Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 22

Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGABDAGUR 1. DESEMBER 1984 Islenzka flugsögufélagið: Fundur tileinkaður landhelgisgæzluflugi ÍSLENZKA flugsögufélagið heldur sinn fyrsta félagsfund á þessum vetri að Hótel Loftleiðum nk. þriðjudagskvöld. 4. desember, kl. 20.00. Aðalefni fundarins þessu sinni verður tileinkað landhelgisgæslu- flugi og sögu fluggæslu Land- helgisgæslunnar frá upphafi, og munu sérstakir gestir fundarins, þeir Guðmundur Kærnested skip- herra, Guðjón Jónsson flugstjóri og Anton Axelsson flugstjóri, rifja upp atvik úr sögu fluggæsl- unnar og sitja fyrir svörum fund- armanna. Þá mun Guðmundur Kærne- sted lesa kafla úr nýútkominni bók sinni „Guðmundur skipherra Kærnested", frá einstæðri töku bresks togara við landið, en gestir fundarins voru allir þrír í áhöfn gæsluflugvélarinnar TF-RÁN er tók togarann. Mun fundargestum gefast tækifæri til að kaupa árit- uð eintök bókarinnar. Fundurinn er öllum opinn. Jólakort Svalanna JÓLAKORT Hvalanna, félags núver- andi og fyrrverandi flugfreyja, er kom- ið ÚL Jólakortið prýðir að þessu sinni vatnslitamynd eftir Sigríði Gyðu Sig- urðardóttur, en hún er félagi f Svölun- um. Allur ágóði af sölunni rennur sem endranær til líknarmála. Félagar í Svölunum eru nú um 240 og hefur félagið styrkt ýmsa líknar- starfsemi með starfsemi sinni. Á þessu ári styðia félagskonur skóla- dagheimili Oskjuhlíðarskóla að Lindarflöt 41 f Garðabæ. Þar er þjónusta fyrir nokkra fjölfatlaða nemendur Oskjuhlíðarskóla og nem- endur frá sérdeild fyrir hreyfihaml- aðra f Hlfðarskóla. Ennfremur styrkja þær Múlaborg og Iðjuþjálfa- félag íslands. Þá hafa þær veitt námsstyrki til fólks, sem stundar nám í iðjuþjálfun og endurhæfingu fatlaðra og heyrnardaufra. { tilefni af útkomu jólakortsins I ár bað Ragna Þorsteins, formaður Svalanna, fyrir beztu kveðjur og þakkir til allra þeirra, sem stutt hafa Svölurnar með kaupum á kort- unum undangengin ár. Við Borgarspítalann — konan flutt frá þyrlunni f sjúkrahúsið. Morgunblaöid/Júlíus. Fyrsta sjúkraflug TF SIF: Ljósamessa í Neskirkju SUNNUDAGINN 2. desember verð- Þyrlan varð ad lenda á Akranesi vegna éljagangs LEIGUÞYRLA Landhelgisgæzlunn- ar, TF Sif, lenti við Borgarspítalann laust eftir khikkan eitt aðfaranótt fimmtudags eftir vel heppnað sjúkraflug á Strandir • hið fyrsta sem nýja þyrlan fór í. Vegna élja- gangs varð Páll Halldórsson flug- stjóri að lenda á Akranesi og bíða þess að veðrinu slotaði. Það var laust fyrir khikkan eitt, en stund- arfjórðungi síðar hafði veður lægt og hægt, að halda áfram til förinni Reykjavíkur og lenti þyrlan við Borgarspítalann tíu mínútum sfðar. Aðstoðarflugmaður Páls f ferðinni var Benóný Ásgrímsson og stýri- maður Sigurður Steinar Ketilsson. Tilkynning barst upp úr klukk- an 20.30 um að fullorðin kona á Felli f Ámeshreppi á Ströndum þyrfti nauðsynlega að komast undir læknishendur. TF Sif fór f loftið rétt um klukkan 21.30. Veð- ur var fremur slæmt, éljagangur og slæmt skyggni. „Þegar við komum upp á Mýrar slotaði hríð- inni og við héldum sem leið lá vestur f Hólmavík og sóttum þangað Þorstein Njálsson hér- aðslækni. Á meðan var unnið við að ryðja snjó á Felli svo þyrlan gæti lent þar og þegar við komum þangað lýstu heimamenn svæðið upp með ljósum frá dráttarvél og jeppabifreið. Við lentum klukkan 22.55 og gekk lendingin vel, enda höfðu menn unnið verk sitt mjög samviskusamlega," sagði Páll Halldórsson flugstjóri f samtali við Mbl. „Þorsteinn hóf þegar að hlúa að konunni og búa hana undir ferð- ina suður. Við fórum svo f loftið klukkan 23.45 og flugum sömu leið til baka. Vegna éljagangs var ekki um annað að ræða en lenda þyrlunni á Akranesi og bfða þess að veðrinu slotaði. Stundarfjórð- ungi síðar hófum við okkur til flugs og lentum við Borgarspftal- ann klukkan 01.10. Þyrlan reynd- ist vel í alla staði," sagði Páll ennfremur. Þyrlupallurinn á Akranesi kom sér vel í þessu fyrsta sjúkraflugi þyrlunnar. Hann var tekinn f notkun f marz siðastliðnum og beittu félagar f björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Akranesi sér fyrir byggingu hans. Starfs- menn Landhelgisgæzlunnar æfðu þá lendingar á Akranesi á TF Gró, svo og æfðu björgunarsveit- armenn á Keflavíkurflugvelli lendingar á Jolly Green Giant- þyrlu sveitarinnar. Morgunblaðið/Árni Sœberg. Að loknu vel heppnuóu flugi — fyrsta sjúkraflugi TF-SIF, frá vinstrí: Sigurður Steinar Ketilsson, stýrimaður, Benóný Ásgrímsson, flugmaður, og Páll Halldórsson, flugstjórí. ur Ijósamessa klukkan 14 í umsjá fermingarbarna. Seinni hluti hátfð- arinnar hefst klukkan 17, þá talar Davíð Scheving Thorsteinsson framkvæmdastjóri, Friðbjörg G. Jónsson syngur einsöng við undir- leik Jónasar Þóris Þórissonar, kór Melaskóla syngur undir stjórn Helgu Gunnarsdóttur og strengja- sveit Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur nokkur lög undir stjórn Jak- obs Hallgrímssonar. Metsölutímaritið Áskriftasímar: 91-68-74-74 og 68-74-79.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.