Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
Suður-Kórea:
Flóttamaðurinn
til Rómaborgar
•Seool, 30. bót. AP.
SOVÉTMAÐURINN Vasily Yakoul-
evich Matuzok, sem flúöi til Suöur-
Kóreu frá Norður-Kóreu í síöustu
viku er farinn til Rómaborgar „sam-
kvsmt eigin ósk“. Skýrði utanríkis-
ráöuneyti Suöur-Kóreu frá þessu í
dag.
Þegar Matuzok flúði kom til
Seinheppn-
ir en vel
skipulagöir
bófar
Redbill, EagludL 30. nÓTember. AP.
ÞEIR VORU seinheppnir ræn-
ingjarnir sem stálu 300.000
pundum úr brynvarinni bifreið
öryggisgæslufyrirtækis í Surrey í
dag. Að vísu sluppu þeir meö
feng sinn og aö vísu var fram-
kvæmd ránsins lýtalaus ef þann-
ig mætti að oröi komast. Sein-
heppnin fólst í því að þeir skildu
óafvitandi eftir eina milljón
punda í bifreiöinni!
Hér var um átta manna
bófaflokk að ræða og voru þeir
grimuklæddir er þeir réðust til
atlögu gegn öryggisvörðunum
sem voru aðeins tveir. Voru
þeir yfirbugaðir og bundnir, en
því næst óku bófarnir risa-
stórri skurðgröfu að bifreið-
inni og rifu þakið af henni með
gröfuskóflunni. Að því loknu
létu þeir greipar sópa.
Keith Portlock, rannsókn-
arlögregluforingi í Surrey og
yfirmaður rannsóknarinnar á
ráninu sagði: „Þó þeir hafi
misst af milljóninni, þá verður
að segjast eins og er, að ég hef
aldrei staðið frammi fyrir jafn
öruggum og snjöllum vinnu-
brögðum i ráni og nú.“ Portl-
ock bætti við að í stöðunni
væri lögreglan ráðþrota.
blóðugra bardaga milli hermanna
frá Norður-Kóreu og Suður-
Kóreu, þar sem þrír féllu úr liði
Norður-Kóreu en einn úr liði
Suður-Kóreu.
Talið er að stjórnvöld i Suður-
Kóreu vonist til þess að sem fyrst
fyrnist yfir flótta Matuzoks, svo
að unnt verði að halda áfram að
bæta samskipti kóresku ríkjanna.
Fyrirhugað var að viðræður milli
ríkjanna um efnahagsmál hæfust
5. desember nk., en i kjölfar flótta
Matuzoks i siðustu viku, ákvað
stjórn Norður-Kóreu að fresta
þessum viðræðum.
Matuzok var væntanlegur til
Rómaborgar siðdegis i dag en
hann hefur lýst yfir þeim vilja
sinum að fá að setjast að f Banda-
ríkjunum.
Austur Þjóðverjar:
Arafat endurkjörinn
Yasser Arafat skæruliöaleiötogi á þingi PLO ásamt helstu ráðgjöfum sínum, Khalil Wazir (th.) og Farouk
Kaddoumi. Arafat var í dag endurkjörinn leiötogi PLO á fundinum í Amman í Jórdaníu.
Með ný rafeindaleitar-
tæki á landamærunum
Bonn, 30. nArenber. AP.
AIISTUR-ÞÝSKIR landamæra-
veröir unnu aö því í vikunni að
taka í sundur og flytja á brott
55.000 sjálfvirkar byssur víðs veg-
ar á landamærum Austur- og
Vestur-Þýskalands. Hér var um aö
ræða byssur sem dreifa sprengju-
brotum í allar áttir sé komiö við
tengingar þeirra sem eru vandlega
huldar.
Talsmaður vestur-þýsku
stjórnarinnar, Jurgen Sudhof,
sagði i dag að stjórnin fagnaði
þessari þróun sem væri spor f
rétta átt að draga úr mannvíg-
um og ofbeldi á landamærum
þýsku ríkjanna. „Það er þó langt
frá þvi að landamærin séu
eitthvað opnari, því austur-
þýsku landamæraverðirnir
munu eftir sem áður reyna að
skjóta það fólk sem sleppur úr
klóm þeirra og reynir að komast
yfir landamærin," sagði Sudhof.
I stað byssanna hafa Austur-
Þjóðverjar komið upp sérstöku
rafeindakerfi, kerfi sem nemur
alla hreyfingu í vissri fjarlægð
og gefur frá sér hljóðmerki í
varðstöðvum landamæravarð-
anna. Binda Austur-Þjóðverjar
miklar vonir við hið nýja kerfi.
Byssurnar, sem teknar hafa ver-
ið úr notkun, hafa orðið að
minnsta kosti 50 manns áð bana
síðan þær voru teknar í gagnið
snemma á áttunda áratugnum.
Rússar og þeirra fylgifiskar ekki á ól?
Hafa látið ótví-
rætt í það skína
Vill fá látinn mann
í ævilangt fangelsi
„Fjölskyldan eins og hrægammar"
Los Aageles, 30. nÓTember. AP.
SAKSOKNARI í morðmáli í Los
Angeles hefur krafist þess aö morö-
inginn, sem lést úr krabbameini áö-
ur en kveðinn var upp yfir honum
dómur, en eftir aö kviödómur úr-
skuröaði hann sekan, verði dæmdur
í ævilangt fangelsi þrátt fyrir aö
hann sé þegar látinn, til þess aö erf-
ingjar hans hreppi ekki eina milljón
dollara í tryggingarfé.
Hinn seki, Clifford Lee Morgan,
réð tvo menn til að ráða eiginkonu
sinni og 8 ára syni bana, en þó
ekki fyrr en hann hafði tryggt þau
veglega. Leigumorðingjarnir stóðu
við sitt, en allt komst upp. Morgan
átti hins vegar við beinkrabba-
mein að stríða og áður en dómur
var felldur í máli hans, lést hann.
Kviðdómur hafði þó úrskurðað
hann sekan og dæmt samstarfs-
menn hans tvo til dauða.
Morgan þessi var fráskilinn og
átti 4 börn með fyrri konunni.
Konan og börnin báru vitni fyrir
hönd verjandans í réttarhöldun-
um og er Morgan var allur fór
fólkið að falast eftir tryggingar-
fénu. Saksóknarinn, Jeffrey Jonas,
sagði að þar sem dómur hafi ekki
verið felldur á Morgan væri ekkert
hægt að aðhafast þrátt fyrir að
hann hefði verið sekur fundinn,
því hefði hann farið þess á leit að
maðurinn yrði dæmdur til lifstíð-
arfangelsis, „því fyrri konan og
börnin eru eins og hrægammar í
kirkjugarði, þau vilja fá blóðpen-
inga,“ eins og hann komst sjálfur
að orði.
Jonas sagði eðlilegra að fjöl-'
skylda frú Morgans fengi trygg-
ingarféð, en til þess að svo megi
verða, verður krafa Jonas að fást
samþykkt, eða að það sannist
áþreifanlega að Morgan sjálfur
hafi tekið þátt i morðunum, ekki
einungis skipulagt þau og ráðið
ótinda glæpamenn til að fremja
þau.
Launane, 8r«. 30. nóreinber. AP.
SOVÉTMENN hafa nú ótvírætt gef-
iö í skyn aö þeir íhugi alvarlega aö
taka ekki þátt í ólympíuleikunum
sem haldnir veröa í Seoul í S-Kóreu
árið 1988. Sem kunnugt er, tóku
Sovétmenn ekki þátt í leikunum í
Los Angeles síöastliðiö sumar og
fylgdu þeim aö málum nokkrar
kommúnistaþjóðir. Trúlega myndu
hinar sömu þjóöir fara að dæmi
Rússa í Seoul ef þeir ákveöa að vera
ekki með.
Þetta kom fram í bréfi sem tveir
ólympíunefndarmanna Rússa
sendu Juan Antonio Samanrach,
forseta alþjóðaólympíunefndar-
innar, nýlega. Þar segir m.a. að
Seoul sé afleitur staður til að
halda leikana, „mörg vandamál
skjóti upp kollinum og ólympíu-
nefndin verði að leysa þau vanda-
mál,“ eins og þar segir. Þessi orð
eru túlkuð með þeim hætti, aö
skipta beri um keppnisstað, en
Japanir gera tilraunir
með nýtt krabbameinslyf
Tókjó. 30. DÓTember. AP.
JAPANSKA heilbrigðisráðuneytiö
hefur heimilaö lyfjafyrirtæki
nokkru aö halda áfram tilraunum
sem þaö hefur gengist fyrir meö lyf
gegn krabbameini. Lyfið heitir
Maruyama og hefur gefiö góða
Vísindamaðurinn, sem lyfið
heitir í höfuðið á, Maruyama,
fann lyf þetta upp á fimmta ára-
tugnum. Allar götur þar til 1981
hefur lyfið verið á tilraunastigi,
en heldur ómarkvisst og það ár
neitaði heilbrigðisráðuneytið að
skrá það sem krabbameinslyf.
Það leyfði hins vegar frekari til-
raunir með því skilyrði að til-
raunirnar væru færðar í vísinda-
legri búning og þær yrðu mark-
vissari.
Síðan 1981 hafa 10.000 jap-
anskir krabbameinssjúklingar
tekið lyfið og árangurinn verið
góður þegar á heildina er litið.
Þónokkrir sjúklingar í Banda-
ríkjunum og Vestur-Evrópu hafa
einnig notað þetta tilraunalyf og
einnig með góðum árangri.
Sem fyrr segir var lyfið fundið
upp á fimmta áratugnum. Mar-
uyama tók eftir því að berkla-
sjúklingar fengu sjaldan krabba-
mein og datt honum þá i hug að
berklaveirur gætu haldið krabba
niðri. Það virðist vera raunin
samkvæmt þeim niðurstöðum
sem þegar liggja fyrir.
Samanrach hefur margítrekað að
það verði ekki gert úr þessu, of
skammt sé til leikanna og Suður-
Kóreumenn hafi eytt milljónum
dollara í undirbúning.
í bréfi Sovétmannanna, Smir-
novs og Andrianovs, er einnig
fjallað um hugmyndir sem uppi
eru um að refsa þeim þjóðum sem
hætta við þátttöku á vafasömum
forsendum. Segja Rússarnir í
bréfinu að slíkar hugmyndir séu
út í hött. Alþjóðaólympíunefndin
fundar um hugsanlegar refsiað-
gerðir um helgina og er búist við
deilum.
Bandaríkin:
Létta kvöð af
neyðarbirgðum
— vegna hjálparstarfsins
í Afríku
Washington, 29. nóvember. AP.
JOHN R. Block, landbúnaöarráö-
herra Bandaríkjanna, ætlar aö taka
300.000 tonn af hveiti af neyöar-
birgöum landsins, svo aö unnt veröi
aö koma til móts viö þarfir hjálpar-
starfsins á hungursvæöunum í Afr-
íku, aö því er starfsmaður hjálpar-
stofnana sagði í gær.
Robert Dole öldungadeildar-
þingmaður og fleiri hafa mjög
þrýst á Block um að létta neyð-
arkvöðinni af hveiti- og mjöl-
birgðum í því skyni að hjálpa til
við að lina hungrið í Eþíópíu og
öðrum Afríkulöndum.
„Við vitum ekki til hvaða landa
hveitið muni fara,“ sagði John
Ochs, sem vinnur við hjálparstarf-
ið. „Áætlun Blocks á eftir að
hljóta blessuií hjá fjárlaganefnd
og fleiri aðilum í stjórn Reagans,"
sagði hann.