Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985 TU DAGLEGRA NOTA VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. 14 ára piltur lést í dráttar- vélaslysi FJÓRTÁN ára piltur frá Brodda- nesi í Fellshreppi á Ströndum, lést í fyrrakvöld af völdum meiðsla, sem hann varð fyrir þeg- ar dráttarvél, er hann ók nsrri byggðakjarnanum á Broddanesi, valt í hálku ofan við túnið þar. Samkvæmt upplýsingum Mbl. mun Hrafn hafa verið einn á ferð á dráttarvélinni skammt frá heimili sínu í Kollafirði í Strandasýslu um kl. 21 á sunnudagskvöldið. Dráttarvélin var húslaus en með grind. Þegar slyssins varð vart var fengin sjúkrabifreið frá Hólmavík. Pilturinn var fluttur með flugvél til Reykja- víkur en lést skömmu eftir komuna. Hann hét Hrafn Guð- björnsson, fæddur 1970. Milt áfram JÞESSI BLÍÐA er engan veg- inn einsdæmi í janúar, en að vísu ekki algeng heldur," sagði Markús Á. Einarsson, veður- fræðingur. Markús kvaðst bú- ast við að hægviðrið héldist í dag og á morgun, en á fimmtu- dag gæti farið að draga til suðaustanáttar. Þá fara rign- ingin og slyddan að láta á sér kræla á suðvesturlandinu á ný. Morgunblaðið/ Júlíus. Nauðlending á Reykjavíkurflugvelli NAUÐLENDING lítillar tveggja hreyfla flugvélar á I vonum, en mikill viðbúnaður var á flugvellinum. Á mynd- Reykjavíkurflugvelli um miðjan dag í gær tókst mjög vel. inni er verið að hjálpa einum farþeganna úr vélinni, en Bilun varð í nefhjóli vélarinnar þannig að flugmaðurinn þeir voru átta, auk flugmanns. Starfsmenn slökkviliðsins varð að treysta á hin tvö við lendinguna. Tókst hún framar | og flugvallarins eru á bflunum. Sjá frétt og viðtöl á bls. 4. MorgunblaðiA/Júlfua. Hátt í 50 manns gistu fangageymslurnar í Hafnarfírði aðfaranótt mánudags og voru klefarnir fullir fram undir morgun. Hér koma nokkrir lögreglumenn pilti inn í lögreglubfl. Árleg þrettánda- ólæti í Hafnarfirði TALSVERÐ ólsti urðu í miðbs Hafnarfjarðar á þrettándakvöld þegar á annað hundrað ungs fólks safnaðist saman og olli spjöllum. Brotnar voru 15—20 rúður, fjögur jólatré slitin niður, skemmd og dregin út á götu í veg fyrir lögreglubfla. 40—50 manns gistu fangageymslur lögreglunnar um nótt- ina. Ekki urðu önnur slys á fólki en þau, að unglingspiltur fékk hlut í auga og var fluttur á slysadeild, að því er Steingrímur Atlason, yfir- lögregluþjónn í Hafnarfirði, sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær. Steingrímur sagði að ólætin hefðu byrjað undir miðnætti á sunnudagskvöldið og staðið fram undir kl. 5 á mánudagsmorgun. „Það var ekki mikill drykkjuskap- ur samfara þessu en okkur fannst sem þetta væri heldur eldra fólk en hefur stundum áður verið með ólæti hér á þrettándanum, eða fólk allt upp að þrítugu," sagði hann. Steingrímur giskaði á að þegar mest var af fólki á götunum hafi verið þar 100—200 manns. Tiltækt lögreglulið var kallað út, um þrjá- tíu lögregluþjónar og höfðu þeir nóg að gera um tíma. Um margra ára skeið hafa verið ólæti á götum Hafnarfjarðar að kvöldi 13. dags jóla en nokkur undanfarin ár hefur verið rólegra í bænum. Verðmæti birgða yfir 2 milljarðar Tap skreiðarframleiöenda vegna rýrnunar nemur hundruðum milljóna kr. NÚ ERU til í landinu um 220 þúsund pakkar af skreið eða tæplega 10 þúsund tonn auk 3 þúsund tonna af hertum hausum, samtals að verð- mæti 50 til 60 þúsund Bandaríkjadalir sem samsvarar 2.000 til 2.500 milljónum íslenskra króna. Birgðirnar eru frá árunum 1982 til 1984 og nemur tap framleiðenda vegna rýrnunar og vaxtakostnaðar hundruðum milljóna kr. Á síðastliðnu ári var ekki seld nein skreið til Nígeríu sem er okkar aðalmarkaðsland fyrir skreið og aðeins um 1.000 tonn af hausum. Á árinu 1983 voru seld þangað 6.500 tonn af skreið og 6.000 tonn af hausum en árið 1981, þegar útflutningurinn var sem mestur, voru flutt þangað 19.000 tonn af skreið og 6.800 tonn af hausum. Útflutningur til annarra landa en Nígeríu var einnig lítill á síðasta ári, í lok október höfðu verið flutt út 177 tonn af skreið, aðallega til Ítalíu. Hannes Hall, framkvæmda- stjóri Samlags skreiðarframleið- enda, sagði að allt væri í óvissu með skreiðarsölu til Nígeríu. Stjórnvöld þar hefðu enn ekki gef- ið út nein innflutningsleyfi og ekki væri vitað um áform þeirra í þeim efnum. Samkvæmt stefnuræðu forsætisráðherrans virtist helst sem samdráttur væri enn á döf- inni. Sagði hann að þessi staða kæmi sér ákaflega illa fyrir skreiðar- framleiðendur. Þeir væru ennþá að greiða vexti af afurðalánum vegna framleiðslu 1982 auk þess sem ennþá væru 22 milljónir doll- ara útistandandi af útflutningi ársins 1983 en það samsvarar tæp- um 900 milljónum ísl. kr. Við Siglingamálastofnun er að kanna ástand þessa búnaðar í miklum hluta flotans og hófst hún fyrir nokkru og mun ljúka í þessum mánuði. Magnús sagði ennfremur, að á þessu tímabili væri nær allur vertíðarflotinn skoðaður. Mikil áherzla væri lögð á það, að skip þetta bættist að skreiðin rýrnaði um nálægt 5%. á ári. Lauslega reiknað nemur tjón framleiðenda vegna rýrnunar, miðað við þær birgðir sem til eru í landinu í dag, rúmum 100 milljón- um kr. á ári. Miðað við að birgð- irnar seljist ekki fyrr en um mitt þetta ár má áætla að tjón fram- leiðenda vegna rýrnunar þeirra verði orðið á þriðja hundrað millj- ónir kr. fengju ekki haffærniskírteini nema þessi búnaður svo og annar örygg- isbúnaður væri í lagi. Aðspurður sagði Magnús, að það sem komið væri, hefði ekki komið fram mark- tækur munur á ástandi sjálfvirks sleppibúnaðar eftir tegundum. Vonbrigði hve útkom- an hefur verið slæm — segir siglingamálastjóri um ástand sjálfvirks sleppibúnaðar „ÉG verð að segja það, að það hafa orðið mér dálftil vonbrigði hve útkoman hefur verið slæm. Hins vegar get ég ekki tjáð mig nánar um hana, þar sem könnun stendur enn yfír,“ sagði Magnús Jóhannesson, siglingamálastjóri, er Morgunblaðið innti hann eftir þv( hver útkoma könnunar stofnunarinnar á sjálfvirkum sleppibúnaði íslenzkra fiskiskipa væri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.