Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 34

Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 SVIPMYND Á SUNNUDEGI/ MARIO CUOMO Vegur Marios Cuomos, ríkisstjóra í New York, hefur faríð vaxandi meðal demókrata og margir spá því að hann verði forsetaframbjóðandi flokksins í kosningunum 1988. Forsetaefni demókrata í kosningunum 1988? Enda þótt nú sé ótímabært að huga að forsetaframbjóðanda demókrata í Bandaríkjunum árið 1988, er því ekki að leyna, að veg- ur Marios Cuomos ríkisstjóra f New York hefur farið öldungis vaxandi ínnan flokksins. Er jafn- vel farið að orða hann við forseta- framboð 1988 nái Walter Mondale ekki kjöri nú í nóvember. Sumir stjórnmálaskýrendur telja, að raeða Cuomos á flokks- þingi demókrata í síðasta mán- uði, þar sem Walter Mondale fékk ásamt varaforsetaefni sínu, Gerraldine Ferraro brautar- gengi, hafi markað upphaf nýs tímabils í sögu flokksins. En hver er Mario Cuomo? Fyrir tveimur árum var hann í hlutverki hins sigraða, og fæstir bjuggust við að hann ætti fram- tíð fyrir sér í stjórnmálum. Þá keppti hann um útnefningu demókrata til ríkisstjóra í New York, en andstæðingi hans, Edward Koch, sem er borgar- stjóri New York-borgar, var spáð auðveldum sigri. Tölfræðin benti einnig til þess: Á átta ár- um hafði Cuomo þrisvar sinnum lotið í lægra haldið fyrir Koch í forkosningum til borgarstjóra- embættisins. En í berhögg við alla spádóma bar Cuomo sigur- orð af Koch í þetta skipti, og sigraði svo repúblikann Lewis Lehrman í sjálfum kosningunum til ríkisstjóra. Þó hafði Lehrman varið meiri fjármunum í kosn- ingabaráttuna, en nokkur önnur dæmi eru til um í sögu New York-ríkis. Starfaöi í Brooklyn Mario Cuomo, sem er sonur nýlenduvörukaupmanns, er nú 52 ára að aldri. Á yngri árum þótti hann liðtækur hornabolta- maður, og átti jafnvel þess kost að komast í atvinnumennsku í þeirri grein. En meiðsli gerðu að verkum, að sá draumur rættist ekki. Hann ákvaö því að snúa sér að háskólanámi og tók lögfræði- prófi frá St. John háskólanum. Eftir það vann hann um tíma, sem skrifstofumaður hjá áfrýj- unardómstóli í New York-ríki, en sótti síðan um vinnu hjá lögfræðiskrifstofum í Wall Street-hverfinu í New York. Ekki tókst honum þó að fá þar vinnu, en réð hann sig þá hjá lögfræðiskrifstofu i Brooklyn- hverfi í New York. Þar fór hann að vinna að ýmsum samfélags- málum, en segja má að áhugi hans á stjórnmálum hafi ekki vaknað fyrr en Jóhn Lindsey fyrrum borgarstjóri í New York bað hann um að gerast sátta- semjari í húsnæðisdeilu í borg- arhverfinu Queens. Málið snerist um hve margra hæða byggingar ætti að reisa á einu svæði þar, en skipuleggj- endur þess höfðu mælt með 24 hæðum. Cuomo var fljótur að leysa deiluna, og var komist að samkomulagi um að reisa 12 hæða byggingar á umræddu svæði. Er þetta talið táknrænt fyrir starfsaðferðir Cuomoss. Gekk illa í stjórnmálum í fyrstu Hvað sem þvi líður verður ekki sagt, að fyrstu ár hans í stjórn- málum hafi borið mikinn árang- ur. Árið 1974 sóttist hann eftir útnefningu demókrata sem vara- ríkisstjóraefni, en án árangurs. Siðan bauð hann sig í fram sem borgarstjóraefni flokksins, en beið eins og áður sagði ósigur fyrir Koch. 1978 tókst honum loks, að verða vararíkisstjóri í New York. Þá fór hann að leggja grund- völl að frekari frama sínum meðal demókrata. T.a.m. stjórn- aði Cuomo baráttu demókrata fyrir endurkjöri Jimmys Carters fyrrum forseta og Mondales varaforseta hans 1980. Síðan var hann kjörinnn ríkisstjóri 1982. Og í síðasta mánuði var hann aðalræðumaður flokksþings demókrata. Af þessu má öldung- is ráða, að Cuomo hefur tryggt mjög stöðu sína í flokknum, og því hefur nafn hans æ oftar bor- ið á góma í sambandi við forsetakjör 1988, einkum ef Mondale og Ferraro ná ekki kjöri í nóvember. I skoðanakönnunum, sem gerðar hafa verið upp á síðkast- ið, ber mikill meirihluti kjós- enda honum vel söguna í starfi, og gildir einu hvort um íhalds- menn eða frjálslynda er að ræða. Hvað kemur til? Ljóst er, að sveigjanleiki er einn þeirra kosta, sem hann er búinn 1 stjórnmálum; hann hefur ávallt leitast eftir málamiðlun, sem flestir geta sætt sig við. En það, sem hugsanlega hefur komið Cuomo best, er að hann er skín- andi ræðumaður. Ræða hans á flokksþingi demókrata, sem var geysilega vel tekið, bar því glöggt vitni. Gagnrýndi Reagan Þar hélt hann uppi hörðum árásum á Rónald Reagan Banda- ríkjaforseta,.-og skírskotaði oft til sögunnar, stefnu demókrata til réttlætingar. En hann fór þó engan veginn ótroðnar slóðir í þeim efnum, og vitnaði til New Deal-stefnu Franklíns Roose- welts, sem mörkuð var í kjölfar kreppunar miklu á fjórða ára- tugnum; enda þótt margir demó- kratar telji að upprifjun hennar eigi ekki við á timum Reagans og þeirrar hægri sveiflu, sem nú virðist vera í Bandaríkjunum. Cuomo sagði að New Deal hafi gert að verkum, að heilu kyn- slóðirnar hefðu hafist upp í mið- eða hástéttir bandarísks samfé- lags. Hann kvað ennfremur Reagan hafa haft rangt fyrir sér þegar hann lýsti bandarísku þjóðinni sem „geislandi borg á hárri hæð“. Hin „geislandi borg" Reagans væri einungis sjáanleg frá Hvíta húsinu og verönd for- setans á býli sínu í Kaliforníu. „Það er önnur hlið á þessari borg, þar sem fólk getur ekki greitt húsnæðislán sín; þar sem ungt fólk getur hvorki fest kaup á húsnæði né farið menntaveg- inn; þar sem heilu fjölskyldurn- ar sjá drauma sína um framtíð barna sinna fara í súginn. Það er örvænting, sem gagntekur fólk sem þú aldrei sérð, herra forseti, og á þeim stöðum sem þú aldrei sækir heim í hinni geislandi borg,“ sagði Cuomo m.a. í ræðu sinni. Hér erum við komin að því, sem Cuomo leggur mikla áherslu á: ræktun fjölskyldu- banda. í raun má segja að kjarni málflutnings Cuomos sé að sam- eina íhaldssemi og frjálsyndi sem mest. Leggur hann áherslu á arfleifð þjóðarinnar og forn siðferðisgildi, en að sama skapi vill hann með öllum ráðum upp- ræta atvinnuleysi í bandarisku þjóðfélaginu Og það er sennilega ástæða þess, að hann á svo miklu fylgi nú að fagna. íslenskur iónaður á uppleið: Sölu- og framleiðsluaukning — Kemur fram í nýlegri könnun á vegum Félags íslenskra iðnrekenda ÍSLENSKUR iönaöur er á uppieið, samkvæmt niður- stöðum könnunar, sem Félag íslenskra iðnrekenda gerði nýverið. Könnunin náði til 84 iðnfyrirtækja í 22 iðngreinum og er greint frá niðurstöðum hennar í frétta- bréfinu Hagsveifluvog iðnaðarins, sem Félag íslenskra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna gefur út. Könnun, sem Félag íslenskra iðnrekenda gerði fyrir skömmu náði til 84 iðnfyrirtækja og 22 iðngreina, en alls eru umrædd fyrirtæki með 25,5% heildar- veltu íslensks iðnaðar. Könnun sem þessi er gerð ársfjórðungs- lega og voru forráðamenn fyrir- tækjanna spurðir um fram- leiðslu — og sölumál, ásamt áliti þeirra á þróun nokkurra mikil- vægra rekstrarþátta. Helstu niðurstöður könnunar- innar sýna meðal annars að veruleg framleiðsluaukning varð hjá iðnaðinum í heild á öðrum ársfjórðungi þessa árs, í apríl, maí og júií. Söhiauíning átti sér stað hjá 68% aðspurðra, en samdráttur varð hjá 12% miðað við sama tímabil á síð- asta ári. Þá spá forsvarsmenn iðnfyrirtækjanna, sem tóku þátt í könnuninni, sölusamdrætti á tímabilinu júlí — september á þessu ári. Meiri hluti aðspurðra (52%) spáði framleiðsluaukningu á þriðja ársfjórðungi og 70% að- spurðra sögðu framleiðsluna meiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs en þeim fyrsta. Miðað við sama tímabil í fyrra, töldu 64,4% aðspurðra að heildar- framleiðsla iðnaðarvara hefði aukist. * * ' Birgðir iðnvara reyndust minni en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs (jan., feb. og mars) og nýting afkastagetu betri. Heild- arfjöldi starfsmanna í iðnaði reyndist hins vegar vera meiri en fyrstu þrjá mánuði ársins og 85% aðspurðra áætluðu að starfsmannafjöldi í iðnaði héld- ist óbreyttur næstu þrjá mán- uði. „f heimsókn hjá afa“ eftir flnnsku listakonuna Esa Riipa. Ljism. Mbi. Bjamí. Friðardagar í Félagsstofnun FKIÐARDAGAR verða í Félags-stofnun stúdenta við Hringbraut dagana 22. til 26. ágúst sem ýmis friðarsamtök gang- ast fyrir. Þar verður sýning á listaverkum graffklistamanna frá Fínnlandi, Svi- þjód, Noregi. og Danrnörku. Méöal þeirra erut Daninn Pallé NíelSen, Finninn Ulla Rantanen, Svíinn Nils Stenquist og Norðmaðurinn Björn Wilii Mortensen. Sýningin verður opnuð kl. 17 miðvikudaginn 2. ágúst, en um kvöldið verða tóníeikar, dr. Jan Williams, lífefnafræðingur, flytur er- indi o.fl. Sænski ltikarinn Jan Bergquist kemtír hingdö til lands og sýnir le»k- rit sitt Síðpsti samtalsþátturinn eða „The Last Talk-Show“ föstudaginn 24. á ensku og sunnudaginn 26. á sænsku. Friðardagar eru í tengslum við ráðstefnu Friðarsambands Norður- -. hafa sem hefst á Hótel Loftleiðura 23. - ágút.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.