Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 39

Morgunblaðið - 01.12.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 39 Minning: Vigfús Guð- mundsson frá Seli Fæddur 12. mars 1901 Dáinn 19. nóvember 1984 í dag kveðjum við Vigfús Guð- mundsson hinstu kveðju. Á slíkri stundu lítum við yfir farinn veg og afabarnið rifjar upp minningar frá liðnum tíma. Fyrst kynntumst við afa í Seli. Það var afinn sem barnið leit upp til og hafði hæstan í virðingar- sessi. Heima í Seli var ævintýra- heimur æskunnar raunverulegur. Allt var þar best og stærst og af- inn meistari sem gat allt og gerði flest. Smíða úr járni og tré, sníða úr leðri og sauma á vél. Já, allt sem vakti eftirvæntingu og gleði sameinaðist í störfum afa og ömmu. Næsti kafli í afasögu er afi í Reykjavík. Þar var sami hæfi- leikamaðurinn búinn að bæta við sig nýju hlutverki sem fórst hon- um jafnvel úr hendi. Húsmunir úr Seli orðnir stofustáss í Reykjavík og þótt maður væri viss um að hlutirnir kæmu aldrei til með að passa inn í annað en baðstofuna i Seli tókst afa að afsanna þá kenn- ingu jafnskjótt og hann skipti um heimili. Barnið óx og sá afa sinn í nýju ljósi. Maður með manngæsku að leiðarljósi. Sannast það best á þeirri umhyggju sem hann sýndi ömmu allt hennar líf. Daglegar heimsóknir að sjúkrabeði i ára- raðir þar sem hver heimsókn varð þeirri síðustu erfiðari því sjaldn- ast var amma á batavegi. Afi fékk ósk sína uppfyllta um að deyja áð- ur en sjúkrahús yrði hans eina heimili og þessa úrlausn átti hann fyllilega skilið því ef einhver hafði tekið þátt i og verið með í barátt- unni við elli og sjúkdóma var það hann. Afi upplifði dauðastrið með ömmu. Hennar lega og þrautir voru þeirra beggja. Myndir frá liðinni tið skýrast. Mynd af strák sem settur er á hestbak til að hafa með i lamba- leit að vori. Mynd af afa og Mugg saman á ferð. Gleðin yfir góðum hesti og sú ölvun sem afi fylltist þegar riðið var í hlað í Seli eftir vel heppnað manna- og hestamót. Ölvun sumpart vegna vasapel- ans en mest yfir gleðinni við að ríða fjörmiklum hesti í hlað á góð- um sumardegi eftir mannfagnað og vinafund. Afi unni því sem hann þekkti og eitt af því var náttúra landsins. A seinni árum var hann ólatur að fræða sér yngri menn um örnefni á slóðum þar sem hann á hesti hafði smalað fé til rétta. Við nú- tímafólk notum og umbreytum sömu náttúru til að geta notið þeirra lífsþæginda sem sjálfsögð eru í dag. Minning mín um afa er góð. Minningin um hann tengd traust- um og heilsteyptum manni sem vert er að reyna að líkjast. A.G. Þann 19. nóvember síðastliðinn lést Vigfús Guðmundsson frá Seli, Ásahreppi til heimilis að Hátúni 10A í Reykjavík. Vigfús fæddist 12. mars 1901 á heimili foreldra sinna í Bala, Þykkvabæ. Foreldrar hans voru Sesselja Vigfúsdóttir og Guð- mundur Jóhannesson. Þau bjuggu þar fyrstu 4 búskaparár sín, en fluttu þá að Seli til foreldra Guð- mundar. Sesselja og Guðmundur bjuggu síðan allan sinn búskap í Seli og eignuðust þau 14 börn, 6 drengi og 8 stúlkur. Var Vigfús næstelstur í þessum stóra systk- inahóp og lifa hann 1 bróðir og 6 systur. Á þessu fjölmenna heimili ólst Vigfús upp við þau sveitastörf sem þá tíðkuðust. Fljótlega upp úr fermingu þurfti hann að fara að vinna úti frá heimili sínu. Hann fór til sjós og réri frá ýmsum verstöðvum. Meðal annars réri hann frá Vestmannaeyjum 15 vertíðir, þar af 11 hjá sama skip- stjóra. Á sumrin og milli vertíða vann Vigfús á búi foreldra sinna, og á ýmsum bæjum enda held ég að búskapurinn hafi alltaf verið honum hugleiknari en sjórinn. Þann 21. mars 1931 kvæntist Vigfús Margréti Friðriksdóttur frá Hávarðarkoti, Þykkvabæ. Það sama ár tóku þau við búsforráðum úr höndum foreldra Vigfúsar, sem dvöldu hjá þeim til dauðadags, en Guðmundur dó 1947 og Sesselja 1952. Var Vigfús 4. ættliður sem hóf búskap í Seli. Vigfús og Mar- grét eignuðust tvo syni, Guðmund Friðrik, f. 28. júní 1932, kvæntur Klöru Ándrésdóttur, búa þau nú I Seli, þau eiga 4 syni, og Egil Guð- mar leigubifreiðastjóra í Reykja- vík, f. 18. ágúst 1936, hann er kvæntur Sigríði Skúladóttur og eiga þau 3 börn. Jafnframt búskapnum stundaði Vigfús sjómennsku nokkur ár og lagði stund á smiðanám sem nýtt- ist honum vel við búskapinn. Hann var laginn til allra verka og var eftirsóttur af sveitungum sín- um til þeirrar vinnu sem vanda þurfti til, t.d. smíðaði hann skeif- ur og margt annað sem til féll. Vigfús var mikill hestamaður og naut hann ríkulega samvista sinna við bæði menn og hesta, og varð aldrei þreyttur á að ræða skemmtileg atvik og ferðir sem hann fór á gæðingum sínum. Hann fór á fjall í mörg ár og var hann mjög kunnugur örnefnum og staðháttum á þeim slóðum enda oft til hans leitað því hann var stálminnugur og upplýsingagóður. En upp úr 1960 urðu þáttaskil I lífi þeirra Vigfúsar og Margrétar því hún veiktist og varð árið 1967 að fara í sjúkrahús en þaðan átti hún ekki afturkvæmt og lést þar hinn 19. mars 1980. Þær urðu því ekki fleiri stundirnar hjá þeim eða ánægjan að vinna og vera með þeim í Seli, þar sem þau undu sér best. Eftir að Margrét leggst með ólæknandi sjúkdóm I sjúkrahús, flytur Vigfús til Reykjavíkur. Fyrst leigði hann íbúð með Guð- mundi bróður sínum og held ég að nágrenni þeirra hafi létt honum vistaskiptin en um þau varð aldrei spurning eftir að Margrét fór í sjúkrahús. Fljótlega fór hann að vinna sem vaktmaður hjá Eimskip Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. og má segja að þar hafi hann hafið sitt þriðja lífsstarf. Var umönnun hans við konu sína slík að betur væri ekki hægt að gera. Margrét og Vigfús fluttu í hús öryrkja- bandalagsins við Hátún er það var tekið í notkun. Var það þeim mik- ill léttir því þó þau væru hvort í sínu húsinu nutu þau betur sam- vista hvort við annað. Er hér með öllu starfsfólki Öryrkjabandalags- ins og þeim sem með Vigfúsi voru í Hátúni þökkuð af alhug sú um- hyggja sem hann hlaut og ég veit að hann mat mikils. Eru sérstakar þakkir færðar Sigurbirni Jakobssyni sem var nábúi hans í áraraðir. Eins eign- aðist hann marga góða vini í fé- lagsstörfum aldraðra, sérstaklega á spilasamkomum og ferðalögum. En mér eru þær stundir sem við sátum saman að spilum ógleym- anlegar ánægjustundir. Nú þegar við kveðjum Vigfús sjáum við á bak góðum manni og ekki síst þeir sem nutu hans sem föður, tengdaföður, afa, langafa og fjölskylduvinar. Öllum þessum hlutverkum skilaði hann á þann hátt að skarð hans verður vand- fyllt. Eins veit ég að systkini hans sjá á bak elskuðum bróður því milii hans og allra systkina hans var mikill kærleikur. Ég vil svo að lokum þakka ára- tuga vináttu og órofa tryggð við heimili mitt um leið og ég sendi sonum hans og fjölskyldum þeirra, systkinum hans og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Vigfúsar Guðmundssonar. Grétar Andrésson Þegar slík þáttaskil verða í lífi mínu að komið er að því að kveðja ástkæran tengdaföður minn, Vig- fús Guðmundsson frá Seli, eftir rúmlega þrjátíu ára kynni, þá fer ekki hjá því að minningarnar hrannist upp. Ég minnist þess fyrst þegar við unnurn saman við búskapinn I Seli. Oft vorum við bara tvö við útiverkin með litlu strákana með okkur, þegar maðurinn minn vann utan heimilis langtímum saman. Það var erfitt tímabil þegar tengdamóðir mín, Margrét Frið- riksdottir, missti heilsuna upp úr 1960. Fyrst var hún heima en varð síðan að fara á sjúkrahús 1967. Þá urðum við Fúsi svo sannarlega að vinna saman. Síðan tók Fúsi þá erfiðu ákvörðun að flytjast til Reykjavíkur til þess að geta verið henni nær, heimsótt hana og stytt henni stundir, en hún lést 1980. En Fúsi gleymdi okkur ekki, því austur kom hann eins oft og hann gat. Hér var hugur hans löngum og öllu fylgdist hann vel með, bæði velferð okkar og búskapnum og að ég ta.ll nú ekki um hestunum, því að af þeim hafði hann mikið yndi. Núna allra síðustu árin gat hann lítið gengið um úti, því fæturnir voru alveg búnir. Þá var reynt að fara á bíl út um tún og haga eða tíminn notaður til að taka i spil og spjalla saman. Var þá rifjað upp frá gamalli tíð en Fúsi var stál- minnugur og sagði vel frá. Ég sá Fúsa fyrst fyrir rúmum þrjátíu árum og nú síðast fyrir ör- fáum dögum. Hann var alltaf sami trausti rólegi maðurinn, heiðar- legur bæði í orði og verki. Við gát- um alltaf gengið að honum vísum, hann var alltaf eins. Að fá að ala börn sín upp í návist slíks heið- ursmanns tel ég vera forréttindi og ekki hægt að meta til fjár. Það var alltaf hátíð í bæ þegar afi kom austur og ég veit það vel að synir mínir búa að þvi alla ævi að hafa alist upp með honum, því mikill kærleikur var á milli þeirra allra. Þegar slíkur afi er horfinn verður stórt skarð sem ekki verður auðveldlega fyllt. Með hjartans þökk fyrir sam- fylgdina. Klara Andrésdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.