Morgunblaðið - 03.08.1984, Page 32
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTl. SlUI 11633
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
INNSTRÆTI. SlMI 11340
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
VERÐ I LAUSASÖLU 25 KR.
Þrjú dönsk
skip á loðnu-
veiðum við
Jan Mayen
ÞRJtJ dönsk nóUveiðiskip eru á
loðnuveiðum Uepar 200 mflur austan
Grænlands og 60 sjómflur norðvestur
af Jan Mayen i því svaeði sem ekki
befnr enn tekist samkomulag um milli
Dana og Norðmanna, þar sem enn er
ósamið um efnahagslögsögu milli
Crænlands og Jan Mayen.
Að sögn Geirs Hallgrímssonar,
utanrikisráðherra verða mótmæli
send til danskra stjórnvalda vegna
þessa, með tilvfsun í Jan Mayen-
samkomulagið, þar sem íslending-
um eru tryggð 85% allrar loðnu sem
veiða má úr stofninum. Af hálfu is-
lenskra stjórnvalda hefur komið til
tals að senda varðskip á vettvang,
en engin ákvörðun liggur fyrir um
hvort slíkt verður gert. Þá hefur
Evrópubandalagið (EBE) tekið
ákvörðun um 105 þúsund tonna
loðnukvóta fyrir Grænlandssvæðið.
Sjá frétl á bU. 2 „ErripibudaJagib ákveðar
105 bOaaad leata loAauktóU.''
Skýjað syðra,
sól nyrðra
VEÐRIÐ um helgina verður svipað
og verið hefur og verður sunnan- og
suðvestanátt rikjandi á landinu^
samkvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið aflaði sér á Veðurstofu Is-
lands i gærkvöldi. Þetta þýðir að
skýjað verður á SV- og Vesturlandi
og jafnvel rigning annað slagið.
Hins vegar bendir allt til að bjart
verði yfir Norður- og Austurlandi.
Tveir fallhlífastökkvarar breiða úr íslenska fánaanum í háloftunum yfir Reykjavík á miðvikudag. Stokkið var í tilefni af stofnun Fallhlífaklúbbs
Reykjavíkur. Fallhlífastökkvararnir og Ijósmyndarinn stukku úr flugvél í 10.000 feta eða 3.300 metra hæð og létu sig falla með fánann í 50 sekúndur,
7.500 fet, áður en þeir opnuðu fallhlífar sínar. Meðalfallhraðinn án fallhlífa var 200 km á klukkustund.
Þrír kærðír fyrir misnotkun á krítarkortum:
Fluttir 18 þúsund Líbýu
menn til og frá Mekka
ARNARFLUG hefur saraið við líb-
ýska flugfélagið Libyan Arab Airlin-
es um pílagrímaflug. Fluttir verða
um 18 þúsund farþegar frá borgum
f Lfbýu til Jeddah í Saudi Arabíu og
tíl baka. Arnarflug fær 125 milljón-
ir króna fyrir flugið, sem er um-
fangsmesta pflagrfmafhig í sögu fé-
lagsins. Arnarflug mun taka á leigu
tvær Boeing 707-þotur til flutn-
inganna og munu íslenskar áhafnir
annast flugið að mestu leyti.
Pílagrímaflutningarnir hefjast
17. ágúst og standa frá þeim degi
til 31. ágúst verða pílagrímar
fluttir frá Líbýu til Jeddah í
Saudi Arabíu en þaðan er stuttur
spölur til Mekka, þar sem mesta
trúarhátíð Múhameðstrúar-
manna er haldin ár hvert. Heim-
flutningur pílagrímanna stendur
síðan frá 17. september til 1.
október. 42 starfsmenn Arnar-
flugs vinna að þessu verkefni, og
auk þess 15 erlendir flugliðar.
Pílagrímaflugið er á háannatima
Arnarflugs en starfsfólkið hefur
hliðrað til á vöktum og frestað
fríum til að gera félaginu það
kleift að taka þetta verkefni að
sér.
Líbýumenn hafa þegar greitt
Arnarflugi talsverðan hluta
samningsupphæðarinnar og eru
tveir starfsmenn félagsins nú f
London að ganga frá leigusamn-
ingum á þotum til flugsins. Hvor
þota ber 189 farþega. Halldór
Sigurðsson, deildarstjóri er-
lendra verkefna hjá Arnarflugi,
gerði samninginn við Lfbýumenn.
Þetta er f fimmta skipti sem
Arnarflug annast pilagrfma-
flutninga. Þetta er lang stærsti
samningurinn hingað til og flytur
félagið nú þrefalt fleiri pílagrlma
enn nokkru sinni áður.
Tók út 300 þúsund
á nokkrum dögum
- annar keypti farmiða fyrir fjölskylduna til Ástralíu — aðra leið
BÚNAÐARBANKINN hefur kært
þrjá krítarkortahafa til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins fyrir misnotkun á
Visa-kortum erlendis. Hafa krítar-
kortahafarnir svikið út samtals
nærri hálfa milljón króna, þ.e. tekið
út peninga og greitt vörur og þjón-
ustu erlendis. Venjulegar innheimtu-
aðferöir bankans hafa ekki borið
árangur. Handhafar eins kortsins
eru nú fluttir úr landi. Kærurnar
bárust RLR um miðja vikuna og er
rannsókn málanna að hefjast.
Stærsta málið varðar ungan
Reykvíking, sem eyddi nærri 300
þúsund krónum á nokkrum dögum
i Bandaríkjunum i vor. Um helm-
inginn, eða yfir 4.000 dollara,
hafði hann tekið út í reiðufé. Ann-
að máliö varðar hjón úr Kópavogi,
sem notuðu kortið til að ná út lið-
lega 100 þúsund krónum, m.a.
keyptu þau flugfarseðla til Ástr-
alíu, þar sem þau munu vera að
setjast að. Þriðja kæran Iftur að
einstaklingi, sem talinn er hafa
náð út um 60 þúsund krónum er-
lendis.
Þetta eru fyrstu formlegu kær-
urnar, sem Rannsóknarlögreglan
hefur fengið til meðferðar vegna
misnotkunar á krítarkortum, að
sögn Erlu Jónsdóttur, deildar-
stjóra hjá RLR. Áður höfðu borist
þar inn á borð þrjú kærumál en
við athugun kom í ljós að tvö mál-
anna voru á misskilningi byggð og
hið þriðja var leyst með því að
taka kortið af handhafa þess.
Sólon Sigurðsson, aðstoðar-
bankastjóri f Búnaðarbankanum
og stjórnarmaður í Visa-íslánd,
sagði f samtali við Morgunblaðið
að erfitt væri að koma í veg fyrir
að svona hlutir gerðust. Hins veg-
ar væri hér um að ræða þrjú til-
felli af sextán þúsund útgefnum
kritarkortum þannig að ekki væri
Flugleiðir:
hægt að tala um stórfellda mis-
notkun ef litið væri á heildina.
Þessi tilfelli sýndu hins vegar, að
menn komast ekki upp með að
misnota kortin á þennan hátt og
er hörðum innheimtuaðgerðum
beitt f slíkum tilfellum. „Ef að
menn hlíta ekki þeim reglum sem
settar eru varðandi notkun þess-
ara korta, verða þeir hiklaust
sviptir þeim og í svona sérstökum
tilfellum, eins og hér um ræðir, þá
verða þeir kærðir til rannsóknar-
lögreglunnar," sagði Sólon Sig-
urðsson.
17% farþegaaukning
hjá Flugleiðum í ár
VERULEG aukning hefur orðið á far-
þegaflutningum Flugleiða. Frá 1.
janúar til og með 1. júlí flutti félagið
124.132 farþega á leiðunum yfir
Norður-Atlantshaf og er aukning
17,2% miðað við sama tímabil í fyrra.
Á Evrópuleiðum voru á þessu tímahili
90.562 fluttir farþegar og er aukning-
in þar 17%.
Innanlandsflug hefur einnig
gengið vel nema hvað þoka hefur
tafið f júlfmánuði. Á tfmabilinu
sem að ofan greinir hafa verið
fluttir 116.036 farþegar sem er 2,3%
fleiri farþegar en á sama tfmabili
fyrir ári sfðan.