Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 45

Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 45 Magnús Jónsson er Hefnfirðingur í húð og hár. Ljósm. Árni Sæberg. Vísur sem urðu til ofan í gröfunum Spjallað við Magnús Jónsson í Hafnarfirði Hann vinnur í elsta húsi Hafnarfjarðar við Vesturgötu og hefur unnið þar síðan 1980. Húsið, sem eftir því sem næst verður komist er síðan 1803 til 1805 var kom- ið í niðurníslu og gert upp. Bjami riddari Sivertsen bjó í húsinu, og hefur það líklega verið á sama stað frá upphafi. Sumir vilja þó halda því fram að húsið hafí verið flutt, en engar sönnur eru fyrir því. Það var í þessu húsi sem við hittum Magnús Jónsson að máli ekki alls fyrir löngu. Tilefni samfunda okkar er að blaða- maður hafði heyrt á skot- spónum af harla sérstæðum bókum, sem Magnús hefði tekið saman. „Ég hef gaman af Ijóð- um, en því miður fer þeim fækkandi sem hafa brag- eyra. Fólk áttar sig oft ekki á höfuðstöfum, stuðlum og því öllu saman,“ segir Magnús þegar blm. innti hann eftir kveðskap hans. „Faðir minn, Jón Helgason, hefur alla tíð gert meira af því að yrkja en ég, en það hefur aldrei komið út ljóðabók eftir hann. Draumur hans er að gefa út bók með ljóðum þegar hann verður níræður á næsta ári. Ég er fæddur í Hafnarfirði og uppalinn. Á mínum uppvaxtar- árum heyrði ég mikið að vísum og naut þeirra. Það var einnig mikið talað um vísur og ég tel mig hafa gott brageyra. í raun- inni hef ég sáralítið ort hvað magnið varðar en foreldrar mín- ir hafa verið iðnir við það. Þau eru bæði á lífi, faðir minn, Jón Helgason, 89 ára að aldri og móðir mín, Halla Magnúsdóttir, 90 og dvelja á Sólvangi. Faðir móður minnar og móðir föður míns voru einnig með gott brag- eyra og gerðu eitthvað af því að yrkja. Magnús hefur gefið út þrjár bækur. „Bær í byrjun aldar“ sem er handskrifuð bók, þar telur hann upp gömul hús í Hafnar- firði lið fyrir lið og fólkið sem upphaflega í þeim bjó. Studdist hann að nokkru við minni móður sinnar. Bók þessi er illfáanleg í dag. Þá hafa komið út tvær sér- stæðar bækur er heita hvor um sig „100 Hafnfirðingar". í hvorri bók eru 100 Hafnfirðingar teknir fyrir, myndir af þeim birtar og vísa við hverja mynd. Við spurð- um Magnús nánar út í bækurn- ar, hvernig honum hefði dottið í hug að fara út í þetta og hvernig hann hefði valið fólkið í bækurn- ar. Allir dánir sem í bókunum eru Fyrri bókina gaf ég út árið 1973 en hina síðari 1975. Það er sami maðurinn sem hefur tekið allar myndirnar í bókina, Gunn- ar Rúnar Ólafsson. Myndirnar voru teknar mest á áratugnum 1940 til 1950 og voru þetta rúm- lega 200 myndir. Hann tók myndirnar eins og fólkið kom fyrir á götunni, en þá á ég einnig við aðflutta Hafnfirðinga sem innfædda. Það má eiginlega segja að ég hafi ekki farið eftir neinu sér- stöku við val fólksins í bókina, fyrst hef ég líklega valið þá er voru mér minnisstæðastir. Allir eru nú dánir sem eru í bókunum. Ég vann mörg sumur í kirkju- garðinum og hugsaði oft margt á meðan ég var að vinna þar, þannig að margar vísurnar um fólkið urðu til ofan í gröfunum í kirkjugarðinum sem ég held að sé óvenjulegt. Flestallar vísurn- ar í bókinni eru eftir mig, þó kemur það fyrir að ef fangamark annars er undir vísu er hún eftir annan en það er örsjaldan og aldrei í fyrri bókinni. Ég man eftir öllum mönnunum 1 bókun- um en þeir lifðu fram yfir 1940, því myndirnar eru teknar á ár- unum ’40 til ’50. Þessi bók er enn til í bókabúðum Hafnarfjarðar á góðu verði, og hjá mér. Ég man eftir einu undarlegu tilviki í sambandi við vísnatil- búning minn. Ég orti nefnilega um einn háaldraðan mann sem var ekki dáinn. Síðan er ég nokkrum dögum seinna að vinna við gröf einhvers og spyr mann- inn sem ég er að vinna með hver eigi að vera jarðsettur þar og er það þá maðurinn sem ég skömmu áður hafði verið að yrkja um. Þannig að vísan um hann varð ekki til í kirkjugarð- inum. grg JÓN VlDALÍN HINRIKSSON f, 8. des. 1904, d. 20, aprll 1961 Rauðbirkinn og röskur Jón, í ríin fckk orðum snúið, stuiulað smíðar, fci;rað frón. fjallskil i;crt og rúið. JÚLÍUS V. J. NVBORG skipasmiður f. S. júIi IS95, d. .5. ágúst 1964 Júlli Nýborg fr.imtaksfús frumdr.ítt svndi smiðnum. Ungkarl var cn átti hús umkringt a-yniviðnum. 100 myndir sem slíkar eru birtar í hvorri bók með vísu um persónuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.