Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985
43
Morgunblaðid/Haukur.
Björgunarsveitin á Höfn freistar þess nú að snúa Sebjörgu frá Vestmanna-
eyjum við á strandstað, svo auðveldara verði að bjarga verðmætum úr
skipinu.
Sæbjörgu snúið við
llöfn, Hornafírði, 7. jnnúnr.
ÞAÐ ER oft teflt á tvær hættur þeg-
ar unnið er að björgun verðmeta úr
Sæbjörgu frá Vestmannaeyjum, sem
strandaði hér í desember. Félagar úr
björgunarsveitinni á Höfn hófu til-
raunir til að snúa skipinu hinn 27.
deæmber, en það liggur nú á stjórn-
borðshlið með bakborða að landi og
gerir sú lega skipsins erfitt um vik
með björgun, því sífellt gefur á
björgu narmenn.
Stórvirkar jarðýtur eru notaðar
í landi til að snúa skipinu við.
Átökin eru mikil, eins og kom
greinilega í ljós á sunnudag, en þá
var dráttarvír festur við stóran
klett í fjörunni. Þegar reynt var
að draga inn vírinn klofnaði klett-
urinn í tvennt. Það þarf því að
leita annarra ráða til að snúa
skipinu og verður nú hafist handa
við að grafa niður steypustöpla og
járnplanka í fjörunni, svo unnt sé
að beita dráttarvírum með réttu
átaki.
Björgunarmenn sækjast aðal-
lega eftir ljósavélum skipsins, sem
eru heilar, en þegar er búið að
bjarga tækjum úr brú skipsins.
Kaupfélagið hefur lýst yfir áhuga
sínum á að kaupa loðnukrana
skipsins til að nota á nýjan togara
sinn. Björgunarsveitin á Höfn
fékk Sæbjörgina að gjöf frá trygg-
ingarfélagi skipsins og er áhugi
manna hér mikill fyrir þessu
vandasama verkefni. Um 15—20
manns vinna að björguninni á
hverjum degi og allir gefa sína
vinnu. Haukur
Sérunninn safngripur
frá Glit veröur kjörgripur barna þinna og stolt
barnabarna þinna á komandi öld.
HÖFÐABAKKA9
SIMI 685411
KRAMHUSIÐ
DANS- OG LEIKSMIÐJA
Bergstaöastræti 9B — Bakhús
íC^
&
!C^
,0>'
v
&
s
&
6°
®>N
&
cR>
6°
K\
Innritunarsimi 15103.