stálframleiðslu, þannig að hægt sé að reka hér sömu verskmiðjuna með hagnaði, sem slíkt tap var á í Svíþjóð að hún var orðin verðlaus? Markaðsverð Nærtækasta skýringin gæti ver- ið, að hingað sé keypt dýrara steypustyrktarstál en til annarra landa. Kunnáttumenn fullyrða, að svo sé ekki. Þvert á móti virðist allt benda til þess, að okkur takist að fá þessa vöru ódýrar hingað, en hún fæst í heimalandinu. Þegar innkaupsverð á steypu- styrktarstáli er kannað sam- kvæmt Verslunarskýrslum Hag- stofu íslands kemur í ljós, að inn- „Þessi grein er ekki rit- uð gegn Stálfélaginu hf. Félagið má reisa eins margar stálbræðslur og það óskar mér að meinalausu, ef menn gera það fyrir eigið fé, en ekki annarra og á eigin ábyrgð.“ flutningsverð í dollurum hefur stöðugt farið lækkandi frá 1980: Ar CIF-verð ($) 1980 398 1981 326 1982 302 1983 258 1984 jan.—jún. 251 Þessi verðþróun er ekki uppörv- andi fyrir verksmiðjurekstur, sem Hárgreiðslu- stofa Brósa í nýtt húsnæði Hárgreiðslustofa Brósa _ hefur flutt og opnað í húsnæði í Ármúla 38 á 2. hæð. Hönnuður var Júlía Andersen innanhússarkitekt og innrétt- ingar eru smíðaðar af HS-inn- réttingum c/o Gófer í Kópavogi. Yfirsmiður var Guðmundur Pálsson. (FrétUlilkynnini!) byggir arðsemismat sitt á verði, sem er a.m.k. 330 dollarar tonnið og ætlar sér að yfirtaka allan ís- lenska markaðinn og meira til. Munurinn hér er um 80 dollarar á tonn á innfluttu stáli og því sem verksmiðjan mun framleiða. Ef verksmiðjan ætlar að ná innlenda markaðnum hlýtur hún a.m.k. að þurfa að mæta verði á innfluttu stáli, sem þýðir tekjutap upp á 30 mllljónir króna. Hver á að borga þann halla? Hvað gerist, ef mark- aðshlutdeild verksmiðjunnar verður einungis 50% ? Óarðbær fjárfesting Á undanförnum árum hefur mikið verið ritað um allan þann fjölda misráðinna fjárfestinga, sem hið opinbera hefur með einum eða öðrum hætti átt hlut að og nú hvíla sem baggi á lífskjörum fólks. Svo vel hafa þessi mál verið rökstudd, að ætla mætti, að vafa- samar fjárfestingar ættu ekki lengur upp á pallborðið. I þessu máli virðist öllu gleymt og ekkert lært. Og það sem verra er, nú er almenningi boðin þátttaka í fyrir- tæki án þess að geta metið vænt- anlega arðsemi þess. Þegar almenningi er boðin þátttaka í hlutafélagi, ættu for- göngumenn útboðsins að kynna væntanlegum hluthöfum helstu forsendur rekstrarins, svo að þeir geti lagt mat á aðrsemi fjárfest- ingarinnar. Slíkt er venja erlend- is, en ekki skylda hér. Engu að síður er það ábyrgðarhluti af hálfu stjórnvalda að láta það ógert, enda má ætla, að almenn- ingur kunni að láta blekkjast um arðsemi fyrirtækisins, þegar mál- efni þess hafa fengið ítarlega um- fjöllun í ráðuneytum og opinber- um sjóðum, sem veita því braut- argengi. Nú nýverið samþykkti stjórn Framkvæmdasjóðs, með ákveðn- um skilyrðum, að festa 9 milljónir króna í hlutabréfum Stálfélagsins hf. Eitt af skilyrðunum var, að ríkisábyrgð fengist á 45 milljón króna láni til verksmiðjunnar. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins þann 18. júlí sl. mun sú ábyrgð verða veitt, þótt ekki sé ljóst hvernig það verður gert, þar sem lögin frá 1981 um stálbræðslu eru ekki nægjanleg heimild til slíkrar ábyrgðar. Bráðabirgðalög eru ein leið og heyrst hefur, að hún verði farin. Ansi er þó vafasamt, að slík lagasetning fái staðist, þannig að ákvæðum stjórnarskrárinnar um brýna nauðsyn sé fullnægt. Gangi þetta hins vegar eftir, er eina víg- ið óunnið að fá Iðnþróunarsjóð til að afgreiða lán til verskmiðjunn- ar, sem næmi 20% af heildarfjár- festingunni. Stefna ríkis- stjórnarinnar Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð setti hún sér það mark- mið að minnka ríkisbáknið, selja ríkisfyrirtæki og hvetja almenn- ing í þess stað til að fjárfesta beint í atvinnulífinu. Hér var heillavænleg stefna mörkuð. Til þess að eiga fyrir útgjöldum þarf ríkissjóður sífellt að sækja fé til annarra, almennings í þessu landi. Ríkið ræður þess vegna ekki yfir neinu fé til að festa í fyrir- tækjum, nema taka það af öðrum. Það virðist því heilbrigðara að hvetja fólk til að fjárfesta sjálft í atvinnulífinu í stað þess að þvinga það til þess með skattlagningu eða setja framtíðar skatta af tekjum þess að veði fyrir hugsanlegum skakkaföllum, ef reksturinn geng- ur illa. Einnig er ljóst að menn fara betur með eigið fé en annarra og þar sem þeir þurfa að bera ábyrgð gerða sinna eins og yfir- leitt í einkarekstri, hefur hann strax yfirburði í samkeppni við opinberan rekstur sem rekstrar- form. Nú hefur Alþingi samþykkt breytingar á tekjuskattslögunum sem ættu að hvetja almenning til fjárfestinga í arðbærum fyrir- tækjum. Forsendur fyrir þátttöku ríkisins eru því mun síður til stað- ar en áður var. Jafnframt hafa með þessu skapast betri forsendur fyrir sölu ríkisfyrirtækja en áður. Engu að síður er nú verið að festa fé í nýju fyrirtæki á sama tíma og hlutur ríkisins í öðrum er seldur, en það vekur spurninguna, sem var eitt helsta tilefni þessarar greinar: Er stefna ríkisstjórnar- innar orðin önnur; er nú stefnt að því að endursósíalísera þjóðina? Lokaorð Þessi grein er ekki rituð gegn Stálfélaginu hf. Félagið má reisa eins margar stálbræðslur og það óskar mér að meinalausu, ef menn gera það fyrir eigið fé, en ekki annarra og á eigin ábyrgð. Sú leið er hins vegar ekki farin. Hér er stofnað til almenningshlutafélags um órökstudda fjárfestingu kost- aða af almennafé, sem jafnframt kúvendir farsælli stjórnarstefnu, sem byggði á trausti á einstakl- ingnum og framtaki hans til fram- fara í atvinnulífinu. Hér bregðast krosstré og því varð ekki undan því vikist að rjúfa þá háværu þögn sem ríkir um grundvallaratriðin, sem tekist er á um við stofnun þessa félags. Árni Árnaaon er framkræmdastjóri Verslunarráðs íslands. Sumarpakkarnir okkar eru sér útbúnir fyrirOpel, C5M, Isuzu og Vauxhall bíla. Komið við á leið úr bænum í þjónustumiðstöð Bílvangs sf. að höfðabakka 9. bendum hvert á land 5em er. Hringið í síma: 84710, 84245. Sumarpakkinn inniheldur: Kerti - kveikjulok — platínur (hamar) reim(ar) - tvist - splendo töflur. Sumarpakkarnir kosta frá 600 - 950.00 kr. BHVANGUR st= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 Kvenna- athvarf opnað á Akureyri Akureyri, 1. ágúst. f DAG var opnað til starfsemi nýtt kvennaathvarf á Akureyri. Það eru Samtök um kvennaathvarf á Norð- urlandi sem sjá munu um rekstur athvarfsins í húsnæði, sem Akureyr- arbær hefur látið samtökunum í té. Einn fastur starfsmaður hefur verið ráðinn, en að öðru ieyti munu félags- menn samtakanna annast vaktþjón- ustu í athvarfinu. Kvennaathvarfið á Akureyri mun þjóna Norðurlandi öllu, og er opið öllum konum eftir því sem aðstæður leyfa. Neyðarsími Kvennaathvarfsins er 26910, og mun fyrst um sinn verða vakt við hann kl. 14—16 og 20—22 alla daga, en á öðrum tím- um geta konur snúið sér til lög- reglunnar á Akureyri og fengið upplýsingar. GBerg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.