Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
51
„Fullfrískt fólk í fiskrínnu hefur ekki einu sinni 65 krónur á tímann,“ segir
bréfritari, sem finnst aö nú etti að standa við fyrirbeitin um að hekka laun
þeirra lægst launuðu.
Forðumst
troðnar
slóðir
3320-9398 skrifar:
Kæri Velvakandi!
Mig langar til að senda þér
nokkrar línur í tilefni af þessu
ömurlega verkfalli hjá fólkinu í
landinu (eins og hann orðar það
blessaður fjármálaráðherrann
okkar svo fagurlega). Það er eitt
sem vefst fyri mér og varnar því
að veita mér gleði, sem vissulega
ætti að vera fyrir hendi, til þess að
samgleðjast þessu dugmikla fólki,
sem að þessu verkfalli stóð svo
dyggilega, hvað þrek og þor snerti.
Sjálf er ég Sóknarkona, með mín
lágu laun eins og þetta láglauna-
baráttufólk, sem i baráttunni hef-
ur staðið að undanförnu, fyrir
bættum kjörum sín og annarra.
En hvað skeður, hvað er eiginlega
að ske með íslenska launþega?
Hvernig í ósköpunum getum við
verið svona einhuga að ganga um
með bundið fyrir bæði augu og
neita gjörsamlega að hugsa? Við
með alla okkar gagnmenntuðu
þegna, því þar stöndum við þó
jöfnum fótum við þá sem eiga
fleiri krónur. Menntafólkið er ekki
síður í okkar röðum sem (ég má til
með að nota þetta orðatiltæki sem
hefur klingt í eyrum okkar undan-
farið) minna má sín, eða einfald-
lega láglaunafólk. Eða litli maður-
inn, sem loksins eignaðist vin í
ríkisstjórninni, hver er þessi litli
maður? Hver er lítill og hver er
stór?
Það sem ég vildi segja: Getur
þessi vel upplýsta þjóð ekki fundið
upp raunverulega leið til bættra
kjara? Hvers vegna er stöðugt
hjakkað i sama farinu, stöðug ein-
blínt á sömu vonlausu leiðina til
úrbóta? Það koma fáeinar krónur
í launaumslagið um næstu mán-
aðamót, en það eru miklu fleiri
krónur teknar til baka. Við höfum
staðið frammi fyrir þessu öllu áð-
ur, verðbólga, hækkun vöruverðs,
launalækkun. Það er grátlegt að
hugsa til þess ef það er þetta sem
við uppskerum að lokinni harðvít-
ugri baráttu og þetta þýðir ein-
faldlega „ver farið en heima set-
ið“. Það hlýtur að finnast heilla-
vænlegri leið ef að er gáð og fyrir-
liðar launþegasamtaka fást til að
hugsa rökrétt og láta troðnar slóð-
ir eiga sig.
Ein uppáhaldssetningin hjá for-
ystu stéttarfélaga og stjórnarlið-
inu er: Endilega að hækka laun
þeirra lægst launuðu, en minna
hjá þeim sem hæstu launin hafa.
En hvað gerist? Það kom ekkert
annað til greina en prósentuhækk-
un á allan launastigann. Ég held
að þetta hljóti að teljast vinnu-
brögð sem þarfnast athugunar.
Hvað gerist í heilabúinu á verka-
lýðsforystunni þegar fullfrískt
fólk í fiskvinnu hefur ekki einu
sinni náð 65 kr. á tímann i dag-
vinnu? Þetta fólk hlýtur að vinna
tvöfalda vinnu, en verkalýðsfor-
ystunni virðist sjást yfir það. Síð-
an er til málamynda talað um að
stytta vinnudag þessa fólks og gef-
in út skipun um að nú skuli ekki
unnið á laugardögum. Ætli þeim
þætti ekki lítið til launanna koma
þeim sem eru ekki í röðum „litla
mannsins" i þjóðfélaginu, eins og
þeim þykir sæma að kalla þetta
dugmikla fólk?
Að lokum langar mig til að
koma á framfæri einni fyrirspurn
og hirði þeir spurninguna sem
eiga. Eru smjörlíkisgerðirnar
virkilega svo illa staddar fjár-
hagslega, að þær þurfi að hækka
vöru sína samstiga hækkun land-
búnaðarvara? Varla þurfa fram-
leiðendur smjörlikis að bera dýran
áburð á túnin sin, eða hvað? Þeir
eru venjulega fyrstir til að hækka
sina vöru og hækka oftar en aðrir.
Fyrir stuttu hækkaði kílóið af
brauð- og jurtasmjörlíki um leið
og mjólkur- og kjötvörur hækkuðu
og kostar hvert kíló nú 68—69
krónur i stað 55 króna áður! Það
mun trúlega vera von á kveðju frá
smjörlíkisframleiðendum fljótlega
eftir launahækkun. Hvað veldur
þessari hækkun? Ekki voru laun-
þegar þarna að verki, þetta virðist
vera forskot á sæluna.
Nordurljós og vetrarkvíði
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif-
ar:
Ég var að lesa Gárur Elínar
Pálmadóttur í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins þann 18.11. Þar
skrifar hún meðal annars um
norðurljós og vetrarkvíða.
Satt er það, að bæjarbúar fara
mikils á mis, að sjá ekki norður-
ljós nema sem fátíðan viðburð og
þá svo takmarkað að varla er tekið
eftir vegna ljósaflóðs borgar-
ljósanna. Öðru máli gegnir á Vest-
fjörðum og Austfjörðum, en þar
hef ég séð þau í allri sinni dýrð og
fjölda litbrigða, þar á meðal rauð
og furðuleg fyrir vestan og sem
slæðu um mestan hluta himin-
hvolfsins sem gekk í bylgjum yfir
og með miklum hraða á Austfjörð-
um. Ég gat þeirra síðarnefndu í
veðurlýsingu til veðurstofunnar á
sínum tíma, einnig glitský, sem
eru mjög merkileg, en af allt ann-
arri gerð en norðurljós.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þá
miklu unun sem norðurljós veita
ef tekið er eftir þeim og þar sem
þau njóta sfn á dimmum og kyrr-
um vetrarkvöldum og -nóttum allt
til dögunar.
Það er annað sem ég vildi líka
minnast á og Elín skrifar um, en
það er vetrarkvíði. Annaðhvort
skil ég ekki rétt lýsingu hennar á
vetrarkvíða, ellegar hún hefur
ekki rétta lýsingu á honum.
Vetrarkvíði er tvenns konar það
ég veit, en Elín hefur fyrir sér um-
sögn Páls Bergþórssonar og lýsir
sem ískristöllum. Þannig vetr-
arkvíða hef ég aldrei heyrt getið
um og er þá enn eitt fyrirbæri á
vetrarkvíða sem ég hef aldrei séð
eða tekið eftir. Vetrarkvíði var al-
gengur í engjunum hjá okkur fyrir
vestan og er viss grastegund sem
skríður með grasrót og getur orðið
allt um og yfir metri að lengd. Ég
er ekki frá því að hann geti verið
nokkur mælikvarði á hörku vetr-
arins.
önnur tegund af vetrarkvíða er
af völdum einhverrar köngulóar-
tegundar sem spinnur vef sinn oft
um stór svæði á túnum og annars
staðar, en aldrei hef ég getað stað-
ið hana að verki. Það einkenni-
legasta við þetta er það, að þessi
vefur getur náð í meira en hálfan
metra á sléttri grund, frá jörðu, þó
í litlum mæli sé. Hvernig sem það
getur nú skeð. Helzt er ég ég því,
að vefurinn sé svo léttur að hann
svífi hreinlega upp í loftið. Þessi
vetrarkvíði lýsir sér sem slæða á
jörðinni, eins og Elín Pálmadóttir
lýsir í Gárum sínum.
Hér læt ég staðar numið, en
gaman væri að fá fleiri til um-
sagna.
/**. er
Opið til kl. 4
og á sunnudag.
BIS6A6NAB0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK * 91-01199 Ofl 81410
X 8ESTA \
ELDHÚSHJÁLPIN
KENWOOD
« „GOURMET"
k NÝJA UNDRATÆKIÐ
K
K Hrærir deig, sker niður grænmeti, hakkar
kjöt, saxar grænmeti, þeytir rjóma og
ótal m.fl.
Mjög auðvelt og fljótlegt er að hreinsa tækið
eftir notkun.
„GOURMET" undratækið er knúið af jafn-
öruggum mótor eins og notaður er í stóra
bróðurnum „Kenwood Chef" og hefur hann
þrjár hraðastillingar. Mótorinn er þeim eigin-
leikum búinn að hann slær út ef tækið er
yfirfyllt.
K
K
K Komid og kynnist nýja undratækinu
|£ frá Kenwood.
IC HEIMILIS- 0G RAFTÆKJADEILD
XXXXS6XXXXXXXX66 66 66X66 XXXX