Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. ÁGÚST 1984 W KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR AVEXTIR IKUNNAR Bananar Del Monte — Appelsínur Outspan — Epli rauö T.A.S.M. — Epli rauö NZ — Epii gui frönsk — Epli gul A.A. — Eply Grammy Smith S.A. — Sítrónur Outspan — Grape- fruit rautt Ruby Read — Vatnsmelónur — Hunangsmelónur — Vinber græn — Vínber blá Italía — Perur franskar — Perur spánskar — Avocado — Plómur dökkar — Plómur Nektarínur — Ferskjur — Döölur — Kiwi — Llme KRISTJANSSOIU HF 4, sími 685300. Sameignarfélag um læknishús- ið á Sauðár- króki stofnað ÞANN 1. ágúst sl. stofnuðu áhuga- menn um varðveislu gamla læknis- hússins á Sauðárkróki sameignarfé- lag til að bjarga húsinu frá því að verða rifið en núverandi eigendur höfðu gefið húsið til brottflutnings. Baejaryfirvöld á Sauðárkróki hafa nú gefið lóð við Skógargötu undir húsið. Félagið ætlar nú í haust að láta steypa nýjan kjall- ara undir húsið við Skógargötu og flytja það síðan þangað. Síðar verður rætt um hvernig viðgerðum verði háttað og fram- tíðarnotkun hússins. Verkið verður unnið í samráði við þjóðminjavörð en húsfriðunar- nefnd getur veitt styrki til við- gerða á húsi sem þessu. Áhuga- menn um þátttöku í félaginu geta snúið sér til stjórnar félagsins „Gamla læknishúsið á Sauðár- króki sf.“. Stjórnina skipa, Nanna Hermansson, Stefán Jónsson arki- tekt, Auður Torfadóttir, Arnór Sigurðsson og Ingólfur Geir Ing- ólfsson. (Fréttatilkynning) Tímaritið Sveitarstjórn- armál komið út Sveitarstjórnarmál, 4. tbl. þessa árs, er nýkomið út. Það flytur meðal annars samtal við Hjálmar Vil- hjálmsson, fv. ráðuneytisstjóra, átt- ræðan. Jón Eiríksson, oddviti Skeiða- hrepps, skrifar grein um endur- byggingu Reykjarétta. Þorvarður Jónsson skrifar um nýjungar í símtækni og Ágúst Guðmundsson skrifar um notkun loftmynda. Birtar eru greinar um orkusparn- aðarátakið, sem nú stendur yfir, um boðveitur sveitarfélaga, varnir gegn tannskemmdum með flúor- skolun, og meðal fastra efnisliða er Frá almenningsbókasöfnum, Fjármál sveitarfélaga, Á lögbergi, Frá landshlutasamtökunum og Kynning sveitarstjórnarmanna. A kápu þessa tölublaðs er litprentuð ljósmynd úr Skeiðaréttum. Hryðjuverka- menn krefj- ast 30 millj- óna franka París, 17. ígúst. AP. í DAG lýsti dularfullur hópur hryðjuverkamanna ábyrgð á hendur sér vegna tveggja sprengjutilræða, sem átt hafa sér stað í þessari viku, og krafðist þess, að franska stjórnin reiddi fram 30 milljónir franka, eða andvirði u.þ.b. 112,5 milljóna króna, til þess að stöðva „þá sprengilotu sem nú er hafin“. Maður nokkur sem hringdi til frönsku fréttastofunnar AFP og sagðist vera félagi í þessum hópi, sem hann nefndi „M5“, hótaði „miklu blóðugri aðgerðum í framtíðinni“. Á fimmtudag særðust fimm manns, þar af ein kona alvar- lega, þegar sprengja sprakk í menningarmiðstöð í Suðvest- ur-Frakklandi. Tveir fengu taugaáfall þegar sprengjan sprakk í farangursgeymslu á brautarstöðinni í Lyon á mánudag. Wterkur og hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.