Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
7
Sjónvarp mánudag kl. 20.35
Hernaðarleyndarmál
Á mánudag verður sýnd í sjón-
varpi bresk heimildamynd sem ber
heitið „Hernaðarleyndarmál" og
er í henni svipt hulunni af fjörutíu
ára gömlu leyndarmáli úr síðari
heimsstyrjöldinni.
Vorið 1944, nokkrum vikum
fyrir innrásina í Normandí, fór-
ust sjö hundruð og fimmtíu
bandarískir hermenn við heræf-
ingar við suðurströnd Englands,
þegar þýskir kafbátar sökktu
tveimur landgönguprömmum
með tundurskeytum. Fleiri
bandarískir hermenn létu þar
lífið en við innrásina sjálfa í
Normandí á D-degi.
Af ýmsum ástæðum var þess-
um atburðum haldið vandlega
leyndum og hafa þeir að mestu
legið undir huliðshjálmi þar til
að þessi mynd var gerð. Hún seg-
ir okkur söguna af stríðsleik sem
breyttist óvænt í harmleik.
Sjónvarp kl. 21.45:
Hljómleikar á Holmenkollen
í kvöld verður tæplega tveggja
klukkustunda langur þáttur á
dagskrá sjónvarpsins, frá sumar-
tónleikum Fílharmóníusveitarinn-
ar í Osló á Holmcnkollen.
Á tónleikunum leikur Fíl-
harmóníusveitun, undir stjórn
Mariss Jansons, verk eftir
Edward Grieg, Hugo Alfvén,
Harald Sæverud, Ragnar Söder-
lind, Jean Sibelius og Eyvind Al-
næs.
Einleikari á píanó er Eva
Knardahl, en hún lék með Fíl-
harmóníusveitinni í Minneapolis
í Bandaríkjunum og var nýlega
útnefnd prófessor við Músík-
háskóla Noregs. Einsöngvari á
tónleikunum er Edith Thallaug,
messósópran, sem fræg er orðin
víða um heim fyrir túlkun sína á
„Carmen".
Róbert Arnfinnsson í hlutverki sínu.
Sjónvarp kl. 21.05:
SIGUR
Á mánudagskvöld verður endur-
sýnt í sjónvarpinu sjónvarpsleikrit-
ið „Sigur“ eftir Þorvarð Helgason
en leikstjórn annaðist Hrafn
Gunnlaugsson.
Leikritið gerist meðal æðstu
manna í einræðisríki og var áður
sýnt í sjónvarpinu vorið 1976. Nú
eru liðin nær tíu ár síðan að
Hrafn Gunnlaugsson vann þetta
verk en það var upphaflega
skrifað fyrir útvarp. Leikritið
„Sigur" var sýnt á Norðurlönd-
unum á sínum tíma og fékk tölu-
verða umfjöllun í þarlendum
dagblöðum. „Dagens Nyheter"
kallaði verkið „alvöru sjón-
varpsleikrit frá íslandi," að sögn
Hrafns.
„Fyrir mig var þetta prófraun
sem leikstjóri," sagði Hrafn, „og
án „Sigurs" hefði ég trúlega
aldrei gert „Blóðrautt sólarlag"
sem var mitt næsta verkefni.
Mér hefur alltaf verið hlýtt til
þessa verks, svona eins og til
fyrstu kærustunnar."
Leikendur í „Sigri" eru Róbert
Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson,
Sigurður Karlsson, Baldvin
Halldórsson, Guðjón Ingi Sig-
urðsson, Bryndís Pétursdóttir,
Valur Gíslason og Steinunn Jó-
hannesdóttir.
Hin landsfræga
Herrahús Útsala
Ótrúlegur afsláttur Nú Áöur
Jakkaföt m/vesti 4.500.- 6.490.- 6.980.-
Jakkaföt án vestis 3.900.- 6.200.- 6.590.-
Frakkar 2.600.- 3.980.- 4.690.-
St. jakkar, þunnir 990.- 2.980.- 3.490.-
St. jakkar 1.890.- 3.890.- 4.200.-
St. buxur, þunnar 690.- 1.290.- 1.590.-
St. buxur ullar 990.- 1.790.-
Sumarblússur 990.- 1.790.- 2.980.-
Vetrarblússur, Lee Cooper 990.- 1.980.-
Vetrarjakkar Melka 1.290.- 2.490.- 2.980.-
V.-þýskar herraskyrtur 490.- 690.- 980.-
Valin merki
vandaöur fatnaöur
vtsa
Adaistræti 4