Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 29

Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 29 Ráðstefna Kaupþings: Verðtryggðir reikningar hag- stæðastir næstu sex mánuði Fnimmslendur á ráðstefnu Kaupþings hf.: (tv.) dr. Sigurður B. Stefánsson, Brynjólfur Helgason og Höskuldur Jónsson. I ræðustól er fundarstjóri, Baldur Guðlaugsson lögfræðingur. Verðbólgu- hraðií janúar 1985 verð- ur 79% VERÐBÓLGA í árslok 1985 verður um 25%, þegar litið er á eitt ár, en verðbreytingar verða örar fyrri part ársins og ná allt að 79% hækkun f janúar. Þessar tölur komu fram í framsöguræðu Dr. Sigurðar B. Stef- ánssonar hagfræðings á ráðstefnu Kaupþings hf. um stöðu óverð- tryggðra bankareikninga, sem hald- in var síðastliðinn fimmtudag á Hót- el Loftleiðum. í erindi sínu gerði Dr. Sigurður B. Stefánsson grein fyrir verð- bólguspá til ársloka 1985, miðað við óbreyttar forsendur. Vísitala framfærslukostnaðar hækkar fyrstu þrjá mánuði ársins um 64%, en fer síðan lækkandi. Ef lánskjaravísitala er sett á 100 í nóvember 1984, verður hún orðin 120 i maí, samkvæmt útreikning- um Sigurðar. Sé litið til næstu sex mánaða, verða óverðtryggðir reikningar að gefa 44% ávöxtun til að halda í við verðlag, en á hinn bóginn munu verðtryggðir 6 mánaða reikningar gefa 53,4% ávöxtun, spariskírteini ríkissjóðs 55,5% og verðtryggð veðskuldabréf 65,6%. Dr. Sigurður B. Stefánsson tók fram að ef rétt væri á málum haldið gætu spari- fjáreigendur treyst því að kaup- máttur sparifjár rýrnaði ekki, enda bjóðast nú fleiri og betri tækifæri til ávöxtunar. Höskuldur Jónsson ráðuneytis- stjóri i fjármálaráðuneytinu fjall- aði um spariskírteini ríkissjóðs og bankareikninga. Þar kom fram, að eigendur sparifjár verða að velja sér ávöxtunarleið eftir því hve lengi þeir ætla að binda pen- ingana, en spariskírteini rikis- sjóðs verða ekki eins laus hér eftir og undanfarin ár. Sagðist Hös- kuldur Jónsson ráðleggja sparend- um að verðtryggja fé ef kostur er. Það sem sparifjáreigendur verða að fyrst og fremst að huga að er fernt: I fyrsta lagi nafnvexti og/eða vísitölubinding á banka- reikningum og hversu oft vextir eru reiknaðir út, það er hversu oft vextir leggjast við höfuðstól. Þá þarf einnig að huga að binditíma, hvenær lagt er inn og áhættu. Brynjólfur Helgason rekstrarhag- fræðingur í Landsbankanum sagði ráðlegast fyrir eigendur sparifjár er ætluðu að binda peninga í sex mánuði að leggja þá inn á verð- tryggða reikninga. Ef hins vegar sé litið til lengri tima verður ávöxtun á óverðtryggðum reikn- ingum ekki síðri á 12 mánaða timabili. Að mati Brynjólfs Helgasonar er þörf á umtalsverðri hækkun innlánsvaxta og þar með útláns- vaxta, svo sparifé landsmanna rýrni ekki. Gallar hárra raun- vaxta eru aðallega tveir. í fyrsta lagi eru bæði einstaklingar og fyrirtæki tilbúin til að taka lán hvað sem það kostar vegna slæmr- ar fjárhagsstöðu og i annan stað eru engir markaðsvextir til við- miðunar. Þá gat Brynjólfur þess að raunvextir hefðu tilhneigingu til að lækka þegar Verðlag fer hækkandi, en væru háir þegar verðbólga minnkar. Um þessar mundir eru 15 millj- arðar króna á óvérðtryggðum reikningum, 8,7 mitljarðar króna eru á almennum reikningum, en vextir á þeim eru háðir ákvörðun Seðlabanka. Ráðstefna Kaupþings hf. var mjög vel sótt og voru margar fyrirspurnir bornar fram til fram- sögumanna. Fundur Félags læknanema um inntökupróf: „Ekki má skerða jafnan rétt manna til náms“ — sögðu stúdentar meðal annars og segja nemendur ekki vera vandamál Háskólans heldur stjórnun skólans FÉLAG læknanema gekkst fyrir almennum fundi um inntökupróf í Háskóla íslands sl. fimmtudags- kvöld. Eins og kunnugt er hafa komið upp hugmyndir um að taka upp inntökupróf í læknadeild en þar hafa verið fjöldatakmarkanir eftir fyrsta námsár í deildinni. A fundinum voru fimm fram- sögumenn og tók fyrstur til máls Björn Þ. Guðmundsson prófess- or f guðfræði. Hann sagði að vandi Háskólans væri húsnæð- isleysi, peningaleysi og skiln- ingsleysi stjórnvalda, vandamál sem varðaði allar deildir Há- skólans en ekki einungis lækna- deildina, brýn þörf væri einnig á því að móta stefnu f menntamál- um Haákólans. Næstur tók til máls Gunnar Þór Jónsson prófessor f lækna- deildinni. Hann ræddi um þróun læknadeildarinnar og sagði að sú krafa að takmarka fjölda nemanda f deildina væri orðin 20 ára gömul. Stúdentum f læknis- fræði hefði fjölgað jafnt og þétt og að meðaltali hefðu 54 kandi- datar útskrifast undanfarin ár á meðan lönd eins og Danmörk hafa útskrifað 18 miðað við fbúa- tölu og Bandaríkin 32. Einnig nefndi Gunnar að læknastöðum fjölgaði einungis um 22 á ári. Taldi hann að inntökuprófið væri skásti kosturinn og betri en þær fjöldatakmarkanir sem nú væru eftir fyrsta námsár. Inn- tökupróf f Háskólann myndi ekki að hans mati rýra gildi stúdentsprófsins. ólafur Ásgeirsson skólastjóri fjölbrautaskólans á Akranesi mótmælti þvf að vanda Háskól- ans væri varpað yfir á fram- haldskólana. Hann taldi beinlin- is rangt að stúdentspróf væri ósambærilegt milli hinna ýmsu framhaldskóla, og ekki fjarri sanni að menn væru nú betur undir háskólanám búnir en áður, og að ekki mætti gleyma þvi að menntun hefur gildi f sjálfu sér og ekki væri óhamingja f þvf fólgin að starfa við annað en það sem viðkomandi er menntaður f. Páll Skúlason prófessor í heimspeki taldi að ef inntöku- próf f Háskólann yrðu almenn hefði það í för með sér að mikið bákn myndi rísa til að standa undir þeim kostnaði sem þau myndu hafa í för með sér. Hann taldi einnig að inntökuprófið myndi ekki leysa þann vanda sem Háskólinn glfmir við heldur væru einungis viðleitni til að bregðast við honum. Vandinn væri sá að stjórnleysi hefði verið látið viðgangast og stjórnvöld látið reka á reiðanum um árabil. Alveg vantaði t.d. samfellda menntastefnu sem tæki til alls skólakerfisins. Páll gerði það að tillögu sinni að skipulagi Há- skólans yrði breytt f þá veru að fyrstu 2—3 árin í Háskólanum yrði almennt nám en síðan tæki við sérhæft nám í 3—4 ár eftir atvikum. Á móti væri hægt að stytta framhaldsskólana um til dæmis 1 ár. Síðastur frummælanda var Sigurgeir Kristjánsson nemandi f Fjölbrautaskólanum i Breið- holti. Sagði hann að að inntöku- próf gætu haft í för með sér aukna sérhæfingu f fram- haldsskólunum og aukna hættu á samkeppni meðal nemenda á þvf skólastigi. Eftir framsögur voru almenn- ar umræður þar sem komu fram mörg og ólík sjónarmið. Þeir sem töluðu úr röðum stúdenta lögðu áherslu á að nemendur væru ekki vandi Háskólans held- ur stjórnunarmál og ekki mætti skerða jafnan rétt manna til náms. Gunnar Þór Jónsson prófessor varaði við því að tala fjálglega um þá staðreynd að fjöldi manna fær enginn störf við sitt hæfi eftir kannski 15 ára nám eins og t.d. f læknisfræði, það væri síst af öllu gamanmál, og vitnaði þá til fjölda lækna sem starfa er- lendis en vonast eftir þvf að fá störf hér. Helgi Valdimarsson prófessonr f læknisfræði gerði það líka að umtalsefni að við svo búið væri háskólinn ófær um að gegna sínu hlutverki skv. 1 gr. háskólalaganna að hafa þekk- ingarsköpun að meginmarkmiði. Hann taldi að þar sem Háskól- inn væri f slfku fjársvelti sem nú, gæti hann ekki sinnt því hlutverki að veita stúdentum vfsindalega kennslu með jafn marga nemendur. Sagði hann að meðan svo væri fengju stúdentar vart betri kennslu en á fram- haldskólastigum. Helgi sagði einnig að ekki hefðu komið fram neinar tillögur frá stúdentum til lausnar vanda Háskólans t.d. f stað inntökuprófa. I þessu máli væri þörf á mikilli samstöðu milli stúdenta og kennara skól- ans sem vakið gæti stjórnvöld af dvalanum. í lok fundarins var borin upp tillaga þess efnis að fundurinn væri alfarið á móti inntðkupróf- um f læknadeild sem ekki væri rétt leið til lausnar fjárhags- vanda Háskólans. Var tillagan samþykkt með 51 atkvæði á móti 3. Einnig var borin upp tillaga þar sem skorað var á alla skóla- menn að standa saman f barátt- unni við rfkisvaldið svo að Há- skólinn gæti áfram risið undir því að vera óskabarn þjóðarinn. Var sú tillaga samþykkt með 51 atkvæði og var enginn henni mótmæltur. Frá fundi Félags læknanema f hátíðarsal Háskólans í fyrrakvöld. Morgunbia&it/Árni S»berg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.