Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
5
Umhverfismálaráð Reykjavík-
ur veitti í gær, viðurkenningar
fyrir fegurstu götu borgarinnar
og að auki fvrirtækjum og öðr-
um aðilum viðurkenningu meðal
annars fyrir snyrtilegt umhverfi.
Viðurkenningarnar voru af-
hentar í Höfða í Reykjavík kl.
15 í gær og hlutu Fýlshólar í
Breiðholti nafngiftina feg-
ursta gata Reykjavíkur 1984.
Viðurkenningar fyrir fegurstu
götu borgarinnar eru veittar á
ári hverju og heldur hver gata
fegurðarmerki sínu í 10 ár,
nema dómnefnd finnist gatan
ekki bera heitið með réttu.
Dómnefndin sem valdi feg-
urstu götuna að þessu sinni
var lengi að gera upp hug sinn,
samkvæmt því sem Hafliði
Jónsson garðyrkjustjóri borg-
arinnar, sem á sæti í nefnd-
inni, tjáði blaðamanni Mbl.
Sagði hann að nefndin hefði
lengi leitað að götum sem til
greina kæmu, en þær hefðu
verið nokkrar, og síðan hefði
tekið sinn tíma að velja þá
götu sem skaraði fram úr.
Auk þess að veita viður-
kenningar fyrir fegurstu göt-
una, veitti umhverfismálaráð
viðurkenningar til Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins að
Rauðarárstíg 25 fyrir heil-
stæða og listræna hönnun á
lítilli lóð.
Múlalundur í Hátúni lOc
fékk ennfremur viðurkenn-
ingu fyrir snyrtilegan frágang
við eina fjölförnustu umferð-
argötu borgarinnar.
Prentsmiðjunni Odda að
Höfðabakka 7 var veitt viður-
kenning Umhverfismálaráðs
fyrir smekklegan frágang á
lóð, bílastæði og snyrtilega
umgengni.
Hótel Loftleiðir, Flugleiðir
og flugmálastjórn á Reykja-
víkurflugvelli fengu viður-
kenningu fyrir það framtak
sitt að efna til sameiginlegs
átaks stjórnar og starfsfólks
um að fegra og snyrta um-
hverfi vinnustaðarins.
Frakkiand:
Fangar mót-
mæltu með
fingurhöggi
SJÖ refsifangar í frönsku fangelsi
huggu af fremsta köggulinn af litla-
fingri vinstri handar til þess að mót-
mæla aðhúnaði fanga í landinu og
frönsku réttarfari, að því er fram
kemur í frásögn Börge Visby, frétta-
ritara danska blaðsins Politiken í
París.
Sjömenningarnir halda því
fram, að þeir hafi verið dæmdir að
ósekju. Hafa þeir sent Robert
Badinter dómsmálaráðherra mót-
mælabréf og ætluðu auk þess að
láta afhöggnu fingurkögglana
fylgja með. En þeir komust þó
aldrei inn á borð hjá ráðherran-
um, því að reglurnar mæla svo
fyrir, að fangarnir megi aðeins
senda bréf, ekki pakka.
Þeir segja, að refsingum fyrir
agabrot sé beitt í miklu óhófi og
eftir geðþóttaákvörðunum. í lok
bréfs síns, sem birst hefur í
frönsku blaði, segja fangarnir:
„Við munum verða heilir af sárum
okkar, en hins vegar megum við
áfram búa við þann órétt, sem
framinn hefur verið á okkur ...
Að dæma án sannana eru vinnu-
brögð, sem eiga hvergi annars
staðar heima en í alræðisríkjum."
Jáhinnnýiframdrifni MAZDA 626 DIESEL eyðir aðeins 4.7 lítrum á hundraðið, ef ekið er
á jöfnum 60 — 90 km. hraða.
Nýja dieselvélin er afar hljóðlát, þýðgeng og aflmikil, þannig að vart finnst að bíllinn er
með dieselvél, þegar setið er undir stýri.
MAZDA 626 DIESEL hefur hlotið einstaklega góða viðtökur hérlendis, því á þessu ári
höfum við seld hátt í 50 slíka bíla, sem er einsdæmi fyrir fólksbíla með dieselvél.
Við getum nú boðið örfáa MAZDA 626 DIESEL GLX með vökvastýri og ríkulegum búnaði
úr síðustu sendingu á einstöku verði:
Kr. 423.000
Til atvinnubílstjóra: Kr. 326.000
Gengisskr. 15.8.84
mazDa
BlLABORg hf.
Smiðshöfóa 23, sími 812 99