Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 56
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆTt 22
INNSTRÆTI. SÍMI 11340
SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
Heyin hlaðast upp fyrir norðan
Veðurguðirnir hafa gert upp á milli landsins þegna það sem af er þessu sumri. Á meðan að heyin hrekjast í stórrigninum dag eftir dag á
suðvesturlandi fylla Norðlendingar hlöður sínar af ilmandi heyi. Sigurður Sigmundsson tók þessa mynd á Ríp í Skagafirði fyrir skömmu, en þar voru
bændur að hlaða böggunum upp til geymslu í vetur.
Jens Gfelason kartöflubóndi:
Ráðstafa framleiðslu
minni þangað sem ég vil
Er að brjóta stéttina niður, segir formaður kartöflubænda
„ÉG HLÝT að mega ráðstafa fram-
leiðslu minni þangað sem ég vil. I»að
er ég sem á landið og hef lagt pen-
inga í ræktunina. Mér skilst líka að
lögin banni einungis heildsöludreif-
ingu kartaflna án leyfis Framleiðslu-
ráðs. Þetta er engin heildsala og
aldrei hefur tíðkast að telja fram-
leiðanda vöru heildsala, hvað sem
nú verður gert,“ sagði Jens Gíslason
kartöflubóndi á Jaðri í Þykkvæbæ í
samtali við Morgunblaðið en Jens
hefur ákveðið að selja Hagkaup hf.
kartöflur án milligöngu Grænmet-
isverslunar landbúnaðarins. Hag-
kaup hefur sölu á þeim á mánudag
eins og fram kom í Morgunblaðinu í
gær.
Forsvarsmenn Hagkaups telja
einnig að þessi viðskipti brjóti
ekki í bága við Framleiðsluráðs-
lðgin. Magnús Sigurðsson formað-
ur Landssambands kartöflubænda
og Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
telja hinsvegar að verslunum og
kartöflubændum sé ekki heimilt
að eiga bein viðskipti með kartöfl-
ur. Gunnar segir þessi viðskipti
heildsöludreifingu sem ekki sé
heimil nema með leyfi Fram-
leiðsluráðs en það hafi ekki verið
veitt. „Vilja þeir bara ekki setja
sín eigin lög til að fara eftir?"
sagði Gunnar þegar þetta mál var
rætt við hann.
Jens Gíslason ræktar kartöflur
á um 19 hekturum og er einn af
stærstu einstöku kartöflurækt-
endunum í Þykkvabænum. Á með-
an á uppskerutímanum stendur
mun hann senda nýuppteknar
kartöflur daglega til Reykjavíkur,
eitt tonn á dag til að byrja með.
Hagkaup mun selja kartöflurnar
undir skráðu verði en greiða Jens
þó fullt verð fyrir þær. Verslunin
telur sig geta gert þetta með því
að sleppa við þann millilið sem
Grænmetisverslunin er annars í
kartöfluviðskiptunum. „Það verða
engin undirboð frá minni hálfu.
Ég sel kartöflurnar á því verði
sem opinberlega er ákveðið enda
frekar ástæða til að hækka það en
lækka,“ sagði Jens um verðlagn-
inguna.
„Kartöfluneyslan er alltaf að
minnka og mér hefur fundist
Grænmetið ganga rösklega fram í
því að gera hana sem allra
minnsta, bæði með innkaupum og
framkomu í garð okkar kartöflu-
bænda, kaupmanna og neytenda.
Ég tel að með því að gera þessi
viðskipti frjálsari, sem auðvitað
verður að vera innan ákveðinna
takmarka svo sem hvað varðar
verðlagningu og mat, þá myndi
neyslan aukast aftur um 30%,“
sagði Jens.
„Við kartöflubændur viljum
standa saman sem stétt en það er
auðvitað hjá okkur eins og til
dæmis í verkalýðsfélögunum að
alltaf eru einhverjir einstaklingar
tilbúnir til að reyna að brjóta
stéttina niður. Þetta gera menn
fyrst og fremst i eiginhagsmuna-
skyni. Það er þægilegt fyrir þá að
geta ef til vill losnað við sína
framleiðslu á undan öðrum en það
kemur bara niður á heildinni. Við
viljum að bændur sitji sem mest
við sama borð,“ sagði Magnús Sig-
urðsson bóndi í Birtingaholti,
formaður Landssambands kart-
öflubænda, þegar álits hans var
PÓLLINN hf. á ísafirði hefur nú gert
samning við fyrirtækið Micro Tools í
Fitchburg, Massachusetts í Banda-
ríkjunum, um framleiðsluleyfi Micro
Tools á vogum fyrir fiskiðnað. Nær
framleiðsluleyfið yfir alla Norður-
Ameríku, en Micro Tools er í eigu
íslendingsins Þorsteins Þorsteins-
sonar, er áður starfaði hjá Coldwat-
er.
Ásgeir Erling Gunnarsson, fjár-
málastjóri Pólsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að í þessu fælist
leitað. Sagði hann að ekkert hefði
verið ákveðið um aðgerðir vegna
slíkra brota, menn vildu fyrst sjá
hvernig mál þróuðust. Síðan yrði
tekið á þessu á einhvern félagsleg-
an hátt. Kvaðst hann vonast til að
bændur sýndu félagslegan þroska
og stæðu saman um sín mál.
að Micro Tools fengi leyfi til fram-
leiðslu á vogum Pólsins á um-
ræddu svæði, fengi aðgang að
tækniþekkingu og vöruþróun Póls-
ins og greiddi Pólnum þess í stað
ákveðinn hundraðshluta af sölu-
tekjum voganna. Micro Tools hefði
þegar hafið framleiðslu á einni af
þeim vogum, sem Póllinn hefði
þróað og framleitt. Hann gerði sér
vonir um, að þetta væri byggt á
raunverulegum grunni og væri því
stór áfangi í sögu Pólsins.
Ásgeir Erling sagði ennfremur,
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Mjög alvar-
legt ástand
- segir bæjarstjór-
inn á Seyðisfirði
„ÞAÐ er alveg Ijóst að þegar í þús-
und manna bæ standa hundrað
manns atvinnulausir um hábjarg-
ræðistímann, þá er ástandið mjög al-
varlegt," sagði Þorvaldur Jóhanns-
son, bæjarstjóri á Seyðisfirði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, um at-
vinnuástand á Seyðisfiröi. „Það
verður að leysa þessi mál sjávarút-
vegsins og fiskvinnslunnar á viðun-
andi hátt. Ef það verður ekki gert,
þá þarf ekki að spyrja eftir þessum
sjávaútvegsplássum, þau hverfa ein-
faldlega," sagði Þorvaldur.
Aðspurður um hvernig á því
stæði að togarar Seyðfirðinga
sigldu með afla, þrátt fyrir að fólk
stæði atvinnulaust í landi, sagði
Þorvaldur að viðkomandi útgerð-
arfyrirtæki yrði að svara fyrir
það, en hann byggist við að rekstr-
arafkoman gerði það að verkum.
Það væri erfitt að fjármagna tap-
rekstur endalaust.
Um 2.000
selir
veiddir
Hringormanefnd hefur alls
greitt veiðilaun fyrir um 1.500
seli það sem af er þessu ári.
Hins vegar er talið, að þegar
hafi um 2.000 selir verið veidd-
ir.
Að sögn Björns Dagbjarts-
sonar, formanns Hringorma-
nefndar, taka umboðsmenn
nefndarinnar við tilkynning-
um um veidda seli og tekur
síðan nokkurn tíma þar til
veiðilaun eru greidd. Björn
sagði, að nú væri aukin eftir-
spurn meðal loðdýrabúa eftir
selskrokkum, einkum vegna
þess, að refayrðlingar gerast
nokkuð frekir til fóðursins á
haustin. Því gengi vel að
koma skrokkunum í fóður.
Veiðin nú væri svipuð og
undanfarin tvö ár og gengi
bæði hún og vinnsla skrokk-
anna vel.
að þessi samningur félli mjög vel
inn f myndina hjá Pólnum hvað
varðaði markaðssetningu erlendis.
Fyrirtækið byggi ekki yfir því
bolmagni að geta annað fleiri
mörkuðum nú, en þeim, sem væru
nær okkur eins og Færeyjum,
Danmörku, Noregi og Grænlandi
auk Islands sjálfs. Áhugi fyrir
vogunum væri að aukast, en það
væri talsvert fyrirtæki að koma
kerfinu upp og því færu menn sér
fremur hægt í þessum efnum.
Vogir frá Pólnum á
markað vestan hafs
Samid við fyrirtæki Þorsteins Þorsteinssonar, Micro Tools,
um framleidsluleyfi í Norður-Ameríku