Morgunblaðið - 08.01.1985, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 8. JANÚAR 1985
37
Jónína Benediktsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Einari Matthíassyni, og dóttur, Jóhönnu Klöru.
veg stórkostlegt og ég held að
þetta sé ekki nein tískubóla. Fólk
er farið að sjá svo mikinn mun
þegar það hreyfir sig lítið þá fer
því að líða illa, svo eftir smá tíma
byrjar það þá upp á nýtt. Það er
viss gerð af fólki sem erfiðast er
að draga í leikfimi og það er hlé-
drægt fólk sem þorir ekki og fólk,
sem finnst það vera of feitt, en
auðvitað er þetta fólkið sem helst
þyrfti að vera á staðnum.
— Hvernig er að vera orðin
mamma?
— Það er alveg frábært. Þetta
er eins og að eignast hamingjuna í
stað þess að horfa á hana. Að vísu
eru þetta ofsaleg viðbrigði og það
er ekki létt að hlaupa í burtu þeg-
ar mann langar, en svo þarf ekki
nema eitt lítið bros, þá gleymir
maður öllu.
— Ætlar þú að halda áfram í
morgunútvarpinu ?
— Já, veistu, ég tími ekki að
hætta. Mér finnst ég vera að ná
svo vel til fólks núna og þá er ekki
hægt að hlaupa í burtu. Ég fæ
jafnvel hundruð af bréfum viku-
lega, þar sem fólk biður um ráð-
leggingar og bæklinga og það sýn-
ir að fólk hefur áhuga. Það kemur
fyrir að maðurinn minn heyrir
kannski einhversstaðar á morgn-
ana, „Æi, byrjar hún ekki með
þessa leikfimi. Fyrir alla muni
slökkvið á útvarpinu". En þetta er
hlutur sem maður verður að vera
viðbúinn að heyra og sætta sig við.
Joan Collins og Peter Holm
ætla að gifta sig bráðlega
Joan Collins hefur nú lýst því yfir að bráðlega muni hún giftast vini
sínum Peter Holm. í viðtali sagði hún að þetta hjónaband yrði sitt
síðasta, en það er í fjórða skipti sem hún giftir sig og að þessu sinni er
verðandi eiginmaðurinn fjórtán árum yngri. Þau opinberuðu trúlofun
sína nú um jólin á Englandi, þar sem þau héldu jól ásamt góðum vinum.
Hringurinn sem Peter gaf „stjörnunni" er metinn á tæplega fjórar
milljónir en það vegur upp á móti að skyrtan sem Joan gaf honum var
alsett gull- og demantshnöppum.
COSPER
Skrúfjárn, gaffall og penni segirðu. Hvað skyldi ég þá hafa gert
við tappatogarann?
JIM PUROL
Reykir
141
sígarettu
í einu
Jim Purol reykir ekki
daglega, en þegar
hann tekur sig til púar
hann svo um munar og
telur sig þá heimsins
besta stórreykingam-
ann. Hann treður eins
mörgum sígarettum og
hann getur upp í sig í
einu og reykir. Metið
hans er að hafa 141 stk. í
einu uppi í sér.
Aöalfundur Skýrslutæknifélags íslands veröur hald-
inn í Norræna húsinu fimmtudaginn 24. janúar 1985,
kl. 14:30.
Fundarstjóri veröur Klemens Tryggvason, fyrrv. hag-
stofustjóri. Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar.
2. Féhiröir leggur fram endurskoöaöa reikn-
inga.
3. Stjórnarkjör. Úr stjórn eiga aö ganga
formaður, ritari og meöstjórnandi, ásamt
varamönnum.
4. Kjör tveggja endurskoöenda.
5. Ákveöin félagsgjöld fyrir yfirstandandi ár.
6. Önnur mál, sem upp kunna aö veröa bor-
in.
Tillögur um stjórnarkjör þurfa aö berast stjórn fé-
lagsins eigi síöar en þremur virkum dögum fyrir aöal-
fund.
Aö loknum aöalfundarstörfum mun formaöur Oröa-
nefndar Skýrslutæknifélagsins, Sigrún Helgadóttir,
og formaöur Staöalnefndar, Frosti Bergsson, skýra
frá störfum nefndanna.
Kaffiveitingar.Stjórnin.