Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 72
HLEKKURIHBMSHEÐJU
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Tveggja ára drengur
lést í umferðarslysi
TVEGGJA ára drengur frá ÞorUks-
böfn lést í umferðarslysi á mótum
Þrengslavegar og Þorlákshafnarveg-
ar nm klukkan ellefu í gær. Ung
kona með tvö lítil börn sín, tveggja
og þriggja ára gömul, ók fólksbifreið
eftir Þorlákshafnarvegi inn á
Þrengslaveg í veg fyrir rútu og rák-
ust bifreiðirnar saman af miklu afli.
Sjúkrabifreið kom fljótlega á
vettvang og ók áleiðis til Reykja-
víkur með litla drenginn, móður
hans og eldra barnið. Neyðarbif-
reiðin frá Borgarspítalanum með
lækni innanborðs var ekið til móts
við sjúkrabifreiðina. Litli dreng-
urinn komst fljótlega undir lækn-
ishendur, en var látinn þegar í
sjúkrahús kom.
Loðnuskipið Þórður Jónasson:
Brotsjór olli mikl-
um skemmdum
SejéUMi, 28. BÓvember.
LOÐNUSKIPIÐ Þórður Jónasson EA fékk á sig brotsjó er skipið var á leið
til lands af miðunum austur af Glettingi um klukkan 8 í gærmorgun. Skipið
var með 350 lestir af loðnu. Að sögn skipverja var orðið allhvasst af suð-
suðaustri, þetta sjö til átta vindstig og þó nokkur sjór og leituðu loðnuskipin
til lands undan veðrinu.
„Við vorum á um sjö mílna ferð
er við fengum hnút á okkur aftar-
lega á bakborða og mölbraut hann
brúargluggann þeim megin og
streymdi sjór inn í brúna. Tveir
menn voru í brúnni, fyrsti stýri-
Fyrsta
sjúkraflug
TF Sif
LEIGUÞYRLA Landhelgisgæzlunnar,
TF Sif, var flogið að Felli í Árnes-
hreppi á Ströndum í gærkvöldi til
þess að sækja þangað veika konu og
flytja í sjúkrahús. Beiðni um aðstoð
barst Slysavarnafélagi íslands um
níuleytið í gærkvöldi og hóf þyrlan
sig til flugs klukkan 21.30. Flogið var
til Hólmavíkur og Þorsteinn Njáls-
son, béraðslæknir á Hólmavík tekinn
um borð. Á meðan ruddu félagar í
björgunardeild Slysavarnaféiags ís-
lands lendingarstað fyrir þyrluna að
Felli í Árneshreppi, en þar var mikill
snjór.
Þyrlan kom að Felli um klukkan
hálftólf og var konan flutt um borð.
Flogið var áleiðis til Reykjavíkur
og þyrian væntanleg þangað laust
fyrir klukkan eitt í nótt. Þetta var
fyrsta sjúkraflug þyrlunnar. Flug-
stjóri í ferðinni var Páll Halldórs-
son, Benóný Ásgrímsson flugmað-
ur og Sigurður Steinar Ketilsson
stýrimaður.
maður auk háseta á vakt. Sigurður
Kristjánsson stýrimaður stóð
stjórnborðsmegin í brúnni en
þangað þeyttist handfang af brot-
inni rúðunni og mölbraut glerið á
asdic-tækinu við hliðina á Sigur-
jóni. Hann slapp með skrámur en
hásetann sakaði ekki,“ sagði Jak-
ob Ragnarsson vélstjóri á Þórði
Jónassyni.
Hann sagði að sjór hefði farið
um alla brúna og skemmt eða
eyðilagt flest öll siglinga- og fiski-
leitartæki sem þar voru. Einnig
kom sjór í gegnum brúargólf og í
íbúðir sem þar eru undir. „Við
tróðum belg i brúargluggann og
héldum inn til Neskaupstaðar þar
sem tæki sem skemmdust voru
tekin í land til þess að ganga úr
skugga um hvort hægt væri að
gera við þau. í ljós kom á sigling-
unni að einu tækin sem í lagi voru
í brúnni voru sjálfstýringin og
gamall radar. Síðan héldum við
hingað til Seyðisfjarðar til þess að
landa aflanum en förum aftur til
Neskaupstaðar þar sem reynt
verður að lappa upp á tækin og
gera við skemmdir," sagði Jakob.
Hreiðar Valtýsson útgerðar-
maður tjáði fréttaritara Mbl. nú í
kvöld, að unnið hefði verið að því f
dag að leysa út ný tæki í skipið í
stað þeirra sem eyðilögðust og
færu þau með flugi í fyrramálið
austur og yrðu sett í skipið á
morgun og vonaðist hann til að
viðgerð tæki stuttan tíma.
Ólafur Már
Viðlegugarður í Norðurfirði Morgunblaðið/Árni Johnsen.
Að undanförnu hefur verið unrf- sótti Strandir fyrir skömmu í fjarðarheiði var kannaður.
ið á vegum Vita- og hafnarmála- dagsferð og skoðaði mannvirki f Myndin er tekin á viðlegugarðin-
stjórnar að gerð viðlegugarðs í Norðurfirði, á Drangsnesi, um í Norðurfirði en næsti áfangi
Norðurfirði á Ströndum. Fjár- Klúku og á Hólmavík, auk þess verður að koma fyrir stálþili á
veitinganefnd Alþingis heim- að vegurinn yfir Steingríms- hluta garðsins og setja þekju á
Launahækkun nú á
bilinu 16,6—20,5%
Samningur bankamanna:
— þar af 10% afturvirk til 1. september
SAMKVÆMT nýgerðum kjara-
samningi Sambands íslenzkra
bankamanna og bankanna fá
bankamenn frá 16,6% til 20,5%
meira í launaumslagið sitt frá 1. nóv-
ember en var í ágúst síðastliðnum.
Meðaltalshækkun samningins er
metin um 24%. Samningur banka-
manna er afturvirkur, þannig að
laun hækka um 10% frá 1. septem-
ber og þann 1. nóvember var ákvæði
um þúsund krónu greiðslu á öll
launaþrep og að auki jöfnun á railli
launaþrepa þannig að bil milli þrepa
verði 3,4%.
Þann 1. desember hækka laun
um 2,5% og fyrir janúarmánuð
fær hver starfsmaður f fullu starfi
5 þúsund króna greiðslu. 1. maí
1985 hækka laun um 4%. Sam-
kvæmt hinum nýja samningi eru
laun í neðsta flokki, 3. flokki 1.
þrepi, 13.740 krónur og er hækk-
unin 18,6%. Laun í 8. flokki 1.
þrepi eru 20.058 og er hækkunin
20,5% og mánaðarlaun í 13. flokki
3. þrepi 35.410 og er hækkunin
18,7%.
Atkvæðagreiðslu um samning-
inn er lokið og er stefnt að því að
telja atkvæði á föstudag, en sam-
komulag tókst 20. nóvember síð-
astliðinn. Samningurinn nær til
um þrjú þúsund félagsmanna f
Sambandi íslenzkra bankamanna.
Flugleiðir:
Tap vegna verkfalls
nam 30-35 millj. kr.
Mílljón frá LÍÚ í
sjómannanámslán?
FYRIR stjórn Landssambands íslenzkra útvegsmanna liggur nú sam-
þykkt aðalfundar LÍÚ um að samtökin leggi eina milljón króna í sérstak-
an sjóð, sem síðan verði lánað úr með það í huga að hvetja menn til náms
í sjómannaskólunum.
í ályktun fundarins um
menntunarmál segir, að það hafi
verið mönnum áhyggjuefni, hve
dregið hafi úr aðsókn að sjó-
mannaskólum landsins á síðustu
árum og brýna nauðsyn beri til
að snúa þeirri þróun við. Þá seg-
ir í ályktuninni: „Til að auka
möguleika manna á að komast í
nám í sjómannaskólunum þarf
að endurskoða lánamál nem-
enda. Til þess að kom þeim mál-
um sem fyrst í betra horf, leggur
umræðuhópurinn það til við
stjórn LÍU, að sömtökin veiti
eina milljón króna í sérstakan
sjóð, sem nemendum sjómanna-
skólanum verði lánað úr og
hvetji önnur samtök innan sjáv-
arútvegsins til að gera slíkt hið
sama. Einnig fengi sjóðurinn
sérstakt álag á hverja veitta
undanþágu."
HEILDARTAP Flugleiða vegna verkfalls BSRB nemur 30—35 milljónum
króna, að því er fram kemur í grein eftir Sigurð Helgason stjórnarformann
Flugleiða á miðopnu blaðsins í dag. Um þrjú þúsund erlendir ferðamenn
hættu við íslandsferð með Flugleiðum í október vegna verkfallsins og telur
Sigurður að þjóðin hafí misst af tekjum, sem numið hefðu 50—60 milljónum
k róna fyrir utan fargjöldin og heildartap því nær 100 milljónum króna.
„Mánuðina fyrir verkfall höfðu
söluskrifstofur Flugleiða í Banda-
ríkjunum unnið við að undirbúa,
auglýsa og selja stuttar verslunar-
ferðir til Islands í október og nóv-
ember. Undirtektir voru betri en
nokkur bjóst við og pantanir
streymdu inn. Flestir þátttakend-
ur ætluðu að kaupa íslenzkar ullar
og keramikvörur. Von var á
600—800 manns í þessum sérstöku
ferðum. Vegna verkfallsins hættu
nær allir við komuna..." segir
Sigurður meðal annars í grein
sinni. Hann sagði að í könnun sem
gerð hefði verið, hefði komið fram
að mjög margir hefðu hugsað sér
að verja um þúsund dölum í kaup
á ullarvörum auk annarra inn-
kaupa.
„Við höfum fengið hingað hópa
bandarískra ferðamanna að und-
anförnu. Frá 20 manns upp í 50
manns. Þetta fólk hefur komið um
helgar; komið á föstudegi og farið
á mánudegi. Þetta er nú að mestu
dottið niður," sagði Margrét Sig-
valdadóttir aðstoðarhótelstjóri á
Hótel Loftleiðum í samtali við
Mbl. um komu bandarískra ferða-
manna í þeim erindagjðrðum að
versla hér á landi. „Það var kom-
inn mjög góður skriður á verslun-
arferðir Bandaríkjamanna hingað
til lands, en hefur ekki náð sér á
strik eftir verkfall. 2.300 gistinæt-
ur töpuðust vegna verkfallsins,"
sagði Margrét ennfremur.
Sjá miðopnu.