Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 11

Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUft 28. OKTÖBER 1984 75 Nýtt jafnteflismet í sögu heimsmeist- araeinvígjanna Skák Jóhann Hjartarson 18. einvígisskák Karpovs og Kasp- arovs lauk með jafntefli eftir 22 leiki. Settu kapparnir þar med nýtt met hvað varðar fjölda jafnteflis- skáka í röð í heimsmeistaraeinvígi. 1 lokastöðunni þáði Karpov jafnteflisboð áskorandans, sem fórnað hafði manni til að ná þráskák. Heimsmeistarinn hefur því enn 4 vinninga forskot og eru jafntefli ekki talin með. Áhorf- endur í Alþýðuhöllinni í Moskvu voru spenntir eftir byrjunina, en framan af fygldu meistararnir sama framhaldi og i 16. skákinni, þegar Kasparov tókst að ná öflugu frumkvæði. Heimsmeistarinn bjargaði sér þó á elleftu stundu, eftir grófan afleik áskorandans í 30. leik. í skák dagsins fékk Kasparov rýmri stöðu, en Karpov jafnaði taflið auðveldlega. I. d4 - Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. g3 — Ba6, 5. b3 - Bb4, 6. Bd2 — Be7, 7. Bg2 — c6, 8. Bc3 — d5, 9. Rbd2 - Rbd7, 10. 0-0 — 0-0, 11. Hel — c5, 12. e4 — dxe4, 13. Rxe4 — Bb7, 14. Rfg5 — cxd4, 15. Bxd4 — Dc7, 16. Rxf6 - Bxf6, 17. Bxb7 — Dxb7, 18. Re4 — Bxd4,19. Dxd4 — Had8, 20. Hadl — Da8, 21. Dc3 — Rb8, 22. Rf6. Jafntefli samið. Nú er fróðlegt að velta fyrir sér stöðunni í einvíginu. E.t.v. vakir það fyrir Kasparov að fylgja for- dæmi Korchnois úr einvíginu í Baguio 1978, en þá tókst hinum landflótta skákmeistara að þreyta andstæðinginn og teygja lopann sér í hag. Aðrir telja eina möguleika Kasparovs felast í að venda kvæði sínu í kross og leita á ný mið i byrjanavali. Drottningar-indverska vörnin, sem áskorandinn hefur beitt nær eingöngu með hvitu hingað til, er nefnilega einhver mesta jafntefl- isbyrjun sem tefld er nú á dögum. Væri gaman að sjá hann fara í smiðju til meistara Fischers: 1. e2 — e4 og vinnur! Næsta einvígisskákin verður tefld á mánudaginn. Fiskimiöl Jarögufuþurrkaö fiskimjöl frá Ströndum hf. er nú fáanlegt í eftirtöldum kaupfélögum: Kaupfélag Árnesinga Kaupfélag Borgfiröinga Kaupfélag Hrútfirdinga Kaupfélag Hvammafjaröar Kaupfélag Rangaainga Kaupfélag Skaftfellinga Kaupfélag Steingrímsfjaröar Kaupfélag V-Húnvetninga Kaupfélagiö t>ór STRANDIR HF. 'TISKIMJÖLS- OC LÝSISVERKSMIÐJA 23; HQINUW ■ REYKJANESi Slwl 92-3106 OG 91*28990 ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA — ÍSLENSK ORKA — ISLENSK GÆÐI. árgerð Framkvæmdahópur ’85-nefndar: „Jafnrétti, framþróun og friður“ LIÐIN eru 10 ár frá þeim atburði er íslenskar konur lögðu niður vinnu á degi Sameinuðu þjóðanna á kvenna- ári 1975 til þess að leggja áherslu á vinnuframlag kvenna f þjóðfélaginu. Nú hefur verið stofnaður starfshópur 23 félagasamtaka og annarra til að vinna að því að helga árið 1985 baráttunni fyrir áframhaldandi vinnu að jafnrétti kynjanna, framþróun og friði, eins og segir í fréttatilkynningu frá hóp, sem nefnir sig framkvæmda- hóp ’85-nefndar. Fimm hópar kvenna hafa nú tekið til starfa og vinnur hver að sérstöku verkefni undir yfirumsjón framkvæmda- hópsins. Hópar þessir eru: Göngu- hópur, sem sér um framkvæmd hringvegargöngu kvenna, Lista- hópur, sem mun skipuleggja Listahátíð kvenna 1985, Launa- og atvinnumálahópur, sem mun fjalla um stöðu kvenna innan stéttarfélaga og afla upplýsinga um launamál þeirra, Alþjóðahóp- ur, sem mun vinna að því að fá fuilgiltan sáttmála Sameinuðu þjóðanna hér á landi um afnám alls misréttis gegn konum, og Fræðslumálahópur, sem mun m.a. vinna að eflingu og kynningu Kvennasögusafns. ORKUBILL á flottu verði (kominn á götuna) Daihatsuumboðið hefur nú tekið við innflutningi á hinum traustu og vinsælu Polonez frá FSO-verk- smiðjunum í Varsjá. 1985 árgerðin er stórglæsilegur lúxusvagn á hreinu smábílaverði. Nú er rétt fyrir Polonez-eigendur að endur- nýja kynnin og aðra að kynna sér þennan hörkubíl. Hér eru nokkrir Polonez-punktar: ★ Vélin er 81 þrumuhestafl og girarnir 4. ★ Línurnar nýtískulegar og sportlegar. ★ Diskabremsur á öllum — Barnaöryggislæsingar — ir og sterkir stuöaöar — Or yggissjónarmið í öllu. ★ Sterkbyggöur og þéttur - Traust fjöörun tryggir aksturs öryggi og farþegaþægindi ★ Fullkomið mælaborö meö öllu tilheyrandi. ★ Þægileg sæti fyrir 5 fulloröi — 5 dyr. ★ Skutdyrnar opnast inn í 300 '— M litra farangursrými x ^ sem nær fjórfaldast í 1070 lítra geim er aftursætiö er lagt niöur. ★ Teppi á öllum gólfum og fallegt en hagnýtt áklæði. Þú lagar stýrishæðina aö þínum þörfum. , i Og þetta er bara brot af Polonez-punktunum. Við skorum á alla sem setja upp snúð, er talað er um Austur-Evrópu bíla að koma og skoða Polonez og það sem fæst fyrir 226.000 kr. DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23. S. 685870 — 81733. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.