Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR L DESEMBER 1984
17
Skálholt gefur
út 2 bækur og
2 hljómplötur
Útgáfan Skálholt sendir frá sér
tvær bækur og tvær hljómplötur
nú á aðventunni. Fyrirtækið hefur
þann háttinn á, að sölufólk gengur
með efnið hús úr húsi og býður til
sölu. Bækurnar heita „Af hverju
afi?“ eftir dr. Sigurbjörn Einars-
son, biskup, og „Börn skrifa Guði“,
sem er erlend þýðing. Plöturnar
tvær eru „Og það varst þú“ og
„Ljósaskipti".
Til ágóða fyrir
augndeildina
Lionsklúbbur Reykjavíkur hef-
ur sett sér það markmið að safna
fé til kaupa á tækjum fyrir augn-
deild Landakotsspítala. í dag,
laugardag, efnir klúbburinn til
kökubasars í Lionsheimilinu sem
er í Sigtúni 9, og hefst hann kl. 15
og rennur allur ágóði í tækja-
kaupasjóðinn.
Kökubasar og
flóamarkaður
Kvenfélags
Garðabæjar
KVENFÉLAG GarAabæjar heldur
sinn árlega kökubasar og flóamark-
að í Garðaskóla við Vífílsstaðaveg f
dag, laugardag, kl. 14—16.
Boðið verður upp á laufabrauð
og ýmiss konar kökur sem félags-
konur hafa sjálfar bakað og á
flóamarkaðnum kennir ýmissa
grasa.
Úr fréttatilkynningu.
Af vöxtunum skuluð
þér þekkja þá
í grein Sigurðar H. Friðjónssonar
í blaðinu sl. fímmtudag féll niður
hluti setningar í tilvitnun. Viðkom-
andi kafli á að vera þannig:
„Um hina háu raunvexti nú seg-
ir Ragnar Arnalds: „Þetta er
stefna auðhyggjunnar i sinni
verstu mynd þar sem hagsmunum
fjöldans er fórnað í þágu auð-
magnsins.“ Ekkert gæti verið fjær
sanni en slíkar yfirlýsingar. Marg-
ir vinstri menn virðast hafa alveg
sérstakt lag á því, að hafa ná-
kvæmlega endaskipti á staðreynd-
um. Reynslan sýnir einmitt alls
staðar, að einfeldningslegar að-
gerðir til að „þjóna hagsmunum
fjöldans“, væntanlega þá á kostn-
að „auðmagnsins", hefna sin
venjulega síðar og oft einmitt á
þeim, sem líknarverkið átti að
vera unnið á.“
Þá var sagt i kynningu á höf-
undi, að hann kenndi við tækni-
deild Háskóla íslands, en á að vera
læknadeild. Blaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Rokktónleikar
í Keflavík
Rokktónleikar verða haldnir i
Félagsbiói i Keflavik i kvöld, laug-
ardaginn 1. desember, og hefjast
klukkan 17. Á tónleikunum koma
fram þrjár keflviskar hljómsveit-
ir.
XJöföar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
125 ára afmælis Þingvallakirkju minnzt
Ein elsta kirkja landsins, Þingvallakirkja, var byggð og vígð árið 1859 og
var 125 ára afmælis hennar minnst með hátíð safnaðarins sl. sunnudag.
Kirkjan var þéttsetin, þótt aðeins 60 manns séu í söfnuði. Sóknarprestur-
inn, sr. Heimir Steinsson, annaðist hátíðaguðsþjónustu en síðan flutti sr.
Eiríkur i. Eiríksson, fyrrum prestur á Þingvöllum, erindi um sögu kirkj-
unnar. Dr. Sigurður Pálsson vígshibiskup og frú hans voru meðal kirkju-
gesta.
Á síðasta ári fór fram marg-
háttuð útlitsbót kirkjunnar, hún
var máluð i upphaflegum litum
og búnaður hennar bættur.
Geymir hún ýmsa merka gripi
m.a. rúmlega 300 ára gamlan
predikunarstól sem er með þeim
elstu í notkun hérlendis. Áðrir
stólar frá þessum tíma eru flest-
ir komnir á söfn. Hreinsun hefur
verið hafin á stólnum og kom
þar i ljós hin upphaflega
myndskreyting hans og er brýnt
að ljúka þeirri vinnu. Ikirlyunni
er einnig altaristafla sem Ofeig-
ur á Heiðarbæ gerði 1836.
Mjög er gestkvæmt i Þing-
vallakirkju. Allir opinberir gest-
ir sem til Þingvalla koma ganga
í kirkju á þessum helga stað
þjóðarinnar. Margir hópar sem
heimsækja staðinn biðja gagn-
gert um að þar sé bænastund og
virðist að i vitund margra Is-
lendinga sé Þingvallakirkja eins-
konar pílagrímakirkja, á staðn-
um þar sem kristni var lögtekin.
Á sumrin er messað í kirkj-
unni alla helga daga frá maí-
byrjun til septemberloka, morg-
unbænir alla morgna um aðal-
sumarmánuðina og kvöldvökur
og kvöldbænir á laugardags-
kvöldum þann tíma.
Á vetrum eru guðsþjónustur
hálfsmánaðarlega og eru mjög
vel sóttar af söfnuðinum, þrátt
fyrir erfitt færi á köflum. Er
sjaldnast minna en 50% safnað-
arins við guðsþjónustur. Rúm-
lega 100 guðsþjónustur fóru
fram i Þingvallakirkju á síðasta
ári, að auki athafnir svo sem
skírnir og hjónavigslur, svo og
helgistund með ferðafólki.
Núverandi sóknarprestur á
Þingvöllum er séra Heimir
Steinsson. Samkvæmt lögum frá
1970 er Þingvallaprestur skipað-
ur af ráðherra eftir tillögu bisk-
ups og Þingvallanefndar og
gegnir hann jafnframt starfi
Þjóðgarðsvarðar. í sóknarnefnd
Þingvallakirkju eru Ingólfur
Guðmundsson, Miðfelli, Guð-
mann ólafsson, Skálbrekku og
Sveinbjörn Jóhannesson, Heið-
arbæ I, sem jafnframt er með-
hjálpari. Organistinn kemur alla
leið frá Selfossi, Einar Sigurðs-
SOn. (FrttUíilkyBBtaj)
Verslunin Bernharð Laxdal er flutt
HINGAÐ Á HORNIÐ
á götuhæð þessa glæsilega húss
að Laugavegi 63.
Enn sem fyrr bjóðum við vandaðan og fjölbreyttan fatnað
frá þekktum tískuhúsum í Evrópu.
í nýju og björtu húsnæði bjóðum við enn betri þjónustu.
Verið velkomin.
9
"M