Morgunblaðið - 28.10.1984, Síða 2
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
VILTUVINNABUGAFEIMNINNI
Manstu eftir því þegar þú
fórst að roðna þegar
mest lá við og þú ætlaðir
„a í augun á þeim útvalda
eða þeirri útvöldu. Já manstu eftir
kvölinni sem feimnin olli þér oft á
tiðum. Fullorðna fólkinu finnst
feimnisroði hjá unglingum afar
gott merki um sakleysi og góða
hegðun, en unglingarnir sjálfir
vita ekkert eins hræðilegt eins og
að koma upp um sig með roða i
vanga. Feimni er hugtak sem
snertir eflaust flest okkar.
Hvað er feimni. I orðabók
menningarsjóðs er hún skilgreind
sem „óframfærni, einurðarleysi".
Og það er alveg rétt að feimni
orsakar oftast óframfærni og
tengist þessháttar hegðun. Hún
gerir það einnig að verkum að það
er erfitt að hitta ókunnuga, eign-
ast nýja vini og yfirleitt njóta
skemmtilegra tilvika. Feimnin vill
oft verða völd að því að fólk segir
ekki álit sitt og stendur ekki sem
skyldi á rétti sínum. Hún dregur
úr skýrri hugsun og neikvæðar til-
finningar eins og þunglyndi ein-
manaleiki og streita gera frekar
vart við sig en ella.
Fyrir nokkrum árum var gerð
könnun í Stanford-háskóla í
Bandaríkjunum sem fór fram
undir nafninu feimniskönnun og
voru þáttakendur í henni um 5000.
Þar kom fram að feimni er algeng
og útbreidd og er alls staðar til (
heiminum. Rúmlega áttatíu pró-
sent af þáttakendum töldu sig
hafa verið feimna einhverntíma í
lífi sínu. Nærri helmingur þeirra
taldi sig vera feiminn af og til og
einn þriðji taldi sig altaf feiminn.
Fram kom að feimni er algeng-
ari meðal skólabarna en fullorð-
inna þar sem margir fullorðnir
hafa sigrast á henni með árunum.
Einn táningur skrifaði til Ann
Landers sem er þekktur ráðgjafi í
amrískum vikublöðum og sagði
um feimni sína eftirfarandi. „Ég
hef það á tilfinningunni að ég sé
vinsæl þegar einhver strákur
brosir til mín eða segir halló, en
næsta dag finnst mér ég vera svo
ömurleg af því að einhverjar
stelpur eru að flissa úti i horni og
ég held að þær séu að hlæja að
mér. Mamma segir að ég eyði of
miklum tíma í útlitið þegar í raun
ég ætti að vera að læra. Æi ég er
eitthvað svo misheppnuð."
Margir táningar kannast ef-
Iaust við lýsingar þessarar stúlku
og flest okkar hafa einhverntíma
roðnað, fengið fiðring í magann
eins og fyrir próf og fundið hjart-
að slá með ofsahraða. Vinkona
mín lýsir þessu þannig: „Þegar ég
verð skotinn í einhverjum strák og
sé hann tekur hjartað kipp. Ég fæ
fiðring í magann og vona að hann
taki nú loksins eftir mér og segi
a.m.k. halló. Þegar hann svo veitir
mér einhverja athygli og brosir
kannski roðna ég svo niður i tær.“
En hvað er hægt að gera við
feimninni? Hvernig losar maður
sig við hana?
Ótal ráð hafa verið gefin til að
vinna bug á feimni. Tæpast er þó
nokkurt þeirra algilt það sem ein-
um verður að liði virðist öðrum
lítt gagna. Hinsvegar er feimni
ekki einungis smávandi ævinlega,
heldur vandi, sem veldur því
stundum, að ungt fólk leiðist út í
andfélagslegt athæfi eða neyslu
eiturefna til þess aö vinna bug á
feimninni. Það er því ekki að
ástæðulausu að uppalendur leggja
gjarnan áherslu á að ungt fólk
taki sem mest þátt í hollri um-
gengni og hópstarfi til að öðlast
sjálfstraust.
í fyrsta lagi þarftu að virða
sjálfa(n) þig og muna að það er
enginn eins og þú og þú ert sér-
stakur persónuleiki. Reyndu að
vera vingjarnleg(ur) við alla og
taka þá ákvörðun að tala við alla
þá sem þú hefur áhuga á að kynn-
ast. Lærðu að hlusta á aðra tala og
sýna áhuga jafnvel þeim er minna
mega sín i þeim efnum.
Dr Zimbardo sem var forsvars-
maður könnunarinnar sem gerð
var við Stanford-háskóla leggur
til að fólk geri eftirfarandi ef það
vill vinna bug á þessum oft hvim-
leiða kvilla, feimninni.
Fólk þarf að gera sér grein fyrir
veikleikum sínum og einnig sínum
sterku sviðum. Það þarf að ákveða
hvað það vill vera og trúa á það og
hvernig það langar til að lffið sé.
Að líta á fortíðina og fyrirgefa sér
mistök og hluti sem það hefði
óskað að hefðu verið öðruvisi. Fólk
verður að jarða vondar minningar
þvi þær lifa aðeins i hugum fólks
eins lengi og það vill. Gefðu f stað-
inn meira pláss fyrir sigra þina í
fortíðinni og fyrir það sem þér
finnst hafa verið jákvætt f fari
þínu. Sektarkennd og blygðun eru
hlutir sem hjálpa ekki þegar ráða
skal bug á feimninni svo best er að
reyna að útiloka þær tilfinningar
eins og hægt er.
Það er nauðsynlegt að minnast
þess að öll mál hafa tvær hliðar og
raunveruleiki er ekki neitt annað
en hlutur sem fólk er sammála um
frekar en að vera á öndverðum
meiði um. Það er mikils virði að
segja aldrei slæma hluti um sjálf-
a(n) sig eins og heimsk(ur), ljót-
(ur), o.s.frv. örvaðu fólk til að tjá
sig um hegðun þína segir Dr.
Zimbardo einnig því það hjálpar
manneskjunni að sjá sig i betra
Ijósi. Það er vert að muna að
vonbrigði þau sem koma stundum
fyrir i lffinu eru oft mannskjunni
fyrir bestu, þó seinna komi það f
Ijós. Það kann aldrei góðri lukku
að stýra að bera sig saman við
aðra því hver einstakur er sér-
stakur í veruleikanum og aldrei
gott að reyna að vera eins og ein-
hver annar, þ.e. eftirlíking. Að
gefa sér tíma til að slappa af og
njóta lffsins er nauðsynlegt.
Reyndu ekki að ofvernda sjálfs-
(í)mynd þína og taktu gagnrýni
með rósemd.
Settu þér takmörk í lffinu er
síðasta ráðlegging Zimbardos. Þú
ert ekki hlutur sem vondir hlutir
elta í Iffinu. Það ert þú sjálf(ur)
sem skapar þér lifið sem þú lifir
og enginn annar. Þú ert sérstakur
einstaklingur og getur breytt
stefnunni í lífi þínu hvenær sem
þú vilt. Með sjálfsáliti verða erfið-
ustu hjallar að spennandi verkefn-
um. Feimnin hverfur því í staðinn
fyrir að vera alltaf að búa þig und-
ir og kvfða fyrir þá gleymirðu
sjálfri(um) þér við að lifa lífinu.
Lauslega þýtt og endursagt: GRG.
Skotið á
diplómat
Kómaborg, 26. okL AP.
Vararæðismaður Sameinuðu ar-
abafurstadæmanna í Rómaborg varð
fyrir skoti og særðist alvarlega og
írönsk kona sem var með ræð-
ismanninum í bifreið hans beið
bana. IVförgum skotum 'var skotið í
fólkið. Þessi atburður gerðist árla
fostudags er maðurinn var á leið
beim til sín.
Jórdanskur maður var nokkru
síðar handtekinn, en lögreglan
hefur ekki staðfest að hann sé til-
ræðismaðurinn.
f-------------------------------------\
Skákskólinn
Þriöjudaginn 6. nóvember hefjast námskeiö skól--
ans. Kennt veröur í öllum flokkum.
Manngangsflokkur veröur nú í fyrsta skipti kennd-
ur viö skólann.
Innritun hefst á þriöjudaginn 30. október aö
Laugavegi 51 og í síma 25550 frá kl.
14.00—18.00.
Þeir sem taka þátt í námskeiöum skólans í vetur
veröa sjálfkrafa klúbbmeölimir skólans.
Skákskólinn.
Geymiö auglýsinguna.
I ^
Sarasota, Florida, U.S.A.
Tvö lúxusherbergi og tvö baöherb. í íbúöablokk til
leigu. Hægt er aö synda í Mexíkóflóa eöa í okkar
fallegu sundlaug og fara í tennis. Frábærir veitinga-
staöir og öll önnur þjónusta fyrir ferðamenn.
Skrifiö eöa hringiö eftir upplýsingabæklingi.
Sarasota Surf & Racquet Club,
5900 Midnight Pass Road,
Sarasota, Fl. 33581. Sími 1-813-349-2200.