Morgunblaðið - 08.01.1985, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1985
Morgunblaðii/Ól.K.M.
Eyrarfosn kemur til Reykjavíkur í gær, rúmum 13 metrum lengri en þegar hann fór í byrjun desember.
Eyrarfoss lengdur um rúma 13 metra
EYRARFOSS, eitt af flutninga-
skipum Eimskipafélags íslands,
kom til Reykjavíkur í gær og væri
slíkt ekki í frásögur færandi nema
af því að hann kom rúmum 13
metrum lengri en þegar hann fór í
byrjun desember. Skipið hafði
gengið undir „uppskurð" í skipa-
smíðastöðinni Howaldswerke De-
utsche Werft í Hamborg og tók
verkið aðeins 13 daga. Eftir leng-
ingu eykst flutningsgeta skipsins
um 20—30% og getur skipið nú
flutt samtals 325 gámaeiningar og
um 150 bíla og eykst burðargetan í
tonnum úr 3600 í 4500 tonn. Fyrir-
hugað er einnig að lengja syst-
urskip Eyrarfoss, Álafoss, í mars
á þessu ári.
Viðskiptabankamir:
Formenn bankaráða skipaðir
Viðskiptaráðherra hefur skip-
að Pétur Sigurðsson, alþing-
ísmann, formann bankaráðs
Landsbanka íslands og Kristinn
Finnbogason, framkvæmda-
stjóra, varaformann bankaráðs-
ins.
Viðskiptaráðherra hefur enn-
fremur skipað Valdimar Indriða-
son, alþingismann, formann
bankaráðs Utvegsbanka Islands
og Jóhann Einvarðsson, aðstoð-
armann félagsmálaráðherra,
varaformann bankaráðsins.
Þá hefur viðskiptaráðherra
skipað Stefán Valgeirsson, alþing-
ismann, formann bankaráðs Bún-
aðarbanka íslands og Friðjón
Þórðarson, alþingismann, vara-
formann bankaráðsins.
Skipun þessara manna gildir til
næstu fjögurra ára frá 1. janúar
1985 að telja.
Góð aðsókn að Gullsandi
AÐSÓKN að Gullsandi, nýjustu
kvikmynd Ágústs Guðmundsson-
ar, hefur verið góð og fer vaxandi,
að sögn Ágústs Guðmundssonar.
Nú hafa um 9 þúsund manns séð
myndina í Reykjavík og á Akra-
nesi.
í vikunni hefjast sýningar í
Keflavík og jafn skjótt og fleiri
eintök af myndinni hafa borist,
verður þeim dreift til sýningar
um landið.
Árleg þrettánda-
gleði Týs í Vest-
mannaeyjum
VestmanDaejjum, 7. janúar.
ÁRLEG þrettándagleði knatt-
spyrnufélagsins Týs var haldin í
gærkveldi í hinu besta veðri og
fylgdist mikill mannfjöldi með
gleðskapnum. Nafn Týs var tendr-
að stórum eldstöfum í hlíðum
Molda á slaginu kl. 20.00 í gær-
kvöldi og stórfengleg flugeldasýn-
ing var af Hánni. Jólasveinar fóru
blysför ofan af Hánni um bæinn
og inn á íþróttavöllinn í Löngulág
þar sem kveikt var í brennu.
Þar dönsuðu og ærsluðust álf-
ar, púkar, tröll og aðrar forynjur
auk jólasveina, Grýlu og Leppa-
lúða fram eftir kvöldi. I blysför
jólasveinanna var komið við á
Hraunbúðum, dvalarheimili aldr-
aðra og á sjúkrahúsinu þar sem
heilsað var upp á vistfólk með
söng og flugeldaskotum. Knatt-
spyrnufélagið Týr hefur í ára-
Lýsitröll
raðir staðið fyrir slíkum þrett-
ándafögnuði ár hvert og mikill
fjöldi sjálfboðaliða lagt mikla
vinnu í að gera þetta að stórkost-
legri hátíð sem notið hefur mik-
illa vinsælda meðal bæjarbúa,
ekki hvað síst þeirra af yngri
kynslóðinni.
Eyverjar, félag ungra sjálf-
stæðismanna, hafa árlega efnt til
grímuballs fyrir börn og unglinga
á þrettándanum og nú sem fyrr
var þar vel mætt og marga stór-
góða búninga að sjá. Það var því
svo sannarlega líflegt í Eyjum á
þrettándanum og margar furðu-
verur á ferð í bænum. Þrettánda-
gleðinni lauk síðan með fjölsótt-
um dansleik i samkomuhúsinu
þar sem jólin voru dönsuð út að
gömlum og góðum sið.
hkj.
Mörg tröll og ýmsir óvættir fóru á
kreik.
Byrjunarlaun kennara
20.813 kr. á mánuði
KENNARAR fengu hækkun sem svar-
ar tveimur launaflokkum við undirrit-
un sérkjarasamninga nú fyrir helgina,
og hækkun á greiðslum fyrir leiðrétt-
ingu verkefna og undirbúning kennslu,
eins og greint var frá i frétt Morgun-
blaðsins á laugardag. Samkvæmt þess-
um samningi hækka byrjunarlaun
kennara á grunnskólastigi úr 15.
launaflokki 1. þrepi í 17. launaflokk 2.
þrep og eru nú 20.813 krónur á mán-
uði, en voru áður 18. 240 krónur á
mánuði. Lágmarkshækkun „stflapen-
inganna" nemur sem svarar einum yf-
irvinnutíma á viku.
Að sögn forystumanna Kennara-
sambandsins er hér um að ræða
áfangasamning enda felur hann í sér
ákvæði um að aðilar taki upp við-
ræður um breytingar á launastigan-
um eftir að nefnd, sem vinnur að
endurmati á störfum kennara, hefur
skilað áliti, sem stefnt er að fyrir 1.
mars 1985. Samkvæmt samningnum
verða byrjunarlaun kennara með
réttindi á grunnskólastigi nú 20.813
krónur á mánuði, en eftir 23ja ára
starf eru launin miðuð við 23. launa-
flokk 3ja þrep og nema þá 26.262
krónum á mánuði. Kennsluskylda
kennara í 1. til 6. bekk er 30 stundir
á viku og 29 stundir hjá kennurum f
7. til 9. bekk. Á skrifstofu Kennara-
sambands íslands fengust þær upp-
lýsingar að yfirvinna væri lítil sem
engin hjá kennurum á höfuðborg-
arsvæðinu, en eitthvað meiri úti á
landi og þá einkum í heimavistar-
skólum.
Útsaumur, dúkar, fatnaður, skór, basttöskur, kínversk teppi,
kínverskir skápar og borð, silkimyndir, silkilugtir, sólhlífar,
blaöagrindur, horn og vegghillur o.m.fl.
Sjónval, Kirkjustræti 8. Sími 22600.