Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
Œíáfl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 265. þáttur
Haraldur J. Hamar í
Reykjavík sendir mér klippu
úr blaði þar sem orðið ferða-
mannaiðnaður kemur fyrir í
fyrirsögn. í framhaldi af inn-
gangsorðum bréfs síns segir
Haraldur:
„Eitt orð fer æ meira í taug-
arnar á mér: „ferðamannaiðn-
aður“ (tourist industry). Sé
ekki betur en ferðaþjónusta geti
gengið í flestum tilvikum. Hef
heyrt „ferðamannaþjónusta",
sem mér finnst klúður. Ferða-
þjónusta finnst mér geta náð
yfir allt sviðið.
Ef þú ert sammála ertu lík-
legastur til að geta drepið
„ferðamannaiðnaðinn" og kom-
ið á ferðaþjónustu. Ef þú ert
ósammála, þá gleymum við
þessu bara.“
Ég þakka Haraldi þetta
bréf. Ég veit að vísu ekki hvers
þessir þættir eru megnugir, en
þeir eiga að minnsta kosti að
vera vettvangur fyrir skoðanir
manna og tillögur um meðferð
íslenskrar tungu. Ég bið í
fyrstu lotu lesendur að segja
álit sitt á tillögu Haralds. Mér
þykir hún svo góð að alls ekki
megi hafna henni að svo
stöddu. Ferðamannaþjónusta er
komið inn í Orðabók Menning-
arsjóðs, en hvorki ferðaþjón-
usta né ferðamannaiðnaður. Ég
kann ekki við það síðarnefnda
fremur en Haraldur. Ég vísa
svo til bréfa Heimis Hannes-
sonar og fleiri um þetta efni og
vænti góðra tillagna frá les-
endum.
★
Fleiri en Jón Bjarman eru
fúsir til að fræða mig og les-
endur þáttarins um nafnið
Jósafat. Kolbeinn Þorleifsson í
Reykjavík skrifar svo:
„Jósafat er í gömlum kristn-
um fræðum nafn á tveimur
merkismönnum, sem engan
veginn eiga það skilið að vera
hafðir að háði og spotti meðal
íslenskumanna. Með slíku
höggva þeir all-nálægt ýmsum
helgum véum íslenskrar
tungu, svo sem skilningi Njáls
á Bergþórshvoli á píslar-
vættisgildi þess að brenna
inni.
Nafnið Jó-safat merkir:
Drottinn dæmir, og segja má
um konung þann meðal Júda-
manna, sem þetta nafn bar, að
hann hafi verið vitur sem
Njáll í lögum. Þó held ég ekki.
að þessi Gyðingakonungur
hafi verið sá maður, sem ís-
lenskir menn voru skírðir eft-
ir. Þar kemur til indverskur
prins, sem kristnir menn köll-
uðu Jósafat, en Indverjar
Siddharta Búddha. Helgidagur
þessa manns í rómversku
kirkjunni er 27. nóvember.
Þessi saga er indversk dul-
speki í kristnum búningi, og
það er píslarvættishugmynd
þeirrar sögu sem bergmálar í
sögunni af Njálsbrennu. Um
þessa sögu og hugsanlega þýð-
endur hennar ræðir dr. Jónas
Kristjánsson í Sögu íslands
III, bls. 266: Sagan af Barlaam
og Jósafat.
Norskir þýðendur sögunnar
hyggja á texta sem talinn hef-
ur verið saminn af heilögum
Jóhannesi frá Damaskus (d.
749), en aðrir ætla að þessi
saga hafi borist til Jóhannesar
frá kirkjunni í Georgíu í Kák-
asus-fjöllum. Þessarar sögu er
getið í Guðmundar sögu góða
eftir Arngrím Brandsson, og
sagt að Guðmundur hafi haft
bók þessa með sér úr vígsluför-
inni 1204.
Fróðir menn segja, að hin
arabíska mynd nafnsins Jósafat
í þessari sögu hafi upphaflega
verið Jódasaf, sem á indversku
er Bódasaf (Bodhisatva: sá sem
lærir að verða Buddha).
Hitt er undarlegt, að um
aldamótin 1900 eru menn
skírðir þessu nafni á íslandi,
og er það rannsóknarefni.
Nafnið er, að ég held, ekki al-
gengt í nágrannalöndunum."
Umsjónarmaður þakkar
Kolbeini þann víðtæka lærdóm
sem í bréfi hans er saman
dreginn. Jafnframt biðst hann,
fyrir hönd góðkunningja síns,
Þjóðreks þaðan, afsökunar á
gáleysislegri limru, sem í þátt-
um þessum birtist. Var hvorki
ætlun Þjóðreks að draga spé
að mönnum, sem báru Jósafats
nafn, né heldur nokkrum véum
íslenskrar tungu. Limran átti
aðeins að vera saklaus orða-
leikur, og er þess beðist að i
hana sé ekki lagður annar
skilningur. Orð geta verið
máttug.
★
Þegar Kolbeinn Þorleifsson
vitnaði í dr. Jónas Kristjáns-
son, datt umsjónarmanni í hug
bók hins síðar nefnda: Hand-
ritin og fornsögurnar, sú sem
kom út 1970. í þeirri bók kenn-
ir margra góðgrasa, og má þar
meðal annars finna merkilega
kafla úr gömlum íslenskum
kennslubókum. Ætli það sé
ekki vafamál að okkur takist
nú á dögum að fjalla um fræð-
in ýmiss konar með svo
skemmtilegum hætti sem
brátt skal greina. í Árnasafni
varðveittist lengi rit um nátt-
úrufræði, Fysiologus, frá um
1200 (AM 673 a II 4to). Þar
segir frá undarlegum dýrum.
Kvikindi það, sem við köllum
nú krókódíl, heitir þar koko-
drillus og er nafnið beygt upp
á latínu. En látum oss sjá:
„Er hvalr í sæ er heitir
aspedo ... Þá er hann hungrar
lýkr hann upp munn sinn, ok
sem nökkurn ilm láti hann út
fara. En litlir fiskar kenna ilm
ok samnask saman í munn
hans. En þá er muðr hans er
fullr, lýkr hann saman munn
sinn ok svelgr þá.“
„Einn fogl er í Ánni Níl, sá
heitir hidris... segir þat frá
honum at hann banar koko-
drillo. Þat er náttúra ok vandi
hans: Þá er hann sér kokodrill-
um sofa, klínisk hann leiri ok
hleypr í munn kokodrillo, er
hann sefr á árströndu, ok rífr
ok slítr hann allan innan, ok
setr í gegnum kvið hans ok at
honum dauðum."
★
í frásögninni um hvalinn
aspedo er nefnifallsmyndin
muðr í góðu gildi, sbr. þolfallið
munn. Það kallast ófullkomin
samlögun (tillíking), þegar nn
breytist í ð á undan r-i. Þannig
hefur áttarheitið suður (= sól-
arátt, af sunna) verið sunnr, en
það varð suðr með sama hætti
og munnr varð muðr. Munurinn
er sá, að í nútímamáli hefur
áttarheitið haldið ð-inu og
fengið u-innskot í endingunni
til þess að auðvelda framburð.
En hitt orðið hefur þokast i
áttina til upphafs síns, þó með
sama innskoti og suður. Því
segjum við nú munnur en ekki
muður. Lengi eimdi þó eftir af
hinu, sbr. vísu skessunnar:
ÓUfur muður,
ctlarðu guður?
R*ð eg þér, rungkjaftur,
að þú snúir beim aftur.
Snýttu þér, snúinraftur,
og snifaðu beim aftur.
Þessi hryssingslegi kveð-
skapur er reyndar til í ýmsum
mismunandi gerðum.
28611 Opið í dag kl. 2—4 28611
2ja herb. íbúðir
Grettisgata
Hraunbær
Norðurmýri
Lokastígur
Snorrabraut
Spóahólar
Sérhæð — Garöabæ
Einbýli — Skógahverfi
Nýienduvöruverslun
Vantar íbúðir
3ja herb. íbúðir
Álagrandi
Engjasel
Furugrund
Hraunbær — Skipti
Hverfisgata
Spóahólar
Parhús Kleppsholti
Einbýli — Álftanesi
Iðnaðarhúsn. - örfyrisey
Höfum kaupendur
4ra herb. íbúðir
Bjarnarstígur
Hraunbær
Laugarnesvegur
Melabraut
Hlíöunum
Hólahverfi
Endaraðhús - Garðabæ
Einbýli — Hellu
Einbýli — Stöövarfiröi
Eignaskipti
Húsog Eignir
Vinsamlegast hringiö viö útvegum eignina
m 28611m
Bankantrœti 6
Lúðvík Gizurarson hrl.
Vinnusimi 28611
Haimasími 17677
3ja-4ra herb. íbúð óskast
Höfum veriö beönir aö útvega fyrir mjög fjársterkan
og góöan kaupanda 3ja—4ra herb. íbúö í Reykjavík
eöa Kópavogi. Til greina kemur bæöi góö blokkar-
íbúö eöa lítil hæö í sérbýli. Góöar greiöslur í boöi fyrir
rétta eign.
Eignanaust,
Hrólfur Hjaltason viðsk.fr.
Opiö i dag kl. 11—15
Einbýlishús
Seljahverfi. 330 fm glæsilegt
hús meö innb. 55 fm bílskúr. Hægt
aö skipta í tvær íbúöir. Skipti koma
til greina. Ákv. sala.
Selás. Fullbúiö 170 fm einbýlis-
hús á einni hæö meö 55 fm bílskúr.
Ákv. sala. Laust fljótlega.
Raðhús — Parhús
Seljahverfi. Stórt og rúmgott
raöh., 108 fm grunnfl., 2 hæöir + 60
fm óinnr. ris., innb. bílsk. Verö 3,7
millj. Skipti koma til greina á rúm-
góöum 4ra—5 herb. íbúöum t.d. í
Fossvogi eöa Seljahverfi.
Víkurbakki. 205 fm endaraöhús
meö innbyggöum bílskúr. Húsiö er
á 4 pölium og er í toppstandi. Góö
eign ( ákveöinni sölu. Verö 4—4,2
millj.
Kögursel. Parhús um 140 fm
hæð og 20 fm baðstofuloft. Ekki
fullbúiö hús.
Ásgaröur. 130 fm raöhús á 2
hæöum ásamt kjallara. Ný eldhús-
innrétting. Ný málaö. Ný teppi.
Verð 2,3—2,4 millj.
Bakkasel. Glæsilegt raöhús á 2.
hæöum auk kjallara sem getur ver-
iö séríbúö meö sérinng. Alls um
288 fm. Stórkostlegt útsýni. Mögu-
leiki á aö taka ibúö uppí.
í smíðum
Ártúnsholt. Raöhús á tveimur
hæöum á glæsil. útsýnisstaö ásamt
tvöf. bílskúr. Alls um 250 fm, fok-
helt.
Grafarvogur. 220 fm fokheit
parhús m. innb. bílskúr. Timbur-
hús. Góö teikn. Góö kjör.
Rauöás. Fokhelt 270 fm raöhús.
Húsin eru tvær hæöir og ris. Innb.
bílskúr. Afh. í des.
Sérhæðir og hæðir
Grenimelur. góö 130 fm efri
hæö ásamt 40 fm í risi. 2 saml.
stofur, 2 stór svefnherb., eitt for-
stofuherb., herb. í risi, nýl. eldh.
innr. Bein sala eöa skipti á 4ra
herb. íb. í vesturbæ eöa austurbæ.
Verö 2,9—3 millj.
Laufás Garöabæ. 138 fm
neöri sérhæö ásamt 36 fm bílsk. 3
svefnherb., þv.herb. og búr innaf
eldhúsi. Suöaustursv. Verö 2,9—3
millj.
Blönduhlíö. Mjög snyrtileg 130
fm efrl sérhæö. Þríbýlishús. Tvær
stórar saml. stofur. Stórt geymslu-
ris. Bílsk.réttur. Ákv. sala. Gæti
losnaö fljótl. Verö 2,8—2,9 millj.
4ra—6 herb.
Barónsstígur. 106 fm 4ra herb.
íb. á 2. hæö í þríbýli. Verö 2 millj.
Ásbraut. 110 fm íbúö á 2. hæö,
endi. Bílskúrsplata.
Engihjalli. A 1. hæö, 110 fm
íbúö í góöu ástandi. Verö 1900 þús.
Kjarrhólmi. Meö sérþvottaherb.
100 fm íbúö á efstu hæö. Verö
1.850—1900 þús.
Gaukshólar. 135 fm íbúö meö
bílskúr. 4 svefnherb. Gott útsýni.
Verö 2,6 millj.
Breiövangur. góö 117 fm íbúö
á efstu hæö. 4 svefnherb. S.svalir.
Ákv. sala. Verö 2—2,1 millj.
3ja herb.
Blikahólar. 96 fm rúmgóö íb. á
4. hæö. Glæsilegt útsýni. Vel inn-
réttaö bað meö flísum og panel. Ný
teppi á stofum. Parket á ööru. Gott
skápapláss. Sameign ný máluð.
Laust fljótlega. Verö 1800 þús.
Hringbraut. Agæt 84 fm íb. á 3.
hæö. Mikiö endurn. ib. á góöum
staö. Suðursvalir. 11 fm herb. fylgir
í risi og 6 fm herb. í kj. auk
geymslu. Verð 1700—1750 þús.
Fellsmúli. 75 fm íb. á jarðh. 2
rúmg. herb., geymsla í íb. Verö
1800 þús.
Grænakinn. 90 fm sérhæö í risi.
2 svefnherb., rúmg. stofa, búr innaf
eldhúsi, lítiö undir súö, endurn.
ibúö. Akv. sala. Verö 1700 þús.
Stóragerði. Rúmgóö 90 fm íbúö
meö 2 mjög stórum svefnherb.
Suöursvalir úr stofu. Gott útsýni.
íbúö og sameign í mjög góöu
ástandi. Verö 1850 þús.
Vesturberg. Agæt ibúö, 2
svefnherb., stofa og boröstofu-
krókur. Mjög gott útsýni.
2ja herb.
Kambasel. Stórglæsileg íb. meö
sérinng. á sléttri Jaröh. 86 fm ásamt
sérgaröi. Verö 1750 þús.
Austurgata Hafnarf. 50 fm íb.
á jaröh. m. sérinng. ibúö í góöu
standi. Laus strax. Verö 1150 þús.
Hlíöarvegur. Ca. 70 fm íbúö á
jaröhæö í tvíbýlishúsi. Ákv. sala.
Verð 1.250 þús.
Æsufell. A 7. h. 60 fm íb. Ákv.
sala. Laus 15. des. Verö 1350 þús.
Annað
Verslunarhúsn. tii söiu víö
fjölfarna götu í miöborg Rvíkur, 180
fm, verslunar- og lagerhúsn. Afh.
um áramót eöa eftir nánara sam-
komul. Uppl. eingöngu á skrifst.
Fyrirtæki í rekstri. Lítið fram-
leiöslufyrirtæki á sviöi matargeröar
til sölu. Uppl. eingöngu á skrifst.
Billjardstofa Hafnarf. tii söiu
meö góöum kjörum. Uppl. á
skrifstofunni.
Vantar
Vantar. Einbýlishús eöa raöhús á
góöum stöðum í Reykjavík eöa
Seltjarnarnesi.
Vantar. 3ja herb. fb. í Kleppsholti.
Vantar. Vantar 2ja herb. í miöbæ
og vesturbæ.
Vantar. 4ra herb. í austurbæ og
Hlíöum.
Vantar. Sérhæö í austurbæ.
Vantar. i smíöum einbýlishús og
raöhús í Reykjavík.
Vegna mikillar aölu vantar allar geröir eigna i aöiuskri.
Á
' Fl
Jóhann Davíösson.
Björn Árnason.
Helgi H. Jónsson viöskiptafr.