Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 56
SDIM3TIÁNSIRMJST
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI. SlMI 11633
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
TVÆR BÆKUR FRÁ GUÚFRÁSTEINI
HJÓNIN á Gljúfrasteini sendu í gær baeði frá sér nýjar bækur. Nýtt ritgerðasafn „Og árin líða“ er að koma út
hjá Helgafelli eftir Halldór Laxness, en þar eru „Kaþólsk viðhorr* endurútgefin m.a. Þá kemur út samtalsbók
Auðar Sveinsdóttur og Eddu Andrésdóttur, en þar er fjallað um lífsferil Auðar og birt eru dagbókarbrot og
sendibréf. Á myndinni eru Auður og Halldór Laxness með þremur barnabörnum sínum, frá vinstri eru Auður
yngrí, Rannveig og KUengur. Sjá blaðsíðu 28
Útver hf. á Bakkafirði stefnir ríkisvaldinu:
Islenzka sveitin tefldi við Rússa:
Flestra augu beind
ust að „háborðinu“
ÍSLENSKA skáksveitin á Ólympíu-
leikunum í Þessaloníku í Grikklandi
tefldi í gær við ólympíumeistara Sov-
étmanna og lauk þremur skákum
með jafntefli, en viðureign Helga
Ólafssonar og Belyavsky fór f bið og
hefur Helgi lakari stöðu, líklega tap-
aða biðskák. Hinum þremur skák-
unum lyktaði með jafntefli. Margeir
Pétursson gerði jafntefli við Vladi-
mir Tukmakov eftir spennandi við-
ureign, Arthur Jusupov og Jóhann
Hjartarson gerðu jafntefli svo og
Jón L. Árnason og Andrei Sokolov.
Staðan er því jöfn, V/2-V/1.
Viðureign þjóðanna vakti mikla
athygli áhorfenda og flestra augu
beindust að „háborðinu" þar sem
Rússar og íslendingar tefldu.
Tvær skákanna voru sýndar á sýn-
ingartöflu. Það vakti athygli af
hve mikilli hörku íslensku skák-
mennirnir tefldu — greinilegt að
þeir voru staðráðnir í að gefa sinn
hlut hvergi.
„Hinir hæfileikamiklu íslensku
skákmenn tefldu mjög vel, en
meðalaldur íslensku sveitarinnar
er innan við 25 ár,“ sagði í frétta-
skeytum AP frá mótinu, en líklega
tapar íslenska sveitin með
minnsta mun fyrir sovéska birnin-
um. Af öðrum úrslitum má nefna
að bandaríska sveitin sigraði þá
sænsku. Sovétmenn eru i efsta
sæti með 30'/2 vinning og biðskák,
Bandaríkin 28% og ísland er i
4.-5. sæti með 26 vinninga og
biðskák.
Larsen teflir á
afmælismótinu
DANSKI stórmeistarinn Bent Lar-
sen hefur þekkst boð Skáksam-
bands íslands um að tefla á afmæl-
ismóti sambandsins í febrúar næst-
komandi. Hann er þriðji stórmeist-
arinn sem þiggur boð Skáksam-
bandsins um að tefla á afmælismót-
inu. Áður höfðu Vlastimir Hort og
Boris Spassky þekkst boð um að
tefla í mótinu.
Morgunblaöiö/Júlfu8.
SALA JÓLATRJÁA UNDIRBÚIN
Næsta föstudag hefst sala jólatrjáa hjá Landgræðshisjóði. Starfsmenn sjóðsins eru þessa dagana að undirbúa
söluna. Er mikill fjöldi jólatrjáa, bæði innlendra og innfluttra, kominn á athafnasvæði Landgræðslusjóðs í
Fossvogi. Þessi mynd var tekin þar í gærmorgun af þeim Guðmundi Erni Arnasyni og Hauki Hafstað þar
sem þeir unnu við að mæla hæð danskra jólatrjáa sem komu til landsins í vikunni.
Samþykkt framkvæmdanefndar Efnahagsbandalagsins:
Tollun á salt-
fiski og skreið
FRAMKVÆMDANEFND Efnahagsbandalagsins hefur nú samþykkt að
lagður verði 13% tollur á saltfisk og skreið og 20% á söltuð þorskflök, sem
flutt eru inn til aðildarlanda þess. Til þessa hefur verið í gildi undanþága frá
tolli þessum. Ráðherranefnd bandalagsins fjallar að öllum líkindum um mál
þetta í upphafi næsta árs og að sögn Þórhalls Ásgeirssonar, ráðuneytisstjóra
viðskiptaráðuneytisins, verður reynt að hafa þau áhrif, að tollurinn verði ekki
lagðurá.
Þórhallur Ásgeirsson sagði
ennfremur, að mál þetta hefði
komið upp í byrjun nóvember. Það
væri að nafni til tollur á þessum
vörum frá árinu 1971, en hann
hefði verið felldur niður til þessa.
Efnahagsbandalagið hefði fullan
rétt á þessari ákvörðun, en skoðun
íslendinga væri sú, að með þessum
tolli væri verið að innieiða ný höft
og hömlur á viðskipti, sem brjóti í
bága við yfiriýsingar bandalagsins
um frjáls alþjóðleg viðskipti.
Yrði þessi tollur lagður á hefði
það að sjálfsögðu alvarleg áhrif á
þessi viðskipti, sem væru nokkuð
stór hluti utanríkisviðskiptanna.
Nú flytjum íslendingar þessar
vörur út til Ítalíu, Grikklands og
Frakklands, sem eru í bandalag-
inu. Á síðasta ári var verðmæti
þessa útflutnings til landanna
þriggja auk Spánar og Portúgals
um 87,4 milljónir dollara, 3,5
milljarðar króna. Spánn og Port-
úgal eru enn ekki meðlimir i Efna-
hagsbandalaginu, en hafa sótt um
inngöngu. Til þeirra landa voru
samtals fluttar 33.100 lestir af
saltfiski i fyrra og til landa
bandalagsins voru fluttar út
13.200 lestir skreiðar og saltfisks.
Krefst 345.000 króna bóta
vegna upptöku gengismunar
HöFÐAÐ HEFUR verið mál á hendur sjávarútvegsráóherra og fjármáiaráö-
berra vegna upptöku gengismunar frá árinu 1983. Þaó er Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögfræðingur, sem höfðar málið fyrir hönd Útvers hf. á Bakkafirði
og nemur fjárkrafa á hendur ráðherrunum fyrir bönd ráðuneyta þeirra
345.666 krónum.
Stefnan er tilkomin vegna upp-
töku gengismunar á fiskbirgðum,
sem voru í eigu stefnanda, Útvers,
fyrir gengislækkun um 10% 27.
mai 1983, en fluttar út eða greidd-
ar eftir þann tíma. Upptaka þessi
var gerð með bráðbirgðalögum nr.
55/1983 um ráðstafanir i sjávar-
útvegsmálum. Þar kveður meðal
annars svo á um að 10% gengis-
munur útfluttra sjávarafurða
skuli ganga inn á sérstakan reikn-
ing rikissjóðs i Seðlabankanum.
Fé, sem á reikninginn komi, skuli
ráðstafað af rikisstjórninni i þágu
sjávarútvegsins og sjóða hans.
Er stefnan byggð á því að skatt-
lagning þessi á útflytjendur sjáv-
arafurða brjóti gegn ákvæðum
stjórnarskrárinnar og tilgreindar
eftirfarandi ástæður:
Með þessu lagaákvæði framselji
löggjafinn skattlagningarvald sitt
til stjórnvalda („ríkisstjórnarinn-
ar“) umfram það sem 40. gr. sbr.
77. gr. stjórnarskrárinnar heimili.
Með lagaákvæðinu sé brotið
gegn fyrirmælum 41. gr. stjórn-
arskrárinnar um að heimild þurfi
á fjárlögum eða fjáraukalögum til
að ríkið megi greiða gjald af
hendi. Skattur þessi komi alls ekki
inn á fjárlög né aukafjárlög.
I lög skorti nær alveg ákvæði
um hvernig verja eigi skattinum.
Ekki fái staðist að skattleggja
megi borgarana og fá stjórnvöld-
um féð til frjálsrar ráðstðfunar
með þeim hætti, sem hér sé gert.
Felist þetta almennt í 40., 41. og
77. gr. stjórnarskrár.
Með skatti þessum sé mjög
freklega brotið gegn þeirri jafn-
réttisreglu, sem talin er felast (67.
gr. stjórnarskrárinnar.
Tveir sovéskir stórmeistarar
tefla á mótinu og binda forráða-
menn Skáksambandsins vonir við
að annar þeirra verið heimsmeist-
arinn Anatoly Karpov. Sex ís-
lenzkir skákmenn tefla á mótinu,
Helgi ölafsson, Margeir Péturs-
son, Jóhann Hjartarson. Jón L.
Árnason, Guðmundur > Sigurjóns-
son og Karl Þorsteins.
Frá og með 1. desember kostar
áskrift Morgunblaðsins kr. 330 á
mánuði. Lausasöluverð er
óbreytt, kr. 25. Grunnverð aug-
lýsinga verður frá og með sama
tíma kr. 198 pr. dálksentimetra.