Morgunblaðið - 19.08.1984, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
Nýtt blað á Akranesi:
* ?>
- Skagablaðið
NÝTT bæjarblað hefur hafíð göngu
sína á Akranesi, Skagablaðið, undir
ritstjórn Sigurðar Sverrissonar, sem
til skamms tíma var blaðamaður hér
á Morgunblaðinu. Blaðið kemur út
einu sinni í viku, á fostudögum, og
er átta blaðsíður að stærð í heldur
minna broti en dagblaðsbroti. Þetta
er annað bæjarblaðið sem nú er gef-
ið út á Akranesi, því fyrir er blað
sem kemur út hálfsmánaðarlega
undir heitinu Bæjarblaðið. Það er
- annað tölublaö Skagablaðsins sem
leit dagsins Ijós í gær.
„Þetta hefur verið mitt hugar-
og nú veraldarfóstur ansi lengi,"
sagði Sigurður í samtali við fyrr-
um samstarfsmann sinn á Morg-
unblaðinu. „Ég vann á Bæjarblað-
inu haustið 1981 og ég er búinn að
ganga með þessa hugmynd að
minnsta kosti síðan. Ég er fæddur
og uppalinn á Akranesi og þekki
því vel til. En hingað til hef ég
verið í fullri vinnu annarstaðar og
því ekki verið möguleiki að sinna
þessu áhugamáli fyrr en nú, að ég
lét af störfum hér á blaðinu. Það
hefur gengið forkunnarvel fram
að þessu og viðtökurnar verið
framar vonum. Hvort að það er
svo grundvöllur fyrir tveimur
vikublöðum á Akranesi, en Bæjar-
blaðið mun byrja að koma út viku-
lega í september, verður síðan
bara að koma í ljós,“ sagði Sigurð-
ur.
Skagablaðið er gefið út í 1.200
eintökum en 1.400 íbúðir eru á
Akranesi og af fyrsta tölublaði
seldust 850 eintök. Það er bæði
borið í hús og selt í söluturnum og
einnig í Akraborginni. Eintakið
kostar 25 krónur.
„Við erum algerlega óháðir póli-
tískum flokkum," sagði Sigurður
er hann var spurður um ritstjórn-
arstefnu blaðsins. „Það merkir
hins vegar ekki að blaðið hafi ekki
skoðanir á hlutunum, heldur er
það mat ritstjórnar hverju sinni í
ljósi staðreynda hver stefnan
verður. Við leggjum áherslu á að
vera með alhliða fréttir úr bæjar-
lífinu og það skortir ekkert á að
það sé nóg að gerast til þess að
fylla svona blað, jafnvei þó það
væri stærra."
Það kom fram hjá Sigurði að
blaðið er prentað í Reykjavík af
tveim ástæðum. Ber þar fyrst að
nefna að prentsmiðjan á Akranesi
annaði því ekki að prenta blaðið
og auk þess gefur prentun í
m
Þokkum
frábærar
viðtokur
Kemur gervigras
á malarvöliinn?
Leitað að
; fíkniefnum
gj
«nr—f
QEE
Einsdæmi í Is
landssögunni
Muniðverðlauna-
getraun blaðsins
UiM twW i t70 tynTrwft v d
________- Sja á bls. 2
Reykjavík miklu rýmri skilafrest
á efni, sem gerir mögulegt að hafa
blaðið miklu ferskara en ella.
„Ég er þakklátur bæjarbúum
fyrir hvað þeir hafa tekið blaðinu
vel. Blaðið stendur og fellur með
bæjarbúum. Þeir hafa staðið við
sitt og við munum ekki láta okkar
eftir liggja og reyna að gefa út
fjölbreytt, ferskt og skemmtilegt
blað,“ sagði Sigurður að lokum.
Auk hans vinna að blaðinu Árni
S. Árnason sem sér um ljósmynd-
ir, dreifingu og auglýsingar ásamt
Margréti Snorradóttur.
út^erðarpakki
Fjárhagsbókhald
tekur 1400 bókhaldsreikninga og færslufjöldi
takmarkast aðeins af diskrýmd. Rekstrar- og
efnahagsyfirlit eru sett upp samkvæmt ósk-
um hvers notanda. Innsláttur er mjög fljótleg-
ur og er bókhaldið uppfært um leið og færslur
eru skráðar.
viðskiptamanna
bókhald
er samtengt fjárhagsbókhaldinu. Hægt er að
fá reikningsyfirlit. aldursgreiningu reikninga,
vaxtaútreikning o.fl..
Launabókhald
getur meðhöndlað flestar venjulegar og
óvenjulegar gerðir launaútreiknings. Kerfið er
mjög opið gagnvart séróskum notenda um
uppsöfnun, útprentanir o.f!.. Þannig safnar
kerfið t.d. þeim upplýsingum um hvern starfs-
mann sem notandi óskar eftir. Kerfið skilar
launaseðlum, ávísunum, launalistum, skila-
greinun o.s.frv..
Ath.
FACID eða LUXOR tölva.
Aflauppgjör
meðhöndlar afla skipa og báta. Hægt er að fá
sundurliöun á hverri löndun, mánaðaryfirlit
kaupenda og seljenda auk ársyfirlita. Kerfið
skilar Fiskifélagsskýrslum og grunni fyrir
hlutaskiptum. Hægt er að fá reikningsútskrift-
ir sem senda má viðskiptamönnum. Þá er
hægt að prenta skýrslu vegna hafnargjalda og
einnig bankaskýrslu um innvegið magn, ef
notandi er með fiskvinnslu.
Ritvinnsla
er að sjálfsögðu með öllum íslenskum stöfum'.
Kerfið er mjög þjált í notkun og getur nýtt sér
til fulls kosti þess prentara sem notaður er
hverju sinni. Hægt er að vera með tugi blað-
síðna í minni í einu.
©
PÓLLINN HF.
SKEMMUVEGUR 22L
P.O. BOX. 343
200 KÓPAVOGUR
SÍMI: 78822
AÐALSKRIFSTOFA: AÐALSTRÆT' 9. P O. BOX 91
400 iSAFJÖRÐUR, TLX 2253 POLES ÍS SÍMI 94-4092
Revlon
Mót í hestaíþróttum
Hiö árlega opna mót í hestaíþróttum veröur haldiö
laugardaginn 25. ágúst á skeiövelli Fáks, Víöivöll-
um. Mótiö hefst kl. 9.00 f.h. Keppt verður í eftir-
töldum greinum: Tölti — fjórgangi — fimmgangi
— gæðingaskeiði og 250 metra skeiði.
Skráning í síma 30178 mánudag kl. 15.00—17.00.
Skráningu lokið á mánudagskvöldiö.
íþróttadeild Fáks.
kkert
tannkrem?
Sunny Power orkuburstinn
— Tannburstinn sem gerir tannkremiö
óþarft og verndar tennurnar.
Mews
p„. ....t"-'*-1
,ö úr ensku: uóss, sólarlios
árfsrssssas?
sss:rftSssís
' da ratstraum > þeMa losna
na 09 «nnanna_ V'ö Pstmn þad
nr rönnunum. TanV,ann er tram-
Nú loksins fáanlegt á íslandi.
F»st í matvöruverslunum, Apótekum og
víöar.
Dreifing:
SÖLUSAMTÖKIN HF.
Hofnaritrœt. 20 - Box 1392 - 121 Reykjavík - Sími 12110 - 23833