Morgunblaðið - 17.01.1985, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
13. tbl. 72. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1985________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sigri fagnað
Tancredo Neves, hinn nýkjörni forseti Brasilíu, hyggst sækja ráðamenn í Bandaríkjunum, Mexíkó og
Argentínu heim, áður en hann verður formlega settur í embætti 15. mars nk. Það var blaðafuiltrúi forsetans,
sem greindi frá þessu í dag. Á myndinni, sem tekin var þegar úrslit urðu ljós, eru Neves, eiginkona hans og
samherjar að syngja þjóðsöng Brasilíu. Sjá: „Kjöri Neves fagnað um gjörvallt landið" á bls. 24.
Breska ríkisstjórnin:
íhugar að styrkja
pundíð enn frekar
l.undúnum, 16. janúar. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra, lýsti þeirri skoðun sinni í viötali
við Breska útvarpið í dag, að gengi sterlingspundsins hefði fallið of mikið á
gjaldeyrismörkuðum að undanförnu, og ónafngreindur aðstoðarmaður ráð-
herrans lét hafa eftir sér, að stjórnin kynni að grípa til nýrra ráðstafana til að
styrkja stöðu gjaldmiðilsins. Utilokaði hann ekki að vextir yrðu hækkaðir á
ný eða seilst í gjaldeyrisvarasjóði.
Gengi sterlingspunds gagnvart
bandaríkjadal hefur hrapað um 15
prósent undanfarna fjóra mánuði.
Stafar það m.a. af mikilli gengis-
hækkun bandaríkjadals samhliða
lækkun olíuverðs, sem hefur rýrt
tekjur Breta af Norðursjávarolíu.
Sovétríkin:
Gengi punds gagnvart dal hefur
aldrei orðið jafn lágt og á mánu-
dag þegar pundið var selt á 1,10
dal á gjaldeyrismörkuðum í Aust-
urlöndum fjær. Þá greip Eng-
landsbanki í taumana og fyrir-
skipaði hækkun bankavaxta á
Bretlandi, sem leiddi til þess að
staða pundsins styrktist á ný. Þeg-
ar gjaldeyrismarkaðir í Lundún-
um lokuðu síðdegis var pundið selt
á 1,1205 dal.
Nigel Lawson, fjármálaráð-
herra Breta, kom í dag til Wash-
ington þar sem hann situr fund
fjármálaráðherra fjögurra ann-
arra iðnríkja, Bandaríkjanna,
Frakklands, Japans og Vestur-
Þýskalands. Þar verður m.a. rætt
um stöðu sterlingspunds og
bandaríkjadals, en þó einkum um
hallann á fjárlögum Bandaríkja-
stjórnar, sem stjórnmálaleiðtogar
í Evrópu telja að ráði mestu um
háa vexti í Bandaríkjunum og
óeðlilega hátt gengi bandaríkja-
dals.
Lundúnablaðið Times:
Khomeini gerir út
sjálfsmorðssveitir
Lundúnum, 16. januar. AP.
LUNDÚNABLAÐIÐ The Times skýrir frá því í dag, að það hafi undir
höndum leyniskjöl, er leiði í Ijós að ríkisstjórnin í Iran hafi komið á fót
sérstakri hermálastofnun, sem hefur það verkefni að afla liðsmanna í sjálfs-
morðssveitir, sem eiga að vinna hermdarverk í ríkjum, sem andsnúin eru
Khomeini erkiklerki.
Lönd þau, sem nefnd eru í skjöl-
unum sem höfuðvettvangur
hryðjuverkamannanna, eru
Saudi-Arabía, Kuwait, Sameinuðu
arabísku furstadæmin, Jórdanía
og Frakkland.
Blaðið segir, að einn aðalmaður-
inn á bak við hermálastofnunina
sé Husain Musawi, sem er í for-
ystu fyrir Jihad-samtökin, sem er
félagsskapur herskárra múham-
eðstrúarmanna. Jihad hefur lýst á
hendur sér ábyrgð á sjálfsmorðs-
árásum á mannvirki í eigu Banda-
ríkjamanna og Frakka í Líbanon
og Kuwait, sem gerðar hafa verið
á undanförnum þremur árum.
The Times segir, að íranskir
stjórnarandstæðingar, sem lúta
forystu Shapour Bakhtiar, fyrrum
forsætisráðherra landsins, hafi
komið leyniskjölunum um sjálfs-
morðssveitirnar á framfæri við
blaðið.
Símamynd/AP.
Lestarslysið mikla
Talið er að ekki færri en 449 manns hafi beðið bana og á sjötta hundrað
slasast á sunnudag, þegar fjórir vagnar járnbrautarlestar, sem var á
leiðinni til Addis Ababa, höfuðborgar Eþiópíu, hröpuðu ofan af brú
niður í 12 metra djúpt gil, skammt frá borginni Awash, sem er í um 200
km fjarlægð frá höfuðborginni. Myndin er tekin á slysstað, stuttu eftir
að harmleikurinn varð.
Hundruð létust
í sprengingu í
skotfærasmiðju
Lundúnum, 16. janúar. AP.
VIKURITIÐ Jane's Deíense í Lund-
únum, sem þykir mjög áreiðanlegt,
skýrði frá því í gær, að hundruð
manna hafi látið lífið síðla í desem-
ber þegar sprenging varð í skotfæra-
verksmiðju sovéska hersins í Síb-
eríu. Líkir blaðið atviki þessu við
sprenginguna í dotastöð Sovét-
manna í Severomor.sk á Kólaskaga í
maí í fyrra, en talið er að þá hafi um
tvö hundruð manns týnt lífi.
Verksmiðjan, sem um ræðir, er
neðanjarðar skammt frá borginni
Leninsk-Kuznetskiy í Síberíu. Þar
er jöfnum höndum unnið að til-
raunum með ný skotvopn og fram-
leiðslu þeirra.
Stjórnvöld í Moskvu hafa það
fyrir reglu að skýra aldrei frá
slysum og óhöppum, sem verða í
herstöðvum eða hergagnaverk-
smiðjum Sovétmanna.
Rætt um að hrinda séra
Popieluszko út úr lest
Réttarhöldin í Torun:
Torun, Póllandi, 16. janúar. AP.
JOSEF Baczynski, ofursti í innanríkisráðuneyti Póllands, skýrði réttinum
í Torun, sem rannsakar morðið á séra Jerzy Popieluszko, frá því í dag, að
á fundi í ráðuneytinu 9. október í fyrra, sem hann sat ásamt þremur
öðrum mönnum, hefði Grzegorz Piotrowski höfuðsmaður haft orð á því,
að kasta mætti prestinum út úr lest á fullri ferð. Baczynski kvaðst hins
vegar ekki vita hvort hann hefði meint þetta bókstaflega eða verið að tala
líkingamál.
Annar ofursti í ráðuneytinu,
Leszek Wolski, sem einnig bar
vitni fyrir réttinum í dag, kvaðst
hafa setið tvo fundi, 25. sept-
ember og 9. október, þar sem
viðbrögð leynilögreglunnar við
andófsaðgerðum presta landsins
hefðu verið rædd, og sagði hann
að aldrei hefði komið til tals að
beita ofbeldi eða öðrum ólög-
mætum aðferðum. „Ég heyrði
aldrei neinn minnast á að
fleygja einhverjum út úr lest,“
sagði hann enn fremur.
Auk þeirra Baczynski, Wolski
og Piotrowski sat Adam Pietr-
uszka ofursti fundina tvo, en
hann er sakaður um að hafa
hvatt þrjá undirmenn sína til að
ræna séra Popieluszko. Piotr-
owski höfuðsmaður er hins veg-
ar ákærður fyrir að hafa myrt
prestinn í félagi við tvo foringja
í leynilögreglunni.
Ákæruvaldið heldur því frani,
að það hafi verið Pietruszka
ofursti, en ekki undirmaður
hans, Piotrowski höfuðsmaður,
sem hafi lagt til á fundinum 9.
október að séra Popieluszko yrði
hrint út úr lest á fullri ferð.
Pietruszka segist hins vegar
vera saklaus og þvertekur fyrir
að hafa nokkru sinni haft á orði
að beita prestinn ofbeldi.