Morgunblaðið - 03.08.1984, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.08.1984, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984 29 Spennan magnast Jazztno Gufrmundar Ingólfssonar leikur um verslunar- mannahelgina Sigurður Pétursson: „Reyni að vinna“ „Já, já, ág er ánægöur meö daginn,“ sagöi Siguröur Péturs- son úr GR þegar viö spuröum hann hvort hann væri ánægöur meö leik sinn í dag, en Siguröur er nú meö forustu í meistara- flokki karla á landsmótinu í golfi sem fram fer í Grafarholti og lýk- ur í dag. Siguröur sagöi aö fyrsti dagur- inn heföi veriö ágætur hjá sér en annar dagurinn heföi verið slæm- ur. „Aö visu klúöraöi ég síöustu fimm holunum fyrsta daginn, ég var tvo undir eftir þrettán holur og klúöraði síöan restinni, en skoriö var samt sem áöur allt í lagi.“ Sigurður sagöist hafa orðið Is- landsmeistari áriö 1982 og þegar blm. Mbl. spuröi hann hvort hann ætlaöi sér aö endurheimta titilinn svaraði hann: „Já, auðvitað reyni ég þaö og vona.“ Magnús Ingi er í NK, ekki GK Þau mistök uröu í blaðinu í gær aö Magnús Ingi Stefánsson var sagöur vera í Keili en þaö er ekki rétt því Magnús er í Nesklúbbi og hefur veriö það frá því hann byrj- aöi aö leika golf. Beðist er velvirð- ingar á þessu. Morgunblaðiö/Oskar • Síguröur Pótursson fagnar hér góöu pútti á 17. braut. Siguröur hefur nauma forystu í meistaraflokki karla á landsmótinu í golfi. Gott að leiöa ekki - sagði Gytfi Kristinsson íslandsmeistari Gylfi Kristinsson úr GS er ( ööru sæti, aöeins einu höggi á eftir Siguröi, eftir þrjá daga á landsmótinu ( golfi. Gylfi sem er núverandi íslandsmeistari var spurður aö þv( hvernig honum lit- ist á siöasta daginn. „Mér l(st al- veg ágætlega á þetta, þaö er ágætt aö leiða ekki síöasta dag- inn. Það er aö mínu mati mun meiri pressa á þeim sem leiöir og mér finnst þvf verra aö vera meö forustu fyrir síöasta daginn.“ Gylfi sagöist vera ánægöur meö spilamennsku sína þessa þrjá daga sem búnir væru. „Þetta fór þó illa í dag, ég var á pari eftir 14 holur en fékk þá „double bogey“ og nokkra „bogey" en aö ööru leyti gekk þetta bara vel," sagöi Gylfi aö lokum. • Steinunn Sæmundsdóttir lék vel í gær og er í þriöja sæti. Sigurður Pétursson með forystu Landsmóti GSÍ var framhaldiö á Grafarholtinu ( gær og var spennan meiri en nokkru sinni fyrr. í meistaraflokki karla hefur Siguröur Pétursson úr GR for- ustu, hefur notaö 226 högg, annar er Gylfi Kristinsson úr GS, núver- andi íslandsmeistari, á 227 högg- um og þriöji er Magnús Ingi Stef- ánsson úr Nesklúbbnum og hefur hann notaö 228 högg. Næstir eru þeir jafnir Ragnar Olafsson úr GR og Ulfar Jónsson úr Keili á 229 höggum, ívar Hauksson GR er ( sjötta sæti á 230 höggum og Björgvin Þorsteinsson, einnig úr GR, er í sjöunda sæti á 232 högg- um. j gær var keppnin æsispennandi og skemmtileg. Gylfi púttaöi ævin- týralega á 14. holunni. Kúlan fór beint í holuna af rúmlega 20 metra færi. Sigurður Pétursson lenti í erf- iöieikum á 17. holu. Teigskotiö fór út í röff, næsta högg hjá honum lenti í sandgryfju og höggiö úr „bönkernum“ rétt komst upp á bakkann og var um 50 sentimetra frá því aö komast inn á gríniö. Sig- uröur tók pútterinn og lagöi kúluna snyrtilega í holuna og bjargaöi því sem bjargaö varö meö þessu glæsilega pútti. Ragnar Ólafsson lék fyrstu níu holurnar allar á fjórum höggum, sama hvort þær voru par 3 eöa 5. Á 18. og síöustu holunni var kútan hjá honum um 20 metra frá hol- unni og nokkur hliöarhalli var á leiö hennar í holuna. Ragnar sýndi þá hvaö í honum býr og sendi kúl- una rakleiöis í holuna. Glæsilegt pútt. Skoriö hjá meistaraflokks- mönnum í gær var mjög gott. Magnús Ingi og ívar léku báöir á 73 höggum. Eins og sjá má á stööu efstu manna verður keppni í dag örugglega mjög spennandi og ekkí er aö efa aö allir þeir sem í efstu sætunum eru ætla sér aö leika vel og sigra. Svo viröist viö fyrstu sýn aö fyrstu sjö mennirnir eigi mögu- leika á aö raöa sér í fyrstu þrjú sætin. I meistaraflokki kvenna hefur Ásgerður Sverrisdóttir íslands- meistari úr GR tólf högga forskot eftir þrjá daga, hefur leikiö á 242 höggum, og viröist ekkert geta komiö í veg fyrir öruggan sigur hennar. Hún hefur leikiö af miklu öryggi og hefur sýnt nokkra yfir- buröi yfir aöra kvenkylfinga. I ööru sæti er Sólveig Þor- steinsdóttir á 254 höggum og Steinunn Sæmundsdóttir er í þriöja sæti á 260 höggum. Þær eru báöar úr GR eins og Ásgeröur. Magnús Ingi Stefánsson Frekar feiminn við þá bestu í þriöja sæti í meistaraflokki karla er Magnús Ingi Stefánsson úr Nesklúbbi og lék hann eínstaklega vel í gær. Hann var spuröur að því hvernig honum Kkaði aö leika meö „gömlu“ kempunum Gylfa og Siguröi ( holli í dag. „Alveg ágætlega, en samt er maöur frekar feiminn viö þá,“ sagöi Magnús sem er tvítug- ur og hefur veriö í golfi frá því hann var tólf ára gamáll. Magnús sagöi aö hann heföi lent í tíunda sæti á íslandsmótinu fyrir tveimur árum og þaö væri þaö hæsta sem hann heföi komist á íslandsmóti. I fyrra varö hann i fimmtánda til tuttugasta sæti og þvi er hér um mikla framför aö ræöa hjá honum. „Ég er alveg ákveðinn í því að veröa í betra sæti en óg hef verið áður,“ sagöi Magn- ús aö lokum. Njotið qóðm vdtinqa x pgru vmrwajt Við bjóðumupp áfleiraenmatseðií&m seflrtitimu Sjáum meðaC annars tim exnkasamfivcemi jyrir starfsmatinahópa, félagasamtöh, Errúðkattp, áttfiagcusamtöft, cettarmót o.fí. Um fieígar erum xnð rneð funar feáköAnsœCu griCCveisCur. Fyrir 6ömin erum við með 6áta sem þau geta sigCt á vatninu. CAunið að við erum einnig með 6ensín, oCíusöCu og f>j ónustumiðstöð fyrir tjaCcCCráa og CtjóCfvýsafóCft. Verið veCCtorrún. Atfu Við vdtum dvaíarafsíátt jjyrir þá sem viíja (fvefya í ttúðri viku Tískusýráng í kvöíd ki 21.00 sýna Módelsamtökin gícesiíecjcxn uííajjutnað jm Áfajvssi HÖTEL YALHÖLL ÞINGVÖLLUM • SÍMI 99-4080

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.