Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 Vargöld f Chile: Prestar og nunn- ur í hópi handtekinna Santiago, Chile. 29. nÓTember. AP. HER- og lögreglusveitir Augosto Pinochets forseta Chile fóru um alla höfuðborgina í dag, uppræt- andi mótmælagöngur og handtak- andi grunaða stjórnarandstæðinga. Meðal hinna handteknu í dag voru tvær nunnur og þrír kaþólskir prestar, þar á meðal pólskur trú- boði. Fjöldi manns særðist af skotsárum og barsmíðum, en að- eins einn hættulega, 16 ára piltur sem vart er hugað Iff eftir að lög- reglumaður skaut hann í höfuðið. Pinochet hefur hert aðgerðirn- ar gegn andstæðingum sínum frekar en hitt síðustu dagana. Talsmenn stjórnarandstæðinga hafa hins vegar hvatt forsetann til að „sýna stillingu, því erfið- leika þjóðarinnar sé ekki hægt að leysa með ofbeldi. Ricardo Lagos, formaður Lýðræðisbandalagsins, sagði í dag; „Aðgerðir hersins og lögreglunnar síðustu dagana eru hernaðarsigur Pinochets, stjórn- málalega sló hann sér hins vegar ekki upp á þeim.“ Lagos sagði jafnframt, að alþýða manna í Chile hefði fengið sig fullsadda af kúgunarstjórn'nni og mót- mælum og „ýmsum öðrum að- gerðum" yrði haldið áfram. bíLVANGUR sf l.. i ! I 1 I HOFÐABAKKA 9 • IE4 RGYKJAVIK SIMI 687BOO I I 1 1 M I Þessi glæsilegi þýski fjölskyldubíll er fáanlegur bæöi 4ra og 5 dyra á verði síðan fyrir gengislækkun. Ath! Takmarkaöur fjöldi bíla. Hinsta ferðin ÓLAFUR Noregskonungur og Sonja prinsessa voru í hópi þeirra, sem fylgdu Tryggve Bratteli, fyrrum forsætisráðherra Noregs, til grafar á dögunum. Þau sjást hér við kistu hans ásamt mönnunum, sem báru hana úr kirkjunni; Gunnar Berge, Egil Knudsen, Oddvar Nordli, Ivar Leveraas, Tor Halvorsen og Reiulf Steen. Um 74 % aukning miöað við fyrra ár AUuU, <íeorgíu, 30. nófember. AP. Bandarískir sérfræðingar sem fylgjast með uppgangi sjúkdómsins AIDS, sem kallaður hefur verið áunnin ónæmisbskhin, segja að svo mörg tilfelli hafi komið upp það sem af er þessu ári, að um 74 prósent aukningu sé að ræða miðað við árið á undan. Næstum þrír af hverjum fjórum sem tóku sjúkdóminn fyrir árið 1982 eru nú látnir. Frá og með þessari viku hafa 6.993 fengið AIDS i Bandarikjun- um og alls hafa 3.342 þeirra þegar látist, eða alls 48 prósent. Um 86 prósent allra AIDS-tilfella hafa komið fram á tveimur síðustu ár- unum. Á þessu ári hefur sjúkling- unum fjölgað um 3.821 og telja sérfræðingarnir að reikna megi með mikilli fjölgun út þetta ár og allt það næsta. Vilja þeir ekki spá lengra fram i tímann. Þótt tölurnar séu aðrar í öðrum löndum þar sem AIDS hefur fund- ist, er einnig um aukningu að ræða. Þá segja sérfræðingarnir að eftir sem áður séu flestir sjúkl- ingarnir kynvilltir karlar, eða 73 prósent. Eiturlyfjaneytendur fylla næsta hæsta flokkinn, 17 prósent. 4 prósent sjúklinga hafa verið af haitisku bergi brotnir og má þar nefna 17 börn sem fengið hafa sjúkdóminn. Alls hafa 72 börn undir 13 ára fengið sjúkdóminn, flest börn eiturlyfjaneytenda. Hulin ráðgáta er hvers vegna fólk frá Haiti virðist viðkvæmt fyrir þessari óþyrmilegu veiru. Strauk þrýstna þjóhnappa ókunnrar konu: Sex mánaða fangelsi — en síöan náðaður! Binni.jckam, AUbanu. 30. aÓTcmber. AP. UNGUR maöur, Lester Scott, hlaut áfrýjun ■ stað sex mánaða fangels- isdóms og 1000 dollara sekt fyrir að hafa látið undan freistingu að strjúka þrýstna þjóhnappa ókunn- ugrar konu á almannafæri. Var hann ekki einungis dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi, heldur einnig fyrir að lenda í ryskingum við eigin- mann ungu konunnar sem horfði á sjónarspilið og líkaði illa. Lester var sum sé náðaður eft- ir að lögfræðingi hans tókst að sannfæra áfrýjunardómstól um að brotið verðskuldaði ekki svo hrikalegan dóm. „Það er ekki til sá maður á jörðu hér sem hefði ekki viljað strjúka þjóhnappana á konunni," sagði lögmaðurinn. Konan, Toni Lynn Harris, 22 ára, var að þvo þvott í almenn- ingsþvottastöð er Lester bar að. Eiginmaður Toni beið hennar fyrir utan. Fregnir herma að Toni sé löguleg í meira lagi og hafi verið íklædd níðþröngum buxum sem urðu til þess að freista Lesters svo mjög. Seildist hann eftir konunni, en eiginmað- urinn sá til hans ... AIDS-tilfelli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.