Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 5
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
5
Námsmenn mótmæla stöðu lánamála:
Stefnt að óskert-
um desemberlánum
- að sögn menntamálaráðuneytisins
SAMTÖK námsmanna heima og erlendis gengust í gær fyrir mótmælum
vegna stöðunnar í lánamálum námsmanna, sem samtökin lýsa sem neyðar-
ástandi. Námsmenn í Kaupmannahöfn, Osló og Stokkhólmi heimsóttu
sendiráð íslands í þessum borgum og afhentu þar mótmæli sín og einnig
heimsóttu námsmenn í Reykjavík menntamálaráðuneytið þar sem þeir
komu mótmælum sínum á framfæri.
Kröfur námsmanna á Norður-
löndum eru þær að nemar á
fyrsta ári fái lán frá því að nám
þeirra hefst; að lánasjóður ís-
lenskra námsmanna fái fjárveit-
ingu samkvæmt áætlunum
stjórnar sjóðsins um fjárþörf á
næsta ári; að lánahlutfall verði
100% frá áramótum; að tekin
verði upp skylduaðild að SÍNE að
nýiu.
I yfirlýsingu sem námsmenn
hér heima afhentu menntamála-
ráðuneytinu segir meðal annars,
að nú vanti 41 milljón króna upp
á desembergreiðslur í Lánasjóðn-
um og að 300 milljónir króna van-
ti upp á greiðslur næsta árs. Af
þessum sökum verði námsmenn
að lifa af 3.000 krónum í desem-
ber og að lánin verði 70% af
framfærslu á næsta ári.
í svari menntamálaráðuneytis-
ins til námsmanna á Norðurlönd-
um segir, að Alþingi ákveði fram-
lag til lánasjóðsins og að sú
ákvörðun liggi ekki fyrir fyrr en
fjárlög hafi hlotið umfjöllun á
Alþingi og breyst í samræmi við
hana. Að fyrsta árs nemar njóti
sama réttar og verið hafi, lögum
samkvæmt, hvort sem vixlar séu
afgreiddir af banka eða lánasjóði.
Haustlán þeirra verði afgreidd
hjá lánasjóðnum eftir áramótin
eins og venja hafi verið og lög
geri ráð fyrir. Námsmenn séu
ekki skyldugir til þess að hlíta
skerðingu námslána vegna aðild-
argjalda að SÍNE. Hins vegar sé
þeim það frjálst að skrá ósk sína
um það á lánsumsókn sína. Ráðu-
neytið vinni að þvi að leysa vanda
sem upp sé kominn vegna desem-
berlána. Ráðuneytið telji að það
takist og gangi að sjálfsögðu út
frá því að desemberlánin verði
óskert eins og verið hafi.
Að sögn sendiherra íslands i
Kaupmannahöfn, Osló og Stokk-
hólmi komu námsmennirnir þar f
alla staði vel fram þó dvöl þeirra
hefði valdið lítilsháttar erfiðleik-
um i sendiráðunum í Osló og
Kaupmannahöfn, en þar voru allt
að 40 manns mest allan af-
greiðslutíma sendiráðanna.
Bankamenn
samþykktu
BANKAMENN samþykktu nýgerð-
an kjarasamning Sambands ís-
lenzkra bankamanna og bankanna,
en atkvæði voru talin í gær.
Atkvæðagreiðsla fór fram i
byrjun vikunnar. Á kjörskrá voru
3.114, eða 88,99%. Atkvæði féllu
þannig að 2.096. eða 75,6% sögðu
já og 511, eða 18,4%, sögðu nei.
Auðir seðlar og ógildir voru 164
eða 5,9%.
Mokveiði
á loðnunni
MOKVEIÐI var á loðnumiðunum út
af Glettingi í gær. Síðdegis höfðu 27
skip tilkynnt um afla frá miðnætti
samtals 20.520 lestir, flest með full-
fermi. Sólarhringinn þar á undan
var aflinn 5.610 lestir af 11 skipum.
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið í Morgunblaðinu, tilkynntu
eftirtalin um afla á fimmtudag;
Albert GK, 600, Jón Finnsson RE,
600, Huginn VE, 580, Jöfur KE,
560 og Guðmundur ólafur ÓF, 80
lestir.
Frá miðnætti aðfaranætur
gærdagsins til klukkan 16 til-
kynntu eftirtalin 27 skip um sam-
tals 20.520 lestir: Hrafn GK, 650,
Hákon ÞH, 820, Rauðsey ÁR, 600,
Sæbjörg VE, 630, Sighvatur
Bjarnason VE, 720, Guðrún Þor-
kelsdóttir SU, 700, Harpa RE, 620,
Súlan EA, 800, Helga II RE, 480,
Húnaröst ÁR, 620, Gísli Árni RE,
620, Þórshamar GK, 600, Bjarni
Ólafsson AK, 1.150, Pétur Jónsson
RE, 800, Gullberg VE, 600, Kap II
VE, 700, Ljósfari RE, 570, ísleifur
VE, 730, Sjávarborg GK, 800, Jón
Kjartansson SU, 1.100, Höfrungur
AK, 920, Fífill GK, 630, Hilmir II
SU, 550, Eldborg HF, 1.400, Júpí-
ter RE, 1.200, Víkurberg GK, 560
og Grindvíkingur GK, 950 lestir.
Þróarrými er af skornum
skammti á Austfjarðahöfnum, en
vegna þess og fría áhafna er loðn-
unni nú landað á svæðinu frá
Eyjafirði til Faxaflóahafna. Auk
þess héldu fimm skip með afla
sinn til Færeyja og Danmerkur.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Sími 20640
■ -
ItöOsklDirta
* *
Úrval af ítölskum Ijósum í loft - á veggi - á borð - á gólf
hvar sem þörf er fyrir mjúka lifandi lýsingu.
íbúðin fær hlýja birtu og blæ með Ijósi frá okkur.
Þú gengur að gæðunum vísum.