Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 49

Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 Þorbjörg Halldórs frá Höfnum - Minning Fædd 18. ágúst 1904 Dáin 9. ágúst 1984 Frú Þorbjörg fæddist í Adding- ton í íslendingabyggðum Mani- toba í Kanada. Faðir hennar var Helgi Bjarnason frá Hrappstöðum í Víðidal. Föðurfjölskyldan fluttist öll til Ameríku á árunum á milli 1890 og 1900 að undanskildum Tryggva Bjarnasyni bónda og al- þingismanni í Kothvammi, föður Helga Tryggvasonar kennara og þeirra systkina. Móðir Þorbjargar, Helga Jó- hannsdóttir, var systir Ólafíu Jó- hannsdóttir. Móðir þeirra Ragn- heiðar var úr hinum landskunna systkinahópi Þorbjargar ljósmóð- ur og Benedikts Sveinssonar al- þingismanns. Helga var tvígift og fluttist með fyrri manni sínum vestur um haf en þar slitu þau samvistir. Með síðari manni sín- um, Helga, eignaðist hún 5 börn og með þremur börnum Helgu af fyrra hjónabandi var systkinahóp- ur Þorbjargar átta börn. Tvær systranna áttu eftir að flytjast til Islands. Auk Þorbjargar var það Elísabet sem giftist Thor Brand síðar þjóðgarðsverði á Þingvöll- um. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson skráði stuttar ævisögur þeirra hjóna í bókina „Heim til Islands" (Setberg 1967). í ævisögu Elísabetar er m.a. dregin upp allglögg mynd af kjör- um systkinahópsins í uppvextin- um á mörkum auðna Kanada í nábýli við indíána og ýmsa harð- neskju náttúrunnar, lengi vel í bjálkakofum. Þegar Þorbjörg var tíu ára fór hún í einskonar fóstur til nöfnu sinnar og föðursystur og manns hennar Páls Eyjólfssonar. Frá heimili þeirra gekk hún í skóla, fyrst barna- og gagnfræða- skóla og síðan kennaraskóla 1 Saskatoon, Saskatchwan. Eftir eins vetrar nám hóf Þor- björg að kenna þá aðeins átján ára að aldri en jafnframt sneri hún sér af alvöru að því sem hafði ver- ið hennar áhugamál frá blautu barnsbeini, tónlistinni. Kirkjuorg- elleikari var hún í heimabæ sínum Wynyard þegar frá árinu 1921 en árið 1925 lauk hún í Toronto kenn- araprófi konunglega tónlistarskól- ans í London í píanóleik. Árið 1926 lauk hún kennaraskólanum og kenndi næstu árin á nokkrum stöðum í Saskatchewan og Winni- peg- Á þessum árum kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum, Sig- fúsi Halldórs frá Höfnum, sem þá var ritstjóri Heimskringlu og mjög umsvifamikill í félagsstörf- um Vestur-íslendinga. Trúlega hafa þau kynni tekist í gegnum tónlistina sem báðum var hugleik- in. Sigfús var allnokkru eldri en Þorbjörg og nánast heimsborgari, með litríkan feril að baki, m.a. i Austurlöndum fjær. Sigfús var formaður heimferðarnefndar Vestur-Islendinga á Alþingishá- tíðina 1930 og daginn fyrir heim- ferðina, hinn 11. júní 1930 giftust þau og héldu „heim“. Sú ferð varð aðeins aðra leiðina og þá um haustið tók Sigfús við skólastjórn og stýrði gagnfræða- og iðnskólanum á Akureyri á ár- unum 1930—1935. Þorbjörg kenndi við gagnfræðaskólann og þegar þau fluttust suður til Reykjavíkur árið 1935 hóf hún að kenna við Samvinnuskólann. Þar kenndi hún til ársins 1949. Á skólaárinu 1946—1947 tók hún við vélritunarkennslu í Kvennaskól- anum í Reykjavík og enskukennsl- unni tveimur árum síðar. Um það leyti mun heilsu Sigfúsar hafa hrakað og framfærsla heimilisins og barnanna tveggja færðist að mestu eða öllu leyti yfir á herðar Þorbjargar. Sigfús lést árið 1968 en Þorbjörg kenndi við Kvenna- skólann til ársins 1974 að hún lét Sœmundur Þórðar- son - Minningarorð Fæddur 29. október 1888 Dáinn 18. júlí 1984 Hann afi, Sæmundur Þórðar- son, er dáinn. Hann fæddist I Garðakoti í Mýrdal 29. október 1888. Foreldrar hans voru Guðrún Finnsdóttir og Þórður Sigurðsson. Hann fór í fóstur frá foreldrum sínum til Sæmundar Árnasonar bónda í Sólheimum og var afi þá fjögurra ára. Hann var vinnumað- ur í Fjósum eitt ár en fór síðan til Reykjavíkur 19 ára gamall og lærði trésmíði. Hann var 25 ára er hann kvæntist Bergþóru Björns- dóttur frá Króki í Gaulverjabæj- arhreppi. Þau eignuðust ekki börn en tóku dreng í fóstur, Skarphéðin Þorkelsson, er þá var 6 ára, en þetta var árið 1918. Þá voru Sæm- undur og Bergþóra búin að kaupa húsið Barónstíg 16 hér í Reykjavík og þar bjó afi til æviloka. Þau komu fóstursyni sínum til mennta, en hann nam læknis- fræði. Skarphéðinn kvæntist Láru Björnsdóttur og eignuðust þau 6 börn. Tvö þeirra dóu ung. Afi missti fósturson sinn árið 1950. Fluttist þá ekkjan til afa og ömmu með börnin. Ári síðar missti afi ömmu. Lára tók þá við heimilinu og ólu þau börnin upp í samein- ingu. Tvö börn bættust við, sem Lára eignaðist. Þeim gekk hann í föðurstað jafnt og hinum. Sæmundur afi var mjög hægur maður, en skapfestan mikil. Hann var skemmtilegur í viðræðum, léttur og kátur. Hann hafði yndi af að tefla og spila á spil. — Eig- um við góðar minningar um skemmtileg spilakvöld, sem aldrei munu gleymast. Árið 1977 flutti Lára frá afa, en Skarphéðinn son- ur hennar og kona hans tóku við búskapnum með honum. Lýsir það vel hve viðmótsþýður maður hann var og skemmtilegri skapgerð. Vinir ungu hjónanna urðu góðir vinir hans og komu oft til þess eins að tefla, spila eða rabba við hann. Þó hann hafi verið orðinn mjög fullorðinn var hann ern vel, las, tefldi og fylgdist vel með öllu og var óþreytandi að segja okkur frá bernsku- og æskuárum sínum, fyrir utan allan annan fróðleik, sem hann miðlaði okkur af, bæði úr bókum og frá atburðum þjóðar og heims. Það vantar mikið þar sem hann er horfinn og skarðið stórt, en við eigum góðar minn- ingar sem aldrei gleymast. Það kom einstaka sinnum fyrir að hann gleymdi nestinu sínu heima og þá var maður sendur til hans í vinnuna, en hann var verk- stjóri í Rúllu- og hleragerðinni hjá Ólafi Flosasyni. Oft var hann í smiðjunni þegar maður kom og sú sjón líður ekki úr minni að sjá hann standa þar stóran og þrek- mikinn taka járn úr eldinum með þykkum vinnulúnum höndum. Hann vann erfiðisvinnu frá barn- æsku þar til fæturnir sviku hann, þá kominn hátt á níræðisaldur. Já, margs er að minnast er við kveðjum hann afa. — Spilakvöld- in, þegar systurnar á Lokastígnum komu, bíltúrarnir út á Seltjarn- arnes, til ólafar systur hans og Gunnþórunnar og bílferðirnar til þess að njóta sumarblíðunnar uppi í sveit og stundirnar, þegar maður hreiðraði um sig í stólnum uppi í herberginu hans og átti góða og rólega stund með honum. Við eigum fjársjóð í minning- um, sem geymast og aldrei glatast er við kveðjum hann, öll barna- börnin, barnabarnabörnin. tengdabörnin, Finnur bróðir hans í Noregi og frændfólkið þar. Bless- uð sé minning afa. Birna Skarphéðinsdóttir og Skarphéðinn Helgason og fjölskyldur. Kransar og kistuskreytingar| Flóra, Langholtsvegi 89, sími 34111. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. af störfum fyrir aldurs sakir eftir 28 ára gifturíkt starf. Það var löngu eftir að frú Þor- björg hafði hafið störf við Kvennaskólann að ég kom þangað fyrst og kynntist þessari fíngerðu og virðulegu konu. Frá fyrsta degi var hún í mínum huga sérstök fyrir ýmissa hluta sakir. Kynni okkar urðu að vísu nær eingöngu á vettvangi starfsins og jafnvel þar aldrei mjög náin því að hún kom mér a.m.k. fyrir sjónir sem mjög hlédræg kona sem aldrei talaði um sína hagi og hélt starfi og einkalifi mjög aðskildu. Gerð hennar var hins vegar þess háttar að nærvera hennar og viðmót gáfu vettvangi hennar svip og styrk. Þetta og það að hún var þar í hópi kennara eins og frú Salome Þ. Nagel, Hrefnu Þorsteinsdóttur og skólastjórans, dr. Guðrúnar P. Helgadóttur, svo að nokkrar séu nefndar af þeim ágæta hópi, gerðu Kvennaskóíann að mjög sérstök- um vinnustað. Frú Þorbjörg verð- ur í mínum huga óafmáanlegur hluti þessa hins gamla skóla í fleiri en einum skilningi. Frú Þorbjörg var tillögugóð og jafnan jákvæð; í minningu minni alltaf með léttu yfirbragði sem gaf umhyggju hennar fyrir skóla- starfinu og kennslunni aukið vægi. Nákvæmni hennar, fumleysi og sjaldgæflega fáguð framkoma 49 kölluðu ósjálfrátt á hið sama í umhverfi hennar. Þetta var hennar styrkur í kennslunni sem í fáum orðum sagt fórst henni frábærlega vel úr hendi. Ef til vill hefur nemendum hennar á stundum fundist hún nokkuð eftirgangssöm og sumt jafnvel jaðra við smásmygli. Ég hygg þó að allir hennar nemendur séu henni þakklátir fyrir þá ögun og nákvæmni sem hún tamdi þeim. I eðli hennar var heldur engin smásmygli heldur var að- ferð hennar af ætt listarinnar sem veit að það eru hinir fínu drættir og mjúku tónar sem gefa hinu endanlega verki gildi og yfirbragð vandaðra vinnubragða. Nú er hún fallin frá þessi ágæta kona sem manni virtist þrátt fyrir háan aldur vera síung. Það er þeim sem lifa huggun að minnast þess að hún naut um skeið frið- sællar en þó um leið athafnasamr- ar elli við allgóða heilsu allt fram undir það sfðasta. Ég sendi börn- unum, Þuríði og Halldóri, samúð- arkveðjur og þakka um leið hlý- legt viðmót móður þeirra ásamt ýmislegri uppörvun sem hún veitti mér í starfi alla tíð. Ekki síst stendur Kvennaskólinn í Reykja- vík í þakkarskuld fyrir að hafa svo lengi notið krafta frú Þorbjargar og skal það hér með þakkað svo vel sem orð duga. Aðalsteinn Eiríksson t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför sonar míns, JÓNATANS VALGARÐSSONAR. Valgaröur Jónatanason, Jónína Pálsdóttir. t Þökkum af alhug öllum þelm, nær og fjær, sem sýnt hafa okkur samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og bróöur, JÓNS S. ÓLAFSSONAR, skrifstofustjóra, Hávallagötu 3, og viröingu þá sem minningu hans var sýnd. Guö blessi ykkur. Erna Óskarsdóttir, Ólöf S. Jónsdóttir, Kjartan Gíslason, Óskar G. Jónsson, Þórunn H. Matthlasdóttir, Herdís Þ. Jónsdóttir, Ingi Sverrisson, Halla G. Jónsdóttir, barnabörn og systkíni hins látna. Legsteinar granít — marmari ^0lanCt xf. Opið kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar símar 620809 og 72818. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Legsteinar Framleidum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf _______um gerð og val legsteina._ !| S.HELGASON HF ISTEINSMHMA ■ SKEMMUVEGI 48 SÍMI 76677

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.