Morgunblaðið - 28.10.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
87
„Vantar fleira fólk
í eyjuna eftir að
frystihúsið hóf
vinnslu á skelfisk“
í húsinu Sólbakka búa þau
Hrönn Hafsteinsdottir og Hlynur
Antonsson. Hrönn er dóttir þeirra
Hafsteins og Línu í Læknishúsi,
og hún hefur búið í Flatey í 19 ár.
„Eg var um 3 ára þegar mamma
og pabbi fluttu hingað og hef búið
hér síðan. Var í barnaskólanum
hér i Flatey, tók svo Gagnfræða-
próf í Skógum. Áður en við Hlynur
fórum að búa hérna bjuggum við í
um eitt ár í Látrum."
Hlynur kom til Flateyjar vorið
'79 „ég kom sem gestur hérna að
sumarlagi, var þá starfandi lög-
reglumaður í Reykjavík, en hef
verið hér meira og minna siðan."
— Er ekki ólíkt að vinna í lög-
reglunni í Reykjavík og hér í skel-
inni?
„Jú, ætli það sé ekkí jafn ólíkt
og hugsast getur. Annars er ég
hálfgerður sveitamaður, er alinn
uppp í Reykjavík til 10 ára aldurs,
en þá flutti ég austur í Rangár-
vallasýslu. Áður en ég fór i lög-
regluna var búinn að vera á sjón-
um, en ég var í lögreglunni í 4 ár
áður en ég kom hingað."
— Saknarðu einskis úr Reykja-
vík?
„Jú, það er þá helst ýmis konar
þjónusta. Það tekur tíma hér að
panta hluti og bíða eftir þeim. En
veran hérna hefur ýmsa kosti, fólk
býr hér i miklu meiri snertingu
við náttúruna en t.d. Reykvík-
ingar."
Þau Hlynur og Hrönn segja
Flateyinga gera ýmislegt sér til
skemmtunar á veturna, spila vist
og bridge og nú nýlega var komið
fyrir borðtennisborði I ónotuðum
sal í frystihúsinu. Hlynur hefur
verið að undirbúa skelfiskvinnsl-
una undanfarin ár, og er nú á
skelfiskveiðum en Hrönn vinnur í
frystihúsinu. Þau segja það skil-
yrði fyrir búsetu ungs fólks í eyj-
unni að átak sé gert í atvinnumál-
um og eftir að frystihúsið hóf
vinnslu á skelfisknum vantar
fleira fólk í eyjuna.
„Það koma auðvitað þær stundir
að gott væri að skreppa í bíó eða á
ball,“ segja þau en bæta því við að
fólk verði að læra að skemmta sér
sjálft á svona stöðum.
— Er ekki gífurlegt myrkur
hérna a veturna?
„Jú, það er stundum myrkur
nánast allan sólarhringinn."
— Nokkrir draugar á ferli?
„Nei,“ segja þau bæði og Hlynur
bætir því við að hann hafi hvergi
orðið var við jafn lítinn drauga-
gang og þarna í eyjunni!
„Skilyrði fyrir búsetu ungs fóllu að átak sé gert f atvinnumálum“ sögðu þau
Hrönn og Hlynur.
„Nei, þær hljóta að vera nokkr-
ar titlaðar bændur." Svanhildur
sýgur að sér reykinn úr pípunni.
„Sveitakonur verða líka í flestum
tilfellum að vera meira og minna
bændur."
— Er ekki erfitt fyrir konu að
þurfa að hugsa um búskapinn, öll
verk úti og inni, og vera ein með
börnin?
„Það eru margir karlmenn sem
búa einir. Það gilda sömu reglur
um alla í þessari aðstöðu. Þó hef
ég orðið vör við að það gilda ekki
alveg sömu reglur hvað varðar
inniverk, þar eru gerðar meiri
kröfur til konu sem býr ein.“
— Finnst þér þið ekkert vera
einangruð hér á veturna?
„Flóabáturinn Baldur kemur
hér að jafnaði tvisvar I viku, og
það kemur varla fyrir að ferðir
falli niður. Mér finnst við ekkert
vera einangruð hérna, miðað t.d.
við margar sveitirnar hér í kring,
en þangað getur verið lokað lang-
an tíma á veturna.”
Svanhildur segir að lítið sé að
gera af venjulegum búverkum
fyrri hluta vetrar og lífið sé ótrú-
lega ólíkt í eyjunni sumar og vet-
ur. „Það er dálítið erfitt að vera
með börn á svona stöðum, því það
þarf að senda þau burt í skóla á
veturna." Dætur hennar 12 og 15
ára verða báðar að öllum líkindum
í heimavistarskóla að Laugagerði
á Snæfellsnesi, en skólinn í Flatey
verður ekki starfræktur vegna
nemendafæðar.
— Heldurðu að unga fólkið sem
elst upp á svona stöðum komi
hingað aftur að loknu skólanámi?
„Unga fólkið á að hafa það
frjálsræði að velja og hafna. Það
er nauðsynlegt fyrir það að fara I
burtu og kynnast einhverju öðru.
Á þann hátt getur það borið sam-
an lífið hér og annarstaðar, læra
jafnvel að meta það sem þessi
staður hefur upp á að bjóða. Ef
eitthvað verður gert hér í atvinnu-
málum, þá gæti ég trúað að unga
fólkið kæmi aftur. Fólk getur lifað
hér góðu lífi ef það vill leggja það
á sig. Það verður alltaf fyrirhafn-
arsamt, en jafnframt fjölbreytt og
skemmtilegt. Helstu gallar við að
búa hér er að hér er of fátt fólk,
þetta er allt of fámennur hreppur,
og ef ekki rætist úr því á næst-
unni, líst mér ekki á framtíð
byggðarinnar hér.“
Nýtt tölublað
af Storð
NVTT tölublað af tímaritinu
STORÐ kom út í byrjun október-
mánaðar. Á forsíðu er mynd af mál-
verki eftir Sigurlaugu Jónasdóttur,
en í blaðinu er einmitt viðtal sem
Aðalsteinn Ingólfsson tók við þenn-
an áður óþekkta alþýðumálara. Við-
talinu fylgja fleiri myndir af mál-
verkum Sigurlaugar.
f grein er nefnist „Hvað kostar
kunningjaþjóðfélagið?” fjallar
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðing-
ur, um pólitíska misnotkun fjár-
magns á íslandi undanfarna ára-
tugi, ábyrgðarleysi ráðamanna og
afleiðingar þess fyrir þjóðarbúið.
„Með storminn í fangið“ nefnist
grein eftir breska kvikmyndasér-
fræðinginn Peter Cowie, um
grósku í íslenskri kvikmyndagerð
síðastliðinn áratug og er þar notuð
önnur mælistika á islenskar
kvikmyndir en hér hefur tíðkast.
Solveig K. Jónsdóttir skrifar um
Árna G. Pétursson, hlunninda-
ráðunaut og uppfóstran hans á
æðarungum og Indriði G. Þor-
steinsson segir frá ferð þeirra
Jóns Helgasonar, Ijóðskálds og
prófessors, á slóðir kvæðisins
Áfanga. Bandarískur heimspek-
ingur, Don Brandt, skrifar síðan
hugleiðingar um gönguferðir á ís-
landi. STORÐ birti einnig nýja
smásögu, „Eitthvað", eftir Fríðu
Á. Sigurðardóttir. Meðal mynda-
sería í STORÐ eru nýlegar ljós-
myndir af Surtsey eins og hún er í
dag, nærmyndir af sjö þekktum ís-
lenskum leikurum og nýjar mynd-
ir frá New York, allar eftir ljós-
myndara blaðsins, Pál Stefánsson.
Loks eru í STORÐ þættir um
ljósmyndir, hönnun, bókmenntir,
vinsmökkun, myndbönd, tölvur og
samskipti kynjanna eftir þau Að-
alstein Ingólfsson, Rögnu Ragn-
ars, Ólaf Hauk Símonarson, Einar
Thoroddsen, Björn Vigni Sigur-
pálsson, Ásu Sólveigu og Helga
Órn Viggósson. STORÐ er 100 síð-
ur að stærð, litprentað að mestu.
Útgefandi er Haraldur J. Hamar,
sem einnig er ritstjóri ásamt Að-
alsteini Ingólfssyni, ljósmyndari
er Páll Stefánsson, en útlitshönn-
un annaðist Guðjón Sveinbjörns-
son.
(FrétUtilkynning)
Stykkishólmur:
Björgunar-
sveitaræfing
Stjkkishólnii. I. okL
Björgunarsveitin Berserkir í
Stykkishólmi gekkst hinn 29. sept.
sl. fyrir æfingu fyrir sjómenn um ör-
yggisútbúnað báta. Þessi æfing var
haldin um borð í flóabátnum Baldri
í Stykkishólmshöfn. Á æfingu þess-
ari voru mættir yfir 50 sjómenn, og
einnig fulltrúar frá Slysavarnafélagi
íslands, Siglingamálastofnuninni og
einnig fulltrúi björgunarnetahönn-
unar.
Á þessari æfingu var sýnd notk-
un gúmmíbjörgunarbáta og
búnaður þeirra og skýrðar út um
leið farsælustu notkunarreglur.
Þá voru sýndir og prófaðir 10
flotbúningar af mismunandi gerð-
um og sjómenn látnir fara f þeim í
sjó og reyna þá. Þá var farið yfir
notkun línubyssu og leiðbeint um
hvernig hægt væri að nota þær við
að koma björgunarlínu til manna
sem fallið hafa í sjóinn og rekið
frá bát. Björgunarnetið var sýnt
og menn teknir um borð í bát með
því. Var leiðbeint um allskonar ör-
yggi á sjó og allt sem lýtur að því
að bjarga mönnum úr sjávar-
háska.
Þá voru á eftir sýndar myndir
um reykköfun og skýrðar. Einnig
voru umferðar- og öryggismál sem
viðkoma sjómönnum rædd. Að
viðstaddra dómi voru þessar æf-
ingar og leiðbeiningar gagnlegar
og björgunarsveitinni til sóma.
Fréttaritari
FYRIR VIÐSKIPTAVIN PKKAR
AUGLYSUM VIÐ:
FÓLKSBÍLAR
Mercedes-Benz 240 D
Árg. 1981, ekinn 180.000 km. Litur: beige, rauöur aö innan,
sjálfskiptur, útvarp (casettu), toppbíll. Veröhugmynd 580.000.
Skipti athugandi. Upplýsingar í síma 626423 eöa 11720/92.
Mercedes-Benz 240 D
Árg. 1982, ekinn 190.000 km. Litur: beige, sjálfskiptur. Ný
dekk. Veröhugmynd 550.000. Upplýsingar í síma 82998 frá kl.
18—21.
Mercedes-B'enz 220 D
Árg. 1976, ekinn 240.000 km þar af 70.000 á vél. Litur: gul-
brúnn, beinskiptur. Upplýsingar í síma 74429 eftir kl. 16.
FÓLKSBÍLAR
Mercedes-Benz 250
Árg. 1977, ekinn 15.000 km á vél. Litur: grænn, sjálfskiptur,
einn eigandi. Bíll i sérflokki. Veröhugmynd 400.000. Upplýs-
ingar veitir Hjörtur í síma 19550.
Mercedes-Benz 250
Árg. 1978, fyrst skráöur 1979. Litur: orangerauöur, ekinn
50.000 km., sjálfskiptur, vökvastýri, allæsing. Veröhugmynd
650.000, sveigjanleg eftir kjörum. Upplýsingar í sima 33464.
SENDIFERÐABILAR fegji
Toyota Hiace
með gluggum
Árg. 1983, ekinn 50.000 km. Litur: blár. Feröainnrétting getur
fylgt. Upplýsingar í síma 43576.
Mercedes-Benz 307
m/gluggum
Árg 1982, ekinn 94.000 km, stólar geta fylgt. Lltur: hvítur,
góöur bíll. Veröhugmynd 600.000, skipti athugandi á ódýrari.
Upplýsingar í síma 41787 eöa á vinnutíma í 25050 nr. 26.
VÖRUBÍLAR
Mercedes Benz 2232
m/kassa. Árg. 1980, ekinn 280 þús. km. Kassinn 7 m langur tll
sýnis á verkstæöi okkar Skúlagötu 59.
Upplýsingar i síma 19550 (verkstæöi) og hjá Kaupfól.
Hvammsfjaröar, Búöardal — Ólafur Sveinsson, síml 93-4180.
RÆSIR HF
SKÚLAGÖTU 59 121 REYKJAVIK SiM 19550
v____—
-<8-
Mercedes-Benz