Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.01.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985 „ ég hcLt cxb \jib ætlabum í y\no.ttferb, pegtxr þú Paerir á eftirlaun." Ást er ... 6/w> l-H ... að fara í kirkju með fjölskylduna TM Reg U ?» Pal Ott all nghls reservwl ® 1979 Los Anqeles Times Syndicale Nú er nóg komið, kona góð. Þetta er hatturinn minn. Kg gleymdi að fá frímerkið sleikt? HÖGNI HREKKVÍSI " FLOTt FÓTSk^löV Gjöf eða undirboð og skattaskjól Agnes Ingvarsdóttir, Akureyri, skrifar: Vegna fréttar í Morgunblaðinu 28/12 1984 undir yfirskriftinni: „BM Vallá hefur gefið helming allrar steypu í 15 ár“. Þessi frétt féll mér mikið fyrir brjóst. Allt er sett upp til að sýna framúrskarandi góðgerðarstarf- semi fyrirtækisins við Hallgríms- kirkju. En ástæða er til að skoða frétt- ina betur. BM Vallá hefur ekki gef- ið neina steypu, heldur selt hana með 50% afslætti eins og segir seinna í fréttinni. Fyrirtækið hef- ur sem sagt minnkað söluverð, og skorið niður sinn eigin hagnað. Þessi söluaðferð er stundum kölluð undirboð seljanda, og er oftast gerð til að tryggja vinnu handa fyrirtækinu og útiloka sam- keppni. Söluverð er samansett af kostnaðarlið, álagningu og sölu- skatti. (Nú má vel vera að kirkjan sem keypti steypuna hafi fengið felldan niður söluskattinn.) Segjum, að BM Vallá hafi selt skammt, sem venjulega kostar án söluskatts kr. 100 eða kr. 123,50 með söluskatti til Hallgrims- kirkju. Kirkjan fær 50% afslátt og borgar sem sagt kr. 50 + kr. 11,75 (söluskattur). BM Vallá gefur samkvæmt fréttinni, ímyndaðar kr. 50 sem eru frádráttarbærar til skatts vegna þess, að þetta er „gjöf“ til kirkjunnar sem borgaði aðeins kr. 50 fyrir kr. 100 skammt, og gjafir til kirkjufélaga (og ann- arra líknarsjóða) má draga frá til skatts (upp að 10% af heildartekj- um). Skattakerfið er snuðað um kr. 11,75 söluskatt af hverju, kr. 100 skammti sem fer í kirkjuna (ef borgaður er söluskattur). Ætla má, að hinn veitti afslátt sé bók- Birna Taylor hringdi: Við unglingarnir hér í Reykja- vík erum alveg sammála Mrs. Rhodes og Mrs. Taylor. Hvernig væri að gera dálítið fyrir krakka á 13—16 ára aldri. Enginn virðist vilja eyða peningum í að fá Duran Duran hingað til lands, þó helm- ingur landsmanna haldi upp á þessa hljómsveit. Hverjir eru möguleikar okkar til að sjá þessa æðislegu kappa? Ég grátbið Ingólf Guðbrandsson forstjóra Útsýnar að vera svo vænn að bjóða upp á ferð á hljómleika með Duran Dur- an. Ég er viss um að það yrði vel þegið af öllum aðdáendum hljómsveitarinnar hér á landi. færður sem frádráttarbær gjöf til kirkjunnar. Annað væri ekki eðli- legur „bisness“, og ætla má að BM Vallá sé rekið eftir almennt gild- andi reglum. Þá er um að ræða skattatækni- legt atriði frekar en rausn. (Hvaða fyrirtæki gæti ekki notað að „skera “ smávegis af tekjutoppin- um fyrir skattlagningu?) Ég geng út frá, að steypan hafi verið seld á eða yfir kostnaðar- verði. Ef svo er ekki, það er að segja ef steypan er seld undir kostnaðarverði, þá versnar í búi, þvl einhver borgar fullt verð Velvakandi góóur. Nokkuð hefur borið á því að undanförnu, að menn lýsi andúð sinni fyrirfram á væntanlegu norsku sjónvarpsefni, og virðast ýmsir ósparir á fullyrðingar eins og þær, að íslenska þjóðin vilji alls Þrjár stelpur hringdu: Við erum miklir Duran Duran- aðdáendur og viljum taka undir það sem Mrs. Rhodes og Mrs. Tay- lor sögðu þann 29. desember í Velvakanda um Duran Duran- hljómleika. í haust var farið á Queen-hljómleika á vegum ferða- skrifstofunnar Ævintýraferða. Er ekki hægt að fara samskonar ferð á Duran Duran-hljómleika. Ferða- skrifstofurnar myndu ekki tapa á þessu þar sem hljómsveitin Duran Duran er miklu vinsælli hér á landi en Queen. Og svona í lokin: Duran Duran-aðdáendur stöndum saman. ásamt hugsanlegu tapi á afslátt- arsteypunni, þ.e. almennir hús- byggjendur. Mér skjátlast mikið, ef málum er ekki háttað svipað og hugleitt er hér að ofan, því að í fréttinni er talað um „framlag BM Vallá til byggingar kirkjunnar" þ.þ. gjöf. Gaman væri að vita, hvort hér er um að ræða óeigingjarna góð- gerðarstarfsemi sem ekki hefur komið niður á öðrum notendum steinsteypu og skattborgurum að neinu leyti, eða hvort um er að ræða undirboð og skattaskjól. ekki norrænt sjónvarp, og allra síst hið lágkúrulega norska, enda sé það leiðinlegasta sjónvarp í heimi. Ég leyfi mér nú að efast um að þetta sé almenn skoðun lands- manna. Það sem við höfum séð af norrænu sjónvarpsefni er síst lak- ara en frá öðrum löndum. Frá Norðurlöndum hafa komið frábær sjónvarpsverk, leikin af heims- þekktum leikurum. Má þar t.d. nefna sænsku þættina „Vesturfar- ana“, gerða eftir sögu Mobergs, og norsku þættina „Jenny“, eftir Nóbelsverðlaunaskáldið Sigrid Undset. í þessum verkum var ekki horft á heiminn „gegnum hinn mjóa glugga Skandinava". Einn nafnleysinginn talar um „áleitna kynningu á furðulegum viðhorfum norrænna manna". Gaman væri að vita, hvað hér er átt við. Nor- ræn viðhorf birtast m.a. í því, að hvergi í heiminum ríkir nú meira frelsi en á Norðurlöndum. Smáþjóðin Noregur hefur lagt heiminum til fleiri snillinga á listasviðinu en mörg stórþjóðin. Skyldi það nú vera alveg víst að sjónvarpið þeirra sé hið leiðinleg- asta, lágkúrulegasta og ömurleg- asta í heimi? Jón Bjarklind Sýnið Dallas í sjónvarpinu Ein 10 ára skrifar: Halló Velvakandi. Ég vil að Dallas komi aftur í sjónvarpið. Við eigum bara svart- hvítt sjónvarpstæki svo ekki er hægt að leigja myndbandstæki. Ég hef því ekki séð einn einasta þátt, sem leigðir eru út á mynd- bandaleigunum. Hvers vegna er Dallas ekki sýnt í sjónvarpinu? Þættirnir eru mikið betri en margt annað efni, sem þar er sýnt. Þeir sem ekki þola þáttinn geta þá slökkt á sjónvarpinu. Enn um ferð á Duran Duran hljómleika Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til lostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel ef þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvf til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Norska sjónvarpið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.