Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 55 Kristinn Snæland: Hópakstur Forn- bílaklúbbsins Fornbílaklúbbur íslands efnir til nokkurra hópakstra á ári hverju. Þekktastur mun akstur klúbbfélaga sem farinn er 17. júní í Reykjavík enda er þátttaka þá yfirleitt mjög góð, mikill fjöldi bifreiða. Aðrar ferðir eru vor-, sumar- og haustferð, en þá er farið í styttri ferðir um nágrenni Reykjavíkur eða lengri um Suðurnes, Suðurland eða til Þingvalla. Þær myndir sem hér fylgja eru af nokkrum bílanna sem óku með í vorferð klúbbsins á þessu ári, en þá var ekið um Selfoss til Stokkseyrar og Eyrar- bakka. Ford A. írgerð 1930 vél 4 strokka m/síðuventlum. Eigandi Rudolf Krist- insson. Bfllinn sem er eitt af fallegustu ökutækjum fri þessum tíma, kom til landsins frá Danmörku um Luzemborg. Rudolf og sonur hans við bflinn. Eyrarbakkakirkja í baksýn. Studebaker árgerð 1947 vél 6 strokka m/síðuventlum. Eigandi Ólafur Betúelsson sem átt hefur bflinn frá bví að hann kom nýr til landsins. Chevroiet Impala S5. árgerð 1965 vél 8 strokka V. Eigandi Örn Guðjónsson. Ford Mercury árgerð 1947 vél 8 strokka V. Eigandi Pétur Kristófersson. Chevrolet Bel Air árgerð 1957 vél 6 strokka m/toppventlum. Eigandi Pétur Pétursson. Bfllinn var áður í eigu Kaupfélags Árnesinga. Pétur stendur við bflinn. Chrysler Royale árgerð 1941 vél 6 strokka m/síðuventlum. Eigandinn, Haukur Einarsson, stendur við bflinn sem nú mun vera til sölu, ef góður og nærgætinn kaupandi fæst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.