Morgunblaðið - 01.12.1984, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.12.1984, Qupperneq 16
16 MORGUKBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 Afnám tog- veiöibanns — sérstakt línusvædi út af Faxaflóa SIÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur og Strandagrunni og gefið út reglugerð Faiaflóa. I frétt frá ráðuneytinu segir að Hafrannsóknastofnun hafi kannað hólf út af Húnaflóa og hólf á Hornbanka og Strandagrunni, þar sem togveiðar hafi verið bannaðar síðan 11. október 1983 og 20. júnf 1984. Við könnun þessa hafi komið i ljós að hlutfall smáþorsks hafi verið undir viðmiðunarmörkum og þarna hafi einnig fengist góð ýsa. Ráðuneytið hafi því ákveðið að af- nema togveiðibannið á þessum stöðum frá og með 1. desember. Þá segir að ráðuneytið hafi, eins og undanfarin haust, gefið út reglugerð um sérstakt línu- og nú aflétt togveiðibanni á Hornbanka um sérstakt línu- og netasvæði út af netasvæði út af Faxaflóa. Sam- kvæmt reglugerð þeirri séu allar botn- og flotvörpuveiðar bannaðar tímabilið 4. desember 1984 til 15. maí 1985 á svæði út af Faxaflóa, sem að sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi vestur af Sandgerðisvita. Að vestan markast svæðið af 23. gráðu 42. mínútu vestlægrar lengdar og að norðan 64. gráðu 20. mínútu norðlægrar breiddar. Reglugerð þessi sé sett að beiðni Útvegsmannafélags Suðurnesja og að fenginni umsögn Fiskifélags ís- lands. „Mínir menn“ eftir Stef- án Jónsson REYKJAFORLAGIÐ hefur geflð út í annarri útgáfu vertíðarsögu Stefáns Jónssonar, „Mínir menn“, sem fyrst kom út 1962. Teikningar f bókinni eru eftir Kristinn Jóhannson og kápu teiknaði Hilmar Þ. Helgason. Á bókarkápu segir m.a., að í bók- inni sé „frábær lýsing á lífi og starfi í sjávarplássi, skrifuð í þeim góðglettna dúr sem Stefáni er lag- inn, þótt alvara hörkulegra lífs- hátta sjómanna gægist greinilega milli línanna". Stefán Jónsson. Bókin er 227 blaðsíður, prentuð hjá Prentrún. Guðmundur Jakobsson Hvergerðing- ar segja frá REYKJAFORLAGIÐ hefur geflð út bókina „Mannlíf undir Kömbum" með viðtölum Guðmundar Jakobs- sonar við átta Hvergerðinga. Á bókarkápu segir, að Guðmund- ur Jakobsson hafi tekið saman nokkrar bækur, sem allar hafa fjallað um sjómenn og þeirra störf. I þessari bók rær hann á ný mið og ræðir við fólk i blómabænum Hveragerði. „En það ágæta fólk reyndist kunna á fleiru skil en garðrækt, átti rætur víðsvegar að og varð tíðrætt um æskustöðvarn- ar, um Iífshætti fyrri tíma við margvíslegar aðstæður. Auk þess að fræðast nokkuð um þessa sérstæðu byggð Hveragerði, finnur lesandinn æðaslátt liðins tíma svo ekki gleymist." Hvergerðingar, sem segja frá í bókinni, eru: Aage Michelsen, Axel Magnússon, Hans Gústafsson, Inga Wíum, Ingimar Sigurðsson, Sigríð- ur Björnsdóttir, Sigurður Sól- mundsson og Þórður Jóhannsson. Bókin er 312 blaðsíður. sKreyt^^jsi í i i » I. V tj»,'' : 4» 4 /# lig Helgartilboð: Jolastjarna frá kr. 175 Nóvemberkaktus kr. 150 ’HI OMÚAMXIIR Hafnarstræti 3. Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu. í tilefni dagsins bjóðum við upp á heitt súkkulaði með rjóma og nýbakaöar smákökur. Klukkan hálffjögur á morgun bjóðum við upp á skemmtiatriði fyrir börnin í jólatrésskemm- unni okkar við Miklatorg. * Vjjc Jólabasar Hrings- ins í Hafnarfirði KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Hafnarfirði heldur sinn árlega jólabasar á morgun, 2. desember, klukkan 15 í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu. Margt fallegra muna verður á boðstólum, m.a. jólaföndur, prjónles, handmáluð kerti, laufabrauð, notaðir munir og ýmsir smáhlutir. Jólafundur Hringsins verður haldinn fimmtudaginn 6. des- ember kl. 20.30 í samkomusal íþróttahússins v/Strandgötu. í ár gefa Hringskonur „stór-jóla- gjöf“ til St.Jósefs-spítala, sem verða tvær tölvustýrðar vökva- dælur. Morgunblaðið/RAX Kristinn Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Kristinn Sigmundsson syngur í Háskólabíói Kristinn Sigmundsson, söngvari, og Jónas Ingimundarson, píanóleik- ari, halda tónleika í Háskólabíói í dag, laugardag, og hefjast þeir kl. 14.30. Kristinn hefur undanfarna mánuði dvalið í Bandaríkjunum við sðngnám hjá fyrrum kennara sínum Williams Parker sem sung- ið hefur hér á landi nokrum sinn- um. Sagði Kristinn í samtali við blm. Morgunblaðsins að hann hefði gagngert komið heim til þess að halda þessa tónleika. Á efn- isskránni eru bæði innlend og er- lend Ijóðalög og arínr, m.a. nokkur af hinni nýútkomnu nljómplötu þeirra félaga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.