Morgunblaðið - 01.12.1984, Síða 30

Morgunblaðið - 01.12.1984, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 Kvenfélag Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra: Basar haldinn á sunnudag KVENFÉLAG StyrkUrfélags lam- adra og fatlaðra heldur basar í húmueAi félagsina við Háaleitia- braut klukkan 14, sunnudaginn 2. desember. 1 frétt frá kvennadeildinni segir m.a.: „ötullega hefur verið unnið að fjáröflun i þágu fatlaðra á þessu ári, og hefur kvennadeild Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra gefið eina milljón króna til upp- byggingar dvalarheimilis fyrir fötluð börn í Reykjadal. Fé þetta safnaðist á hjólreiða- daginn í vor, sem kvennadeildin hafði veg og vanda af i samvinnu við nemendur i grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu. Einnig hefur kvennadeildin veitt 75 þúsund krónum i námsstyrk til handa Markúsi Einarssyni, sem er við nám í iþróttaþjálfun fyrir fatlaða og jafnhárri upphæð tii skóla fatl- aðra, sem á við mjög erfiða fjár- hagsstöðu að striða. Auk þessa hefur kvennadeild- in reynt að styðja íþróttafélag fatlaðra og íþróttafélagið ösp og veitt fé til kynningar á táknmál- inu Bliss, sem þeir sem eru al- gerlega lamaðir, geta notað til þess að tjá sig.“ Búvörudeíld SÍS: 305 sláturhross seld til Belgíu NÝLEGA fór gripaflutningaskip á vegum búvörudeildar SÍS með 305 sláturhross til Gent í Beigíu. Hrossin voru tekin um borð á Sauðárkróki og í Þorlákshöfn og gekk flutningur- inn út til Belgíu vel að sögn Magnús- ar Friðgeirssonar framkvæmda- stjóra búvörudeildarinnar. { sumar fór annað skip hlaðið sláturhrossum til Belgíu með slát- urhross og gekk sú ferð og fram- kvæmd slátrunar vel að sögn Magnúsar. Sagði hann að fyrir hrossin fengist sem svarar 66% af grundvallarverði kjöts en ef hrossum er slátrað hér heima og kjötið flutt út fengist aðeins um 48% af grundvallarverði. Bændur fá um 8 þúsund krónur fyrir hvert hross. Magnús sagði einnig að út- flutningur sláturhrossa væri eina leiðin til að koma hrossakjöti á markað í Evrópubandalaginu vegna þess að hér væru engin stór- gripasláturhús sem viðurkenningu hefðu til að slátra fyrir þann markað. Kaupandi hrossanna er belgískt fyrirtæki sem að sögn Magnúsar kaupir og slátrar þúsundum hrossa á viku hverri sem það kaupir um allan heim. Markaður- inn fyrir hrossakjöt er lélegur um háveturinn en Magnus sagði að í lok mars væri stefnt að því að hefja aftur útflutning slátur- hrossa og væri það til athugunar að sameina þá útflutning á slátur- hrossum og reiðhestum á markað í Evrópu. Símaþjónusta til út- landa hækkar um 17—35% Heimilislæknar hefja inn- FRÁ OG með 1. desember nk. hækka gjöld fyrir símaþjónustu til útlanda um 17—35% í hinum ýmsu gjaldflokkum talsíma, telex og sím- skeyta. f frétt frá Póst- og sfmamálastofn- uninni segir, að hækkun þessi stafi af hækkun á gengi gullfranka frá 1. júní 1983, en þá hafi gjöldum síðast verið breytt í samræmi við gengið. Sem dæmi um hin nýju gjöld má nefna að hver mínúta í sjálf- virku vali á talsima mun kosta kr. 31,00 til Hollands og Norðurland- anna, nema Finnlands kr. 35,00, til Bretlands kr. 40,00 og kr. 78,00 til Bandaríkjanna og Kanada. Geta má þess að i dag geta sim- notendur hringt sjálfvirkt til alls 122 landa. f telexþjónustunni mun hver minúta til Danmerkur kosta kr. 16,50, til Englands, Noregs og V-Þýskalands kr. 17,50 og til Bandaríkjanna kr. 80,00. Fastagjald fyrir hvert simskeyti mun kosta kr. 174,00, hvert orð til Evrópulanda kr. 8,50 og til Banda- ríkjanna kr. 9,50. Söluskattur 7,5% er innifalinn i uppgefnum gjöldum. heimtu á gjaldi fyrir símaviðtöl R-rtrá f Qi(ftrtlli — standa í viðræðum um gjaldskrá sína B.1 d 1 Ölg l Ulll KJARARAÐ heimilislækna hefúr beint þeim tilmælum til heimilis- læluu að frá og með deginum í dag, 1. desember, hefji þeir innheimtu hjá fólki sem kemur á stofu til þeirra á greiðslum vegna símavið- tala sem fólkið hefur átt við lækn- inn. Hér er um að ræða 40 kr. gjald sem læltnarnir hafa haft heimild til að innheimta en af tæknilegum ástæðum ekki innheimt fyrr nema símaviðtalið hafi leitt til útgáfu lyf- seðils og befur gjaldið þá verið inn- heimt í apótekunum og skilað þaðan til viðkomandi lækna. Gjaldið verð- ur innheimt fyrír viðtöl aftur í tím- ann eftir þvf sem við verður komið. Ofangreint kom fram í samtali blm. viö Gunnar Inga Gunnars- son, formann kjararáðs heimilis- lækna. Hann sagöi að kjararáðið hefði farið fram á það að Trygg- ingastofnunin greiddi þessi við- talsgjöld en því hefði verið hafnað. Þeim hefði i staðinn verið bent á að innheimta þau með giróseðlum. Læknarnir hefðu hafnað þvi fyrir- komulagi og tækju nú að inn- heimta ógreidd viðtalsgjöld þegar fólkið kæmi i viðtöl á stofu. Sagði hann að hið almenna stofugjald yrði óbreytt eftir sem áður, en það Frímerkja- sýning hjá Pósti og síma Á MORGUN, sunnudaginn 2. des- ember, verða sýnd íslensk frímerki í húsakynnum Pósts og sima við Aust- urvöll (áður Sigtún) frá kl. 13.30 til 18.00. Sýningin er haldin í tilefni af degi frimerkisins, 6. desember nk. segir i frétt frá Pósti og síma. Dyngjan Þátturinn Dyngjan, sem reglu- lega hefur birst í Morgunblaðinu á laugardögum, birtist i blaðinu á morgun vegna þrengsla í blaðinu í dag. er 75 kr. Gunnar sagði einnig að reynt yrði að innheimta gjaldið eins og hægt væri aftur í tímann, aö minnsta kosti aftur til 1. júní. Gunnar Ingi Gunnarsson sagði að kjararáðið hefði staðið í við- ræðum út af sínum gjaldskrár- málum frá því i vor en samningar um hana hefðu verið lausir frá 1. mars, en samningaviðræður hefðu gengið illa. Gunnar Ingi sagði að þeir stæðu meðal annars í viðræð- um við fulltrúa ríkisins í samning- anefnd Tryggingastofnunarinnar. Það hefði því komið þeim nokkuð á óvart þegar Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, hefði gefið um það yfir- lýsingu á Alþingi að sjúkingar yrðu ekki látnir greiða meira fyrir læknisþjónustu á næsta ári en nú er. Sagði hann að þetta benti til að Tryggingastofnun og sjúkrasam- lögum væri ætlað að greiða þá óhjákvæmilegu hækkun sem yrði á gjaldskrá heimilislækna til sam- ræmis við þjónustu annarra sér- fræðinga og væri ekki nema gott eitt um það að segja, ef sú yrði niðurstaðan. SIGMAR Pétursson veitingamaður í Sigtúni hyggst á næstunni opna bjórkrá í húsnæði, sem áður var eldhús og geymslur Sigtúns. Verður þarna um að ræða sal fyrir um 150 manns. „Ég er nú ekki steindauður, þó ég sé farinn að minnka við mig,“ sagði Sigmar Pétursson í samtali við blm. Morgunblaðsins á dögun- um. Sigmar sagðist hafa selt stóra salinn, en haldið eftir þessu hús- næði og efri hæð Sigtúns, þar sem nú er rekinn veitingastaður fyrir aldurshópinn 25 ára og eldri. Sigmar sagði að rekstur þessara tveggja veitingastaða yrði alveg aðskilinn, enda um mjög ólíka starfsemi að ræða. Á bjórkránni verður boðið upp á bjórlíki og allar almennar veit- ingar. Sigmar sagði að aðal- áhersla yrði lögð á að hafa ódýra smárétti á matseðlinum. Ekki hefur enn verið ákveðið með opnunartíma, en stefnt er að því að opna staðinn um miðjan desember. Útsýnarkvöld tileinkað Frí-klúbbnum Ferðaskrifstofan Útsýn efnir til Útsýnarkvölds í veitingahúsinu Broadway sunnudagskvöldið 2. desember. Kvöldið er tileinkað Frí-klúbbnum í tilefni af vel beppnuðu starfi klúbbsins sl. sumar, eins og segir í fréttatil- kynningu frá Útsýn. Kynnt verður vetraráætlun Útsýnar. Vetrarstarf Frí- klúbbsins verður kynnt, stefna klúbbsins og markmið. Frum- sýnd verður kvikmyndin „Frí- klúbbsfólk á sólarströndum ’84“. Ingólfur Guðbrandsson forstjóri kynnir. Fararstjórar Frí- klúbbsins mæta til leiðbeiningar og skemmtunar. Heiðursgestur verður Antonio Renosto, for- stjóri Eurosun — Lignano. í fréttatilkynningu Útsýnar segir m.a.: „Frí-klúbburinn er í dag einn stærsti klúbbur lands- ins og hafa yfir 6.000 manns ver- ið skráðir sem gildir félagar frá stofnun þann 20. janúar sl. Markmiðum og stefnu Frí- klúbbsins hefur verið tekið opnum örmum af öllum almenn- ingi, fólki sem kýs aukna lifs- orku, lífsgleði og hamingju í til- verunni. Frí-klúbbskjör, kjara- bót fyrir félaga Frí-klúbbsins hjá fyrirtækjum og verslunum og í Útsýnarferðum hefur þegar á liðnu sumri náð gífurlegum vinsældum og ánægju félags- manna. Starf Frí-klúbbsins hér heima og erlendis grundvallast á hollustu og hreyfingu ásamt lík- ams- og heilsurækt, iðkun íþrótta og útilífs ásamt heil- brigðu lífi við aukin lífsþægindi. Námskeið, fræðslukvöld og hin- ar ýmsu skemmtanir Frí- klúbbsins hafa náð hylli fólks og starfsmenn Frí-klúbbsins er- lendis á liðnu sumri unnu við fræðslu- og leiðbeiningarstörf eftir markmiðum Frí-klúbbsins auk skemmtanastjórnunar við fádæma vinsældir sinna félaga í sólarferðum sumarsins." Úr Frí-klúbbsferð til Spánar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.