Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 1

Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 1
56 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 237. tbl. 71. árg. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 Prentsmiöja Morgunblaðsins Morðið á Jerzy Popieluszko: Rannsóknar- menn farast Vanjá, 30. ■ÓTember. AP. Tveir háttsettir embettismenn í innanríkisráðuneytinu, sem stjórna rannsókn i morðinu i prestinum Jerzy Popieluszko, biðu bana f kvöld er vörubifreið ók beint framan i bif- Hryðjuverka- menn tamila myrða fanga Colombo, 30. oóvember. AP. Hryðjuverkamenn úr röðum tamfla réðust i endurhæfingarstöð fyrir fanga í norðurhluta Sri Lanka í dag og dripu 42 menn samkvæmt fri- sögnum opinberra aðila, en heima- menn sögðu a.m.k. 80 liggja í valn- um. Kmbættismenn kalla verknað- inn fjöldamorð Embættismenn segja um 200 hryðjuverkamenn hafa ráðist á búðirnar. Hefðu þeir fyrst fellt þrjá fangaverði, síðan smalað föngum inn í byggingar og varpað þar inn handsprengjum og haldið uppi vélbyssuskothrið samtimis. Árásin var gerð skömmu fyrir dögun og aðeins sólarhring eftir að ríkisstjórnin tilkynnti ýmsar ðryggisráðstafanir til að stemma stigu við ofbeldisverkum. Hermt er að 20 tamílar hafi beðið bana í átökum við fangaverði. í búðunum hafast við um 450 fyrrverandi fangar og fjölskyldur þeirra. Talið er að flestir hinna látnu séu sinhalar. Herþyrla í eft- irlitsferð lenti við stöðina rétt eft- ir árásina en hvarf frá er á hana var skotið. Yfirmaður í her segir tamíla í norðri reyna með þessu að stofna til illdeilna milli sínhala og tamíla í suðurhluta Sri Lanka, þar sem þeir síðarnefndu eru í minnihluta. Þar með yrðu öryggissveitir í norðurhlutanum sendar suður á bóginn og þá gætu tamflar, sem eru í yfirgnæfandi meirihluta í norðurhlutanum, leikið lausum hala. reió þeirra við borgina Bialobrzegi 70 km suður af Varsjá. Mennirnir voru Stanislaw Traf- alski ofursti og Wieslaw Piatek majór. Voru þeir á heimleið eftir yfirheyrslur í tengslum við ránið og morðið á Popieluszko. ökumað- ur þeirra beið einnig bana. Ökumaður vörubifreiðarinnar er sagður hafa valdið slysinu og brotið umferðarreglur. Ók hann á sama vegarhelmingi og rannsókn- armennirnir, en í gagnstæða átt. Var hann handtekinn og er í vörslu lögreglunnar. Popieluszko var rænt 19. októ- ber og fannst lík hans í uppistöðu- lóni 11 dögum seinna. Þrir leyni- lögreglumenn hafa verið sakaðir um morðið á presti og ofursti i innanrikisráðuneytinu, sem fer með stjórn lögreglumála, er sakaður um að hafa verið i vitorði með þeim. AF VETTVANGI MORÐSINS Símamynd/ AP Bifreið leigubflstjórans hafnaði utan vegar eftir að steypustaur var varpað niður i hana af brúnni, sem sést í baksýn. Nimamaðurinn slapp ómeiddur, en bflstjórinn var litinn iður en komið var með hann i sjúkrahús. Lögreglustjóri í Suður-Wales segir að um morð hafi verið að ræða af hilfu nimamanna. Leigubflstjóri myrtur í aðgerðum námamanna Lowkn, 30. ■óvember. TVEIR VELSKIR nimamenn voru handteknir í kvöld og sakaðir um að hafa myrt leigubflstjóra, sem beið bana er steinsteypustaur var litinn falla niður á bifreið hans af brú, er hann ók nimamanni til vinnu sinnar nærri Aberfan í suðurhluta Wales í dag. Þriðji maðurinn hefur verið yfirheyrður og leikur grunur á að hann eigi hlutdeild í morðtilræðinu. Nimamaðurinn, sem sneri til vinnu í síðustu viku, slapp ómeiddur. Margaret Thatcher forsætis- ráðherra fordæmdi árásina og sagði hér vera um að ræða kald- rifjaða illgirni og þaulhugsað glæpaverk. „Enginn sómakær maður getur stutt verkfall, sem byggir á ofbeldis- og þorparaverk- um,“ sagði Thatcher. Neil Kinnock leiðtogi Verka- mannaflokksins sagði að um við- bjóðsverk væri að ræða og skoraði á þá sem að verki voru að gefa sig fram. Bílstjórinn var 35 ára og ein- hleypur. Var hann látinn áður en komið var með hann í sjúkrahús. Margsinnis hefur komið til átaka milli lögreglu og verkfallsvarða við Merthyr Vale námuna, sem námamaðurinn var á leið til. Tveir menn sáust á hlaupum við brúna í þann mund sem atvikið átti sér stað. Leigubíllinn ók i lögreglufylgd. Lát bílstjórans er þriðja dauðs- fallið, sem lögregla segir hljótast beint af verkfalli námamanna, sem hófst 12. mars sl. Hinn 14. mars lézt námamaður sem fékk múrstein í höfuðið í átökum námamanna og lögreglu og 15. júní varð verkfallsvörður fyrir vörubifreið og lést. Alls hafa 1.247 lögreglumenn og 329 verkfallsverðir og námamenn slasast I átökum frá því verkfall hófst. Rúmlega 8.500 handtökur hafa átt sér stað. í þessari viku sneru 1.977 náma- menn til vinnu, en i siðustu viku nam sá fjöldi 5.959. Er sagt að verkfallsmenn og fjölskyldur þeirra sæti nú hótunum og hafi það dregið úr straumnum. Bréfasprengja fannst í pósti til Thatcher forsætisráðherra i dag og hafa skoskir aðskilnaðarsinnar lýst sig ábyrga. E1 Salvador: Biskup vongóður um samkomulag Ayagulo, 30. nArember. AP. FULLTRÚAR uppreisnarmanna og ríkisstjórnarinnar ræddust við öðru sinni í dag um leiðir til að stilla til friðar í El Salvador og hvatti skæruliðaleiðtogi til aukinna og ákafari viðræðna til þess að binda mætti endi á borgarastyrjöldina hið fyrsta. í viðræðunum i dag tóku ekki jafn háttsettir menn þátt og í fyrsta fundi aðila. ÁÖ þessu sinni snúast viðræðurnar fyrst og fremst um fangaskipti og að- hlynningu særðra. Borgarastyrj- öldin, sem staðið hefur i fimm ár, hefur kostað 59 þúsund manns lífið. Fulltrúar beggja deiluaðila létu í ljós ánægju með fundinn og bjartsýni. Rosa Chavez erki- biskup í San Salvador, sem gegn- ir hlutverki sáttasemjara í við- ræðunum, segist vongóðir um samkomulag af einhverju tagi, þar sem báðum deiluaðilum sé ljóst að þjóðin kýs sættir. ^ Slmamynd/AP A FRIÐARFUNDI Þrír fulltrúar skæruliða, sem þátt tóku f friðarviðræðunum við fulltrúa stjórnarinnar { El Salvador f gær, á fundi með fréttamönnum í upphafl viðræðnanna. Á myndinni eru f.v. Dagoberto Gutierrez, Hector Oqueli og Ruben Zamora. Hawke spáð yfirburðasigri Sydiey, 30. BÓTember. AP. Bob Hawke er spáð yflrburðasigri í kosningunum á morgun, laugardag, þrátt fyrir að skoðanakannanir kvöldið fyrir kjördag bendi til að ríkisstjórnin hafl tapað fylgi til flokks, sem vill loka öllum banda- rískum herstöðum í Ástralíu. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Verkamannaflokkurinn 10- —16 prósentustiga fylgi umfram stjórnarandstöðuflokkana. Morg- an Gallup-skoðanakönnun, sem þykir áreiðanleg, spáir því að flokkur Hawke auki á meirihluta sinn í fulltrúadeild þingsins úr 25 í 46 sæti. Fjölgað verður I deild- inni að þessu sinni úr 125 í 146 sæti vegna fólksfjölgunar. Hawke var sigurviss í dag og sagði kjósendur játa þá staðreynd að stjórn sinni hefði tekist að koma Ástralíu út úr meiriháttar kreppu. 1 stjórnartíð hans hefur tekist að minnka verðbólgu úr 11% í 3,6%, atvinnuleysi úr 11% f 8,6%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.